Vikan - 08.06.1978, Page 33
Og grasið
vex og vex
Það hefir alltaf verið
nokkuð vandamál, þegar
maður fer í sumarfríið, að
grasið sprettur og sprettur,
og enginn er til að slá það.
Ef til vill í sumum tilvikum
er hægt að biðja
nágrannann um að slá fyrir
sig og frúna hans um að
vökva inniplönturnar. En
það mun nú líklega vera í
færri tilvikunum, að það sé
hægt. Heyrst hefir, að
lengi hafi verið í athugun
að finna efni, sem dregur
úr grassprettunni. Þessi
óskadraumur virðist nú
vera í þann veginn að ræt-
ast, því innan tíðar, eða
komið, mun koma á
markaðinn efni, sem
kallast EMBARK. Þetta
efni hefir verið til rann-
sóknar um tíma og með
góðum árangri. Það mun
eiga að sprauta Embark á
grasflötinn 5 dögum fyrir
eða eftir slátt og getur það
dregið úr vexti í allt að 2
mánuði.
Bananaábætir
4-6 stk. bananar
20 gr smjör
1 1/2 msk. sykur
safi úr 1 sítrónu
50 gr hakkaðar hnetur
112 lítre ís (vanillu eða núgga)
brætt súkkulaði
rjómi.
Afhýðið bananana og skerið þá
eftir endilöngu. Brúnið þá í
smjöri á pönnu og stráið sykri og
hnetum yfir, dreypið sítrónusaf-
anum yfir. Færið bananana yfir
á heitt fat og leggið ísinn í
skifum yfir. Hellið bráðnu
súkkulaði yfir í strípum og berið
rjóma með.
4*3%-
■ >
.
■■