Vikan - 05.06.1980, Blaðsíða 7
A innfelldu myndinni getur afl lita varning sem margir óframfœrnir karlar
viija aðeins kaupa þarna neðanjarðar.
mannaferðum frammi á klósettunum og
getum því ekki haft útvarp.
— Hvers vegna lentir þú í þessu
starfi?
— Kunningi minn benti mér á að
starfið væri laust, eftir að ég fékk
uppsögnina hjá Fötum. Ég er með
spengdan hrygg, vegna þess að ég þjáist
af brjóskrýrnun í baki. Starfið hentar
mér mjög vel af því að ég get setið eða
staðið uppréttur að vild — það á vel við
þessa bakveiki. Svo að ég byrjaði hér 17.
iúni 1975.
fremur erilsamt starf þegar mest er að
gera en rólegt utan mesta annatímans.
Flestir koma hér við milli hálfellefu á
morgnana og sex eftir hádegi. Þegar
búið er að loka búðum er eins og allt fólk
hverfi úr miðborginni. Það er svo fátt
sem boðið er upp á hér í miðborginni á
kvöldin. Þá er þetta dauð borg. Svo
bætist við, að flestir vilja ganga fyrir
bensíni. Hér áður fyrr notaði fólk
fæturna.
— Verðurðu var við slæma umgengni?
— Flestir ganga mjög vel um. Það er
helst að það sé einhver órói í ungling-
um. en aðeins í undantekningartilfell-
um láta þeir í Ijósi skemmdarfýsn. En
flestir sem koma hingað eru ágætir í
umgengni og framkomu.
Fyrstu árin sem ég vann hér bar
mikið á svokölluðum rónum. En bæði
hafa þeir fleiri staði til að leita á núna og
þeir fá mikið meiri hjálp nú til dags. Ég
var farinn að þekkja marga róna í sjón
en ég get sagt að þeim hefur hreinlega
fækkað. Allmargir þeirra sem ég hef séð
til hér eru „frelsaðir”. Ég hef séð þá á
götu, edrú og snyrtilega.
— Þið seljið smokka hérna. Selst
mikið af þeim?
— Já, talsvert. Mörgum miðaldra
mönnum finnst þægilegra að koma
hingað en að fara í apótek. Fólk af minni
kynslóð, en ég er 59 ára, hefur vanist því
að þetta sé feimnismál. Sumir fullorðnir
menn eru svo viðkvæmir í þessum
málum að þeir hætta við allt og flýta sér
burt ef einhver kemur niður tröppurnar
á meðan þeir eru að bera upp erindið.
Unglingarnir eru aftur á móti ófeimnir
við að biðja um verjur, mórallinn er
annar hjá unga fólkinu. Svo kemur fyrir
að hingað koma konur til að kaupa
verjur, jafnvel oftar en einu sinni.
— Hver eru launakjörin?
— Starfið heyrir undir hreinsunar-
deild Reykjavíkurborgar. en við teljumst
tilheyra félagssvæði Dagsbrúnar. Við
fáum borgað timakaup eftir
Dagsbrúnar-taxta, og þótt undarlegt
megi virðast hef ég verið lausráðinn i
starfiðfrá upphafi.
Launakjörin eru þó betri hjá mér en
áður. Þegar ég byrjaði hérna var
klæðskerakaup 55.000 krónur á mánuði
en ég fékk betur borgað fyrir klósett-
vörsluna. Sem klæðskeri var ég á Iðju-
taxta, en þeir eru smánarlega lágir.
Til skamms tíma fengum við ekkert
vaktaálag, þótt seinni vaktin sé frá 4 til
11 eftir hádegi. Nýlega var bætt úr
þessu.
Við hjónin eigum skuldlausa ibúð i
vesturbænum og yngsti strákurinn býr
hjá okkur. Ég hef i kringum 400.000 i
mánaðarlaun og okkur tékst bærilega að
komast af. -jás
— í hverju felst klósettvarslan?
— Við höfum opið frá 9 á morgnana
til klukkan 11 á kvöldin og vinnum tvi
skiptar vaktir, fyrri og seinni vakt á víxl.
Einn dagur i viku er fridagur.
Við fylgjumst með að vel sé gengið
um klósettin og lítum eftir að þau séu
alltaf boðleg næsta manni. Þetta er
23. tbl. Vikan 7