Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 16.12.1976, Qupperneq 45

Vikan - 16.12.1976, Qupperneq 45
„Nei, nei. Ég hugsa ekki um hann sem mat heldur um þýðingu hans.” „Hann er að sjálfsögðu gömul hefð,” sagði frú Lacey. „Jæja, góða nótt, herra Poirot, og dreymi yður ekki of mikið um jólabúðinga og posteikur.” „Já,” tuldraði Poirot við sjálfan sig meðan hann háttaði sig. „Hann er sannkallað vandamál þessi jóla- búðingur. Það er eitthvað við þetta allt, sem ég skil alls ekki.” Hann hristi höfuðið gremjulega. „Jæja, viCsjáuranútil.” Eftir að hafa gert nokkrar ráð- stafanir lagðist Poirot upp í rúmið, en ekki til svefns. Það var um pað bil tveimur stundum seinna að þolu.mæði hans bar árangur. Dyrnar að sveíiiher- bergi hans opnuðust afar hljóðlega. Hann brosti með sjálfum sér. Allt fór eins og hann hafði búist við. Hugur hans reikaði aftur til þeirrar stundar er Desmond Lee-Wortley hafði rétt honum kaffibollann afar kurteislega. Stuttu seinna þeg- ar Desmond sneri bakinu í hann hafði hann lagt bollann frá sér eitt augnablik á v jrðið. Síðan hafði hann að því er virtist tekið hann upp aftur, og Desmond hafði haft þá ánægju, ef ánægju skyldi kalla, að sjá hann drekka kaffið sitt til botns. En ofurlítið bros lyfti yfir- varaskeggi Poirots þegEU- honum varð hugsað til þess að það var ekki hann heldur annar sem svaf höfgum svefni þessa nótt. „Þessi skemmti- legi, ungi David,” sagði Poirot með sjálfum sér, „er áhyggjufullur og óhamingjusamur. Það gerir honum ekkert að sofa reglulega fast og vel eina nótt. Látum okkur nú sjá hvað gerist.” Hann lá grafkyrr og dró andann jafnt og reglulega. Af og til mátti heyra svolítið, sem einna helst minnti á hrotur. Emhver kom upp að rúminu og beygði sig yfir hann. Þegar gestur- inn hafði fullvissað sjálfan sig um að Poirot væri sofandi sneri hann sér frá rúminu og gekk að kommóð- unni. Við týru litils vasaljóss leitaði gesturinn í eigum Poirots, sem var snyrtilega raðað ofan á kommóð- una. Fingur rannsökuðu veski hans opnuðu síðan hljóðlega skúffumar og héldu síðan leitinni áfram i vösum hans. Loks gekk gesturinn aftur að rúminu og læddi annarri hendinni undir koddann hans. Þegar hann dró höndina til baka stóð hann stutta stund eins og hann vissi ekki hvað til bragðs skyldi taka. Hann gekk i hring i her- berginu og leitaði dymm og dyngj- um, fór síðan inn í baðherbergið, sem var áfast svefnherberginu. Stuttu síðar kom hann þaðan út aftur. Loks fór hann aftur út sömu leið og hann kom tuldrandi óánægjuorð fyrir munni sér. „Ah,” hvislaði Poirot að sjálfum sér. „Þarna varstu vonsvikinn. Jahá, reglulega vonsvikinn. Bah! Að láta sér detta í hug að Hercule Poirot feli hlutina þar sem þú getur fundið þá!” Svo snéri hann sér á hina hliðina og sofnaði svefni hinna réttlátu. Hann var vakinn morguninn eftir af ákveðnu banki á dyrnar. „Qui est lá? Kom inn, kom inn.” Dyrnar opnuðust. Á þröskuldin- um stóð Colin móður og másandi og rjóður í framan. Michael stóð fyrir aftan hann. „Herra Poirot, herra Poirot.” „Nú, já?” Poirot settist upp i rúminu. „Er komið morgunte? Nei, emð þetta þér, Colin. Hvað hefur komið fyrir?” Colin varð orðfall eitt andartak. Hanr virtist vera afar æstur. 1 rauninni var það nátthúfan, sem Poirot var með á höfðinu, sem gerði hann orðlausan. Hann náði sér þó fljótlega og talaði. „Ég held — herra Poirot, getið þér hjálpað okkur? Það hefur svolit- ið hryllilegt komið fyrir.” „Hefur eitthvað komið fyrir? En hvað?” „Það — það er Bridget. Hún er þarna úti í snjónum. Ég held — hún hvorki hreyfir sig né segir neitt og — oh, það er best að þér komið sjálfir og sjáið þetta með eigin augum. Ég óttast mjög — að hún sé dáin.” „Hvað?” Poirot þeytti ofan af sér rúmteppinu. „Mademoiselle Bridg- et — dáin!” „Ég held — ég held að einhver hafi drepið hana. Það — það er blóð og — ó komið nú!” „Já, auðvitað, auðvitað. Ég kem nú þegar.” Poirot stakk fótunum í útiskóna sina og klæddi sig í loðfóðraðan yfirfrakka utan yfir náttfötin, því að ekki vildi hann láta sér verða kalt. „Égkem,” sagði hann. „Ég kem undir eins. Hafið þið vakið fólkið?” „Nei, nei. Enn hef ég ekki sagt neinum þetta nema yður. Ég hélt að það væri best. Afi og amma em enn ekki komin á fætur. Niðri er verið að leggja á morgunveröarborðið, en ég sagði Peverell gamla ekki neitt. GRÆNU SKALDSÖGURNAR CHWttom BRONTt SÖOUSAfN HtlMltANNA ftACHEL FIEUD o Þetta allt og himinninn Iika eftir Rachel Field er óviðjafnanleg saga, byggð á sannsögulegu efni,, FyrirtveimárumhófSögusafnheimilannaútgáfu á nýjum bókaflokki undir heitinu Grænu skáldsögurnar. í flokknum em komnar þessar bækur: 1Á hverfanda hveli eftir Margaret Mitchell í þýðingu Amórs Sigurjónssonar. Þettaereinhverfrægasta skáldsaga allra tíma, magnþrungin og spennandi. 2Jane Eyre eftir Carlotte Bronté hefur verið ein mest lesna enska skáldsagan síðan hún kom út 1847. Og enn þann dag í dag er hún gefin út í stórum upplögum víða um heim. Heitar ástir eftir Joy Packer. Á fmmmálinu heitir saga þessi Boomerang og er sögusvið hennar S- Afríka. Þeir atburðir, sem hún greinir frá em þó á engan hátt staðbundnir og gæti hún því gerst hvar sem væri í heimi okkár. Þetta er ósvikin ástarsaga, eins og nafnið bendir til. SÖGUSAFN HEIMILANNA Slmi 81694 Pósthólf 1214 Reykjavlk 51. TBL. VIKAN 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.