Vikan - 04.05.1978, Page 50
MIKIÐ ÚRVAL
Allar nánari upplýsingar:
PENNAVIÐGERÐIN
Ingólfsstræti 2, simi 13271
Snjöll inn-
rétting á
aðeins 24
fermetrum
Sumarbústaður þarf ekki að
vera uein höll til að þjóna sínum
tilgangi. Aðalatriðið er að nýta
plássið sem allra best, og hér
fyrir ofan er dæmi úr dönsku
blaði um ákaflega góða nýtingu
á aðeins 24 fermetra plássi. Öll
innréttingin er úr endingar-
góðum efnum, sem þola vel
hnjask — kókosteppi er á gólfi,
panill á neðri hluta veggjanna,
en fyrir ofan er sumarlegt, frískt
veggfóður.
Rúm barnanna eru aðskilin
frá rúmum foreldranna með
bókaskáp, en á daginn eru rúm
foreldranna notuð sem sæti.
Margir púðar í fjörlegum litum
lífga upp á herbergið á daginn.
Undir öllum rúmunum eru
skúffur, þar sem hægt er að
geyma jafnt fatnað sem áhöld.
Yfir borðunum eru tveir eins
lampar með þrennskonar ljós-
styrkleika. því gott er að dempa
ljósin, þegar börnin eru farin í
rúmið. Það er snjallt hjá arki-
tektinum, að hafa rúllugardínu
fyrir framan barnarúmin, því
draga má hana niður þegar
börnin eru sofnuð, og þá
truflar ljósið frá eldhúsborðinu
þau ekki.
50 VIKAN 18. TBL.