Vikan

Issue

Vikan - 16.12.1976, Page 55

Vikan - 16.12.1976, Page 55
Meðal anmirra orða Enginn hafði lagað til á skrifstof- unni hans — það var ryk i glugga- kistunum. Hann leit fram í herberg- ið fyrir framan. Fröken Lind var ókomin, og það var merkilegt. Hún kom fyrst þegar klukkuna vantaði fimmtán mínútur í níu. Hún mætti Hansen á leiðinni inn. — Ertu ennþá með blettavatn í skúffunni þinni — ég hefi sullað kaffi á mig? sagði hann. — Það held ég ekki, svaraði Kari bara. Hún settist, yddaði blýantana og tók upp sím- ann til að hringja. Hún fékk ekki samband út og hringdi á Fríðu og sagði: — Láttu mig hafa línu út — ég hefi ekki ótakmarkaðan tima. — Já, svaraði Fríða um leið, Kari geturðu ekki passað simaborðið fyrir mig í einn klukkutíma í dag, ég þarf að skreppa frá. — Því miður, það get ég ekki, svaraði Kari. Nú fór Kari að koma alltaf klukkan átta á morgnana eða fimmtán mínútur yfir, og hún var aldrei eina minútu fram yfir sinn vinnutíma. Hún tók 45 mínútur í hádegismat, en ekki hálf tíma eins og áður (allir aðrir tóku minnst 45 minútur). Hún leysti sín verk af hendi óað- finnanlega, en heldur ekkert meira. Friða var fyrst til að kvarta: — Hver heldur hún eiginlega að hún sé? Frú Berg var sammála: — Hún er svo eigingjörn og sjálfselsk, að það hálfa væri nóg. Dahlberg forstjóri var ergilegur. Kari vann sitt verk fullkomlega, en samt — Þegar hann kom heim um kvöldið og teygði úr sér á sófanum sagði hann við konu sina: — Dásamlegt að vera kominn heim. Það var svo mikið að gera á skrifstofunni i dag. Friða var snefsin á símanum og notaði stór orð við þá yngstu í fyrirtækinu. Hansen bókhaldari keypti konfektkassa og gaf frúnni. Frú Berg sagði manninum sínum, að það væri tóm vitleysa, að hann væri kominn með ýstru — það væri nú eitthvað annað sagði hún. Og svo — einn drungalegan vetr- armorgun fann fröken Kari Lind þrjá túlípana i vatnsglasi á skrif- borðinu sínu, þegar hún mætti til vinnu. Þetta voru bara þrir ósköp venjulegir gulir túlípanar með venjulegum grænum blöðum, en það var eins og þeir endurköstuðu fallegri birtu yfir ritvélina og papp- irana á borðinu. Gunnar tók eftir túlípönunum, þegar hann kom seinna um daginn: — Fallegir, sagði hann — mjög fallegir! Ættum við ekki annars að skreppa út og fá okkur góðan mat? — Jú, kannski það, sagði Kari. Rétt á eftir kom Gunnar með fallegan kristalsvasa, sem var af söludeildinni: Taktu þennan vasa — glasið hæfir ekki svona fallegum blómum. — Þúsund þakkir, sagði Kari, og bros hennar var jafn glansandi og kalt og jólaskrautsískristallarnir sem hún hafði sett niður í kassann fyrir nokkrum vikum. Fyrir hverja Þegar líður nær vetrarnóttum, fara menn að sperra eyrun og bíða eftir boðskap dagskrárstjóra ríkis- útvarpsins í þeirri von, að hleypt verði af stokkunum nýjum þáttum, eða gamlir vinsælir þættir hefji aftur göngu sína eftir andleysi sumarsins. Eitthvað var boðskapurinn mátt- leysislegur um síðustu veturnætuv. Ég man satt að segja ekki eftir öðrum nýjungum en þætti Einars og Árna á sunnudagsmorgnum, og aðrar breytingar voru helst fólgnar í því að færa morgunbænina fram um fimm mínútur og morgunstund barnanna um fimmtán mínútur og óskalög sjúklinga um heilan sólar- hring. Ösköp held ég yrði mikil bót að því, ef afnumið yrði einkaleyfi Rik- isútvarpsins til útvarpsrekstrurs. Það er nefnilega með útvarpsrekst- urinn eins og annað á vegum hins opinbera, að stefnan virðist helst fólgin í því að reyna að fæla menn frá þvi að njóta þess arna. Rétt eins og Strætisvagnar Reykjavíkur virðast stefna markvisst að því að fækka farþegum, að ekki sé nú minnst á skipulegan niðurskurð námsmanna, þá virðist þeim, sem útvarpssendingum stjórna, standa gjörsamlega á sama, hvort nokkur hlustar á þær. Að minnsta kosti fullyrði ég, að það er ekkert tillit tekið til úti- vinnandi fólks, fólks, sem fer að heiman frá sér til vinnu fyrir kl. átta á morgnana og þarf að hlusta á drungalegan guðræknissón og íslensk einsöngslög og jafnvel barnasögur á leið i vinnuna, eins og það séu nú einhver börn að hlusta á útvarpslestur kl. átta að morgni. Ég tek það fram, að ég hef ekkert á móti þessu efni í sjálfu sér, en mér finnst fráleitt að demba þvi yfir fólk á þessum ókristilega tíma, þegar menn þurfa einmitt svo sárlega á einhverju fjörgandi að halda. Það er ekkert tillit tekið til fólks, semvinnurslík störf, að ekki kemur til greina að hafa útvarp í gangi er útvarpið allan daginn, eins og hendir víst á einstaka vinnustað fólks, sem skreiðist heim til sín einhvern tíma milli fimm og sjö og reynir svo að bæta sér upp erfiði og svefnleysi vikunnar með því, að lúra fram eftir um helgar. Til þess að koma nú örugglega í veg fyrir, að þetta fólk hlusti nokkurn tíma á útvtup, er eina þættinum, sem nokkurt nýja- bragð er að. og þeim eina, sem sameinar á myndarlegan hátt skemmtun og fróðleik og tengsl við fólk vítt og breitt um landið, troðið inn i dagskrána snemma á sunnudagsmorgnum. Og mér fannst þeir þarna hjá útvarpinu beinlínis hlakka yfir þessari ráð- stöfun. Það vantaði bara, að þeir segðu berum orðum: — Gott á aum- ingjana, nú verða þeir að rífa sig upp á sunnudagsmorgnum, éf þeir vilja endilega taka þátt í þessu með okkur. Annars finnst mér stórmerkilegt, hvað dagskrárstjórum virðist illa við að koma efniskynningum á framfæri. Dagblöðin gera flest eitthvað í því að kynna efni út- varps og sjónvarp, og má furðulegt heita, að þau skuli ekki hafa gefist upp á þvi að grafa þessi leyndar- mál upp. Þessa þjónustu kann almenningur vel að meta, og er ekki vafamál, að kynningar blaðanna ráða miklu um það. hvað hlustað er á i útvarpinu. Það gegnir kannski öðru máli með sjónvarp, sem er víst hvort eð er opið á flestum heim- ilum þann tíma, sem sjónvarpað er. Reyndar eiga þeir til skemmtileg- heit þarna á Skúlagötunni. þótt þau virðist dálítið tilviljanakennd. Að minnsta kosti býst ég ekki við, að það hafi verið skipulagt á dagskrá. þegar Ragnheiður Ásta las nýlega frétt um heimsmet japana nokkurs i pipureykingum þvert ofan í frétt af hreppsnefndarfundi úti á landi. með sínum vandlega framburði og án þess greind yrði hin minnsta spaug- semi í rómnum. En mér fannst gaman. K.H. 51. TBL. VIKAN 55

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.