Vikan - 16.12.1976, Síða 14
Pabbi söng líka
á böllum.
— Nú ert þú bróðir Ellýjar
Vilhjálms söngkonu. Er mikil söng-
gleði í fjölskyldunni?
— Það má víst segja það. Ég
hugsa, að pabbi gamli hafi verið
einna fyrstur til að syngja fyrir
dansi á böllum og leika á harm-
óníkuna undir. Og það þótti ofsa-
lega mikið ,,sjó” þegar hann, eins
og hann orðaði það við mig „teygði
fram álkuna yfir harmóníkuna og
söng.”
— Nú er pabbi þinn Hinrik ívars-
son frá Merkinesi. Hvers vegna
kallið þig systkinin ykkur Vil-
hjáimsböm?
— Pabbi heitir raunar Vilhjálm-
ur Hinrik, en það vita mjög fáir.
Hann vildi alls ekki, að við not-
uðum Hinriksnafnið, svo að við
nefndum okkur eftir Vilhjálmi
pabba. Annars segi ég alltaf, þegar
ég er spurður um nafn, að ég heiti
Vilhjálmur Vilhjálmsson, sonur
Hinriks í Merkinesi.
— Hvenær lærðir þú að fljúga?
— Ég er alltaf að leita að ein-
hverju, sem höfðar til mín, og ég
komst að þeirri niðurstöðu, að flug
hentaði mér, svo að ég skellti mér
í fyrsta flugtímann tveimur árum
áður en ég hóf vinnu hjá flugfélag-
inu Luxair í Lúxemborg. Ég hafði
reynt mig í ýmsu á meðan ég var í
músíkinni. Ég kenndi ensku, vann
við mælingar á vegum bæjarins,
var sölumaður um tíma og reyndi
meira að segja blaðamennskuna.
Ég starfaði við blaðamennsku hjá
Degi á Akureyri og hafði gott af.
Blaðið kom þá út tvisvar í viku, á
miðvikudögum og laugardögum, og
þess vegna unnum við eins og
forkar á mánudögum og þriðju-
dögum, en lokuðum svo sjoppunni
á miðvikudögum og brugðum okkur
í veiðiferð. Það fannst mér
skemmtilegur tími.
Þá tapaði ég hug-
sjóninni.
— Hefurðu verið pólitískur, eða
ertu það nú?
— Á menntaskólaárunum var ég
pólitískur og róttækur eins og titt
er um unga menn. En um það leyti
sem ég lauk stúdentsprófi komst ég
að því, að fólk, sem vasast í pólitík,
á enga hugsjón, því að það er svo
önnum kafið við að skara eld að
sinni eigin köku. Þá tapaði ég
hugsjóninni, og upp frá því hef ég
haldið því fram, að bæði pólitík og
trúmál séu mannskemmandi. Tök-
um sem dæmi, þar sem pólitik og
trúmál blandast saman eins og í
Libanon og á Norður-írlandi. Stór-
hættulegt. Ég hef ekkert við pólitik
að gera, og kristin trú höfðar ekki
til mín á þann hátt, sem hún er
kennd og framkvæmd. Auðvitað á
ég mína eigin „trú”, en ég reyni
ekki að troða henni upp á aðra. Ég
er á móti fólki, sem reynir að troða
skoðunum sínum upp ó aðra. Segi
einhver við mig, að hans trú sé betri
en min, finnst mér hann vera fifl, —
og hana nú!
trúlofunarhring
Allir sem trúlofa sig og gifta, vilja vanda val á hringum. Vió bjóóum ykkur velkomin í verslanir okkar, þar sem
viö rnunurn sýna ykkur hiö ótrúlega fjölbreytta úrval af hringumog snúrum. Ennfremur póstsendum viö hvert
á land sem er, ef þess er óskað.
Hér gefur aó líta nokkur sýnishorn, sem þó aóeins er hluti þess úrvals, sem þió eigió kost á.
A J
7
KROSSHAMRAÐIR.
SLÉTTIR HRINGAR
Krosshamra má óllkar
breiddír.
SLÉTTIR,
BREIÐIR HRINGAR
Breidd 8, 9, 10 pg 12 mm.
Mjög vinsæl gerö i dag.
KANTSORFNIR,
SLÉTTIR HRINGAR
Kant má svería á
slétta hringa I öllum
breiddum.
12
KLASSISKA
GULLSNÚRAN
Laus eöa áföst kven-
hringnum. Breidd 1.5 mm.
KÚPTIR.
BREIÐIR HRINGAR
Breidd 8, 9, 10 og12mm.
Vinsæl gerö undanfarin
ár.
FLATHAMRAÐIR
HRINGAR
Fleti má hamra á ólíka
vegu á hvers konar
hringa. Algengast
á kúptum hringum.
EGGHAMRAÐIR
HRINGAR
Rákir, hamraöar beint,
þversum eöa á ská.
HRINGAR
MEÐ HÖFÐALETRI
Bæöi nöfnin grafin meö
höfðaletri á hvorn hring.
Breiddir. 6, 7, 8, 9 og 10
mm. Höfðaletur var notaö
I útskuröi fyrr á öldum.
STEINASNÚRA
Mikiö notuð með gifting-
arhringum. Vinsælustu
steinarnir I ..snúrunum"
eru rúbín (rauður) og
safir (hvltur og blér).
VÖLSUÐ
MYNSTURSNÚRA
Fæst I ýmsum mynstrum
og gerðum, laus eöa
áföst kvenhringnum.
Ðreidd 2 mm.
öp oö skapt^pipip
I JÖN og 'OSKAH Laugavegi 70 -s.24910 og
"v VERZLANA ThölliinT LAUQAVEQ BB
Laugavegi 26 -s. 17742
\jr
14 VIKAN 51.TBL.