Vikan - 16.12.1976, Blaðsíða 61
VÍNARSULTA
1 kg kálfakjöt
1/2 kg svínakjöt, gjarnan bógur
13/41 vatn
1/2 msk. salt
5 piparkorn
5 korn allrahanda
1 lárviðarlauf
2 negulnaglar
Kryddið með:
1 msk. edik
salt, pipar, engifer
Setjið 2 bl. matarlím i bleyti.
Kjötið soðið meyrt undir loki. Eftir
að suðan er komin upp er froðan
veidd ofan af og kryddið sett út í.
Þegar kjötið er soðið er það tekið
upp, látið kólna aðeins og skorið i
smáa bita. Beinin eru síðan lögð
aftur í soðið og þau soðin áfram
svo krafturinn verði góður og
sterkur. Þá er soðið síað og kjöt-
bitarnir settir saman við og krydd-
að með ediki og kryddi. Uppleyst-
um matarlímsblöðunum blandað í.
Skolið form úr köldu vatni, hellið
sultunnn i og látið stifna. I Vin
er svona sulta borin fram með
sýrðum rauðrófum og söxuðum
hráum lauk.
SÍLDARSALAT
2 útvatnaðar saltsildar
3 soðnar kartöflur
5 stórar sneiðar sýrðar rauðrófur
2 súr epli
sýrð agúrka
(1 dl soðnir eða steiktir kjötten-
ingar)
2 msk. fíntsaxaður laukur
1 dl rauðrófusafi
salt og pipar.
Skerið síld, kartöflur, rauðrófur og
epli í smábita. Fintsaxið agúrkuna.
Blandið öllu saman með 2 göfflum
og gætið þess að gera það varlega
svo þetta verði ekki grautarkennt.
Kryddið með salti og pipar. Rauð-
rófusafanum má líka sleppa og nota
sýrðan rjóma i staðinn.
I þetta sinn birtum við uppskriftir af nokkrum réttum, sem útbúa
nokkru áður en þeirra er neytt, og þess vegna er upplagt að matreiða
þá fyrir jólin til að létta ögn eldhússtörfin um sjálfar hátíðarnar.