Vikan - 05.06.1980, Blaðsíða 51
En nú kann einhver lesenda minna að
spyrja: ..Hefur nokkur Islendingur orðið
vitni að þessum undrum. Svarið við
þeirri spurningu er játandi og eru mála-
vextir þessir:
Þann 2. scptember 1978 voru tveir af
stjórnarmönnum Sálarrannsóknafélags
Íslands, (iuðmundur Einarsson verk
fræðingur og Þorgrímur Þorgrímsson
stórkaupmaður. á fundi hjá brasiliska
míðlinum Luiz Gasparetto í Froebel
College i bænum Roehampton á
Englandi. Þeir voru þarna mættir til
þess að taka þátt i þingi Alþjóðasam-
bands spiritista. Þorgrímur lýsti þessu i
grein í MORGNI, tímariti SREl. vetrar
hefti 1979. Þar kemst hann meðal ann
ars svo að orði um þetta:
..Luiz hefur ekki stundað sölu á
myndum þeim sem hann hefur gcrl eða
gert tilraun til þess — enda hefur hann
aldrei lært að teikna. Einmitt þetta
tvennt er óvenjulegt varðandi Lui/
Gasparetto: Það að hafa aldrei lært mál
aralist og hafa aldrei stundað sölu á
framleiðslu sinni. En hann hefur gert
yfir 6000 myndir sem hann bara geymir.
Vitað er um ýmis tilfelli þar sem lista
menn hafa fallið I trans og gert myndir
ólíkar þeim sem þeir gerðu i vöku. Má
þar nefna nöfn eins og William Blake.
sem mun hafa verið í transi mikinn
hluta ævi sinnar. Á nitjándu öld var ekki
óalgengt að óþjálfaðir miðlar máluðu i
transi. en notuðu hæfileikana til að
pretta náungann.
Þá vöktu mikla athygli myndagerðir
Vicorien Sardou og hins óviðjafnanlega
Skota. Davids Duguids. Á þessari öld
hafa komið fram áhugaverðir trans-
listar-sköpuðir eins og Augustin Lesage.
sem var franskur kolanámuverkamaður.
og hálærðir listamenn eins og Austin
Spare og Ingo Swamm. Á Englandi er
kona, sem heitir C'oral Polge. en hún
teiknar myndir af verum sem hún telur
sig sjá umhverfis þá sem sitja miðils-
fundi hjá henni."
En á þessu þingi. sem jreir sóttu þarna
Guðmundur og Þorgrimur. átti einmitt
að sýna hæfileika þessa undursamlega
Brasiliumanns, Luiz Gasparcttos. Þor-
grimur lýsir þessum fundi svo:
..Við biðum full eftirvæntingar. um
það bil 80 manns. í aðalfundarsal skól-
ans. því okkur var sagt að Brasilíu
maðurinn Luiz Gasparetto ætti eftir að
vekja undrun okkar. Dregið hefur verið
fyrir alla glugga svo varla kemst Ijós-
skima i gegn. Hljómlist eftir Bach er leik
in með baksviðshljóm en fundarmenn
höfðu svo hljótt um sig að heyra hefði
mátt saumnál detta.
Luiz Gasparetto situr við borð í
niiðjum sal en kona situr við sama borð
honum til halds og trausts. og er það
móðir hans. Stafli af þykkum teikniörk
um. 55 x 75 cm í ummál. liggur á borði
við hlið hans ásamt oliu- og acryllitatúp-
um i öllum regnbogans litum.
Stundineraðhefjast.
Það er kolniðadimmt í salnum — en
nú er kveikt á tveim litlum, rauðum Ijósa-
perum i um það bil 4ra metra fjarlægð
frá borði Gasparettos.
Ég veiti því athygli að aldeilis ómögu-
legt er að greina einn lit frá öðrum í þess-
ari daufu birtu.
Luiz Gasparetto er byrjaður.
Hann hallar höfði til hliðar — hallar
höfði siðan fram og leggur hægri hönd
yftr litakassana. án þess að horfa á hvað
hann er að gera. Hann opnar hverja lita-
túpuna eftir aðra til þess að liafa þær til-
húnar þegar gripa skal til þeirra. Með
lokuðaugun ræðst hann gegn teikniörk
inni með hægri hendinni og af slíkum
krafti að við liggur að blaðið fari af stað.
en móðir hans gætir þess vel að allt sé i
skorðum.
Ekki eru liðnar nema fjórar minútur
þegar fyrsta myndin er fullgerð. eftir að
hendur hans hafa flogið yfir teikniörkina
með þessum ofsahraða. og siðan undir-
ritar hann hana með nafninu Renoir.
Móðir hans er ekki fyrr búin að taka
hina fullgerðu mynd frá honum en
Gasparetto þrifur nýja örk og byrjar
samstundis á henni. og eins og áður án
þess að horfa á það sem hann er að
mála.
Í þetta skipti voru það augu manns og
sýndist mér hann hafa staðsett þau neðst
á andlitinu. I svipinn hélt ég að nú liefði
honum orðið á í messunni. En eftir þvi
sem hendur hans héldu áfram að fljúga
með ofsahraða um teikniörkina þá
rennur fljótlega upp fyrir mér að hann er
að gera andlitsmyndina á hvolfi.
Þeir sem sáu urðu agndofa.
Hann byrjar á þriðju myndinni og
þrifur til oliulitanna. en notar ekki
pensla heldur bara puttana. Og á ofsa-
hraða beitir hann báðum höndum sam
tímis.”
Áður en Luiz Gasparetto kvaddi
þessa ráðstefnu, sem íslendingarnir tóku
þátt i. þá gaf hann Alþjóðasambandi
spiritista nokkrar þessara mynda og gaf
jafnframt leyfi sitt til þess að fjórar
þeirra skyldu slegnar á uppboði meðal
þátttakenda ráðstefnunnar. Þrjár þeirra
voru slegnar íslendingunum en sú fjórða
fór til Hollands.
Þegar heim kom sýndu þeir Guð-
mundur Einarsson og Þorgrímur Þor-
grímsson svo þessar þrjár myndir á fundi
i Sálarrannsóknafélagi íslands og skýrðu
frá þessari furðulegu reynslu sinni.
Þótt myndimar hér að neðan beri með
sér stileinkenni þriggja frægra lát-
inna meistara málaralistarinnar, þá
eru þær allar gerðar með höndum
miðilsins Luiz Gasparettos. Sú
fremsta er merkt nafni expression-
istans franska Toukxise-Lautrec, og
er blái liturinn ríkjandi i henni.
Næsta mynd er merkt franska mál-
aranum fræga Gauguin og er dæmi-
gerð fyrir stíl hans. Siðasta myndin
er merkt Modigliani, en hann hafði
orðið fyrir áhrifum frá afriskri list,
sem lýsir sér i kerfisbundinni leng-
ingu höfuðs og háls. Í transi málaði
miðillinn Luiz Gasparetto þessar
myndir eftir stjórn hinna látnu
manna á örfáum minútum, stundum
sekúndum. Hann starfar aðallega að
þessu í hálfdimmu. Þessar svart-
hvitu myndir, sem birtast hér, eru að
sjálfsögðu ekki nema stileinkenni
og gefa enga hugmynd um birtu og
glæsileik litanna í þessum meistara-
legu listaverkum framleiddum af
miðli i dásvefni.