Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.12.1976, Qupperneq 41

Vikan - 16.12.1976, Qupperneq 41
góður búðingur. Mmmmm.” Hann tróð munninn fullan. Poirot hófst nú handa við að snœða sinn skammt en hann gerði það afar hægt og varkárlega. Hann læddi einni skeið upp í munninn á sér. Bitinn var afar lostætur! Hann fékk sér annan bita. Það glamraði í ein- hverju á diskinum hans. Hann athugaðiþetta nánar með gafflinum. Bridget, sem sat vinstra megin við hann, kom honum til hjálpar. ,,Þér eruð með eitthvað, herra Poirot,” sagði hún. ,,Hvað ætli það sé?” Poirot prikaði með gafflinum í rúsínuhrúgu og fiskaði litinn silfur- hlutuppúrhenni. „Oooh,” sagði Bridget, „það er piparsveinshnappurinn! Herra Poi- rot fékk pipars veinshnappinn! ’ ’ Hercule Poirot skolaði litla silfur- hnappinn í vatnsskálinni, sem var við hliðina á diskinum hans. „Hann er afar snotur,” sagði hann. „Þetta þýðir að þér verðið pipar- sveinn, herra Poirot,” skýrði Colin útfyrirhonum. „Það má búast við því,” sagði Poirot alvarlega. „Ég er búinn að vera piparsveinn í fjöldamörg ár og það er afar ólíklegt að á því verði nokkur brey ting héðan af. ” „Maður á aldrei að segja aldrei,” sagði Michael. „Ég sá i blaði um daginn að einhver, sem var níutiu og fimm ára giftist tuttugu og tveggj a ára gamalli stúlku. ’ ’ ,, Þér látið þetta hlj óma afar freist- andi, ” sagði Hercule Poirot. Allt i einu hrópaði Lacey ofursti upp yfir sig. Hann varð purpura- rauður í framan og greip um munninn. „Hvur fjárinn, Emmeline,” drundi í honum, „hvers vegna í ósköpunum leyfir þú eldabuskunni að setj a gler í búðinginn? ’ ’ ,, Gler! ” hrópaði frú Lacey forviða. Lacey ofursti tók molann út úr sér. „Ég hefði getað brotið í mér tönn,” nöldraði hann, „eða gleypt hann og fengið botnlangabólgu. ’ ’ Hann stakk molanum niður í vatnsskálina, skolaði hann og lyfti honum síðan upp i ljósið. „Drottinn minn dýri,” sagði hann,, ,þetta er rauður steinn eins og í kransakökuskrauti.” Hann hélt honum svo að allir gætu séð hann. „Máég?” Poirot teygði sig i snatri fram hjá sessunaut sínum, tók steininn úr hendi Laceys ofursta og skoðaði hann gaumgæfilega. Rétt eins og óðalseigandinn hafði sagt, þá var þetta afar stór steinn, rúbínrauður á lit. Ljósið geislaði af honum þegar hann snéri steininum. Einhver ýtti stólnum sínum harkalega fró borðinu en dró hann síðan að því aftur. „Ja, hérna,” hrópaði Michael. „Hugsið ykkur ef hann er nú ekta.” „Kannski er hann ekta,” sagði Bridgetvongóð. „Láttu ekki eins og asni Bridget. Svona stór rúbínn væri margra þús- unda punda virði. Ekki satt, herra Poirot?” „Jú, svo sannarlega,” sagði Poi- rot. „Það er aðeins eitt, sem ég á afar bágt með að skilja,” sagði frú Lacey, „og það er hvernig hann hefur komist íbúðinginn.” „Oooh," sagði Colin og gretti sig yfirsíðustu munnfyllinni. „Ég fékk svínið. Þettaersvindl.” Bridget greip tækifærið sigri hrós- andi. „Colinfékkgrisinn! Colin fékk grísinn! Colin er gráðugi, rymjandi grísinn!” „Ég fékk hringinn,” sagði Diana hárri skýrriröddu. „Þar varstu heppin, Diana. Þá giftist þú fyrst okkar. ” „Ég fékk fingurbjörgina,” vældi Bridget. „Bridget verður piparjúnka,” söngluðu strákarnir tveir. „Bridget verður piparjúnka! ’ ’ „Hver fékk peningana?” spurði David. „Ég veit að það er tíu shillinga gullpeningur i búðingnum. Frú Ross sagðimérfrá því. ” „Ætliégséekki só heppni,” sagði Desmond Lee-Wortley. Þeir sem sátu næs tir Lacey ofursta heyrðu hann tuldra fyrir munni sér. ,, Það gat svo sem verið. ’ ’ ,, Ég fékk líka hring, ’ ’ sagði David. HannleityfirborðiðáDiönu. „Ein- kennilegtilviljun, ekkisatt?” Hláturinn og gleðskapurinn hélt ófram. Enginn tók eftirþví að Poirot stakk steininum í vasann, rétt eins og hann væriannars hugar. Á hæla búðingsins komu posteik- urogjólaábætir. Aðþvíloknu drógu hinir eldri sig í hlé til að fá sér smáblund áður en kæmi að teinu og því að kveikja átti á jólatrénu. Ekki fylgdiHerculePoirotþódæmi hinna. I stað þess hélt hann inn í risastórt gamaldags eldhúsið. „Leyfistmér,” sagðihannum leið og hann leit í kring um sig ljómandi afánægju, „aðóskaeldabuskunnitil hamingju með þá einstaklega góðu móltíð, sem ég var rétt i þessu að ljúkavið?” Fyrst i stað var kyrrðin ekki rofin i eldhúsinu en síðan gekk frú Ross tigullega í áttina til hans. Hún var mikil vexti og tiguleg að sjó. Tvær grannar gráhærðar konur stóðu við vaskinnog voru að þvo upp og stúlka með hár líkast hampi var á þönum við einhver störf. Augljóst var að þessar þrjár voru bara lágt settar þjónustustúlkur. Frú Ross var greinilegadrottningeldhússins. „Mér þykir vænt um að heyra að yður likaði maturinn, herra minn," sagði hún virðulega. „Líkaði maturinn!" hrópaði Hercule Poirot. Með útlendingslegu látbragði bar hann hönd upp að vörum sér, kyssti hana og sendi fingurkoss til himins. „En þér eruð snillingur, frú Ross! Hreinn snill- ingur! Aldrei nokkurn tíma hef ég bragðað þvilíkan öndvegismat. Ostrusúpan...” hann gerði smjatt- hljóð með vörunum.....og fyllingin. Kastaníuhnetufyllingin í kalkúnin- um, hún var alvegeinstök isinni röð, eg hef aldrei smakkað nokkuð henni líkt." „Það var skrítið að þér skylduð minnast á hana, herra minn." sagði 51. TBL. VIKAN 41 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.