Vikan - 30.03.1978, Page 46
Látið drauminn rætast...
NJÓTIÐ LÍFSINS
IFERÐ MEÐ SUNNU
Nú býður Sunna upp á dagflug til allra eftirsóttustu sólarlandanna.
Hvergi fjölbreyttara ferðaval.
SPANN MALLORCA - COSTA DEL SOL - COSTA BRAVA -
KANARÍEYJAR
ÍTALÍA SORRENTO - KAPRÍ - RÓM
GRIKKLAND aþenustrendur - eyjarnar rhodos
OG KORFÚ - SKEMMTIFERÐASKIP
PORTÚGAL ESTORIL - LISSABON
Skrifstofur Sunnu á öllum dvalarstöðum með þjálfuðu íslensku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Barnagæsla og leikskóli með íslenskum fóstrum.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Dagflug með rúmgóðum þotum.
ÞÚSUNDIR ÁNÆGÐRA VIÐSKIPTAVINA VHLJA SUNNUFERÐ ÁR EFTIR ÁR
BANKASTRÆTI 10. SÍMAR 29322 - 16400 - 12070 - 25060
ÁST ÞEIRRA
SIGRAÐI
heima í Tékkóslóvakíu, fengi aldrei
að heimsœkja œttland sitt, aldrei að
sjá foreldra sína.
Þetta var á dögum kalda stríðsins.
Það hefði verið litið á Olgu sem
föðurlandssvikara, og hún óskaði
ekki eftir slíku.
Með tárin í augunum reyndi hún
að skýra tilfinningar sínar og
aðstæður.
— Ég óska einskis fremur en að
giftast þér... en við verðum að gera
það á réttan hátt,..það verður að
vera rétt samkvæmt tékkneskum
lögum....
Harold skildiafstöðuhennar mæta
vel og sagðist ætla að sækja um
vegabréfsáritun til Tékkóslóvakiu
svo fljótt sem auðið væri, svo að þau
gætu í sameiningu sótt um leyfi
yfirvaldanna til að giftast. Þar með
hófst barátta, sem var ólíkt erfiðara
fyrir þau að vinna heldur en gull-
verðlaunin á Olympíuleikjunum.
Eftir margháttaða erfiðleika
hittust þau aftur í Prag. Og nú hófst
endalaus ganga milli hinna ýmsu
yfirvalda. Sá fjöldi af eyðublöðum
og fyrirspurnarblöðum, sem þeim
var gert að útfylla, virtist engan
enda ætla að taka, Þeim var
tilkynnt, að það gæti tekið marga
mánuði að fjalla um umsókn þeirra.
Þau voru bæði örvæntingarfull. Til
að reyna að flýta fyrir málinu
skrifaði Olga beint til forseta Tékkó-
slóvakíu. Tveim dögum síðar rann
vegabréfaáritun Harolds út. Yfir-
völdin vildu ekki framlengja dvalar-
leyfið, og hann fór til í talíu.
Meðan Harold barðist fyrir að fá
vegabréfsáritun á ný, var Olga
kölluð fyrir forsetann. Hún full-
vissaði hann um, að hún myndi
keppa áfram fyrir þjóð sína, þó að
hún væri gift Bandaríkjamanni.
Forsetinn lofaði að hugsa málið
gaumgæfilega.
Að viku liðinni var Harold búinn
að fá vegabréfsáritun á ný. Hann og
Olga hófu pislargöngu sína á nýjan
leik. Þau fóru frá einni skrifstofunni
á aðra, og hvergi gátu þau fengið
endanlegt svar. Barátta þeirra
virtist vonlaus. En svo gerðist
kraftaverkið. Daginn áður en
Harold átti að fara úr landi, fékk
hann tilkynningu um, að dvalarleyfi
hans væri framlengt og að þau
fengju leyfi til að giftast.
Á brúdkaupsdaginn voru
þau hyllt af mannfjöldanum.
Vígslan var ákveðin á virkum degi
— af nærgætni við yfirvöldin.