Vikan - 05.06.1980, Blaðsíða 45
að stóru dyrunum. sem þær komust að
hindrunarlaust. Júlía losaði um öryggis-
læsinguna og sneri handfanginu, en
dyrnar opnuðust ekki. Dauðskelfd flýtti
hún sér að aðgæta rennilokurnar uppi
og niðri og bjóst við því þá og þegar að
verða gripin aftan frá. Lokurnar voru
báðar dregnar frá. Hún reyndi hand-
fangið aftur og togaði í þunga viðar-
-hurðina, sem haggaðist hvergi.
Betty var aftur farin að kjökra við hlið
hennar. Hún tautaði aftur og aftur á
milli ekkasoganna: ..Það er læst! Það er
læst! Djöfuls skepnurnar! Þeir hafa
læst!"
Júlía leit um öxl. Líkið og Mollie
Meadowson stóðu hlið við hlið hjá
tröppunum í skuggalegu anddyrinu. Þau
sýndu engin merki um að ætla að skipta
sér af þeim. Þau stóðu kyrr á sama stað
á meðan hún barðist við læstar dyrnar.
Betty gafst upp á undan. Hún sneri
sér við og spurði móður sina lágt og
barnalega: ..Hvar er pabbi?”
Jafnvel nafnið virtist bera vott um upp
gjöf hennar. Venjulega nefndi hún báða
foreldra sína skirnamöfnum. En nú.
þegar hún var föst i gildrunni og yfir-
unnin, kaus hún nöfnin, sem hún hafði
notað í bernsku.
Mollie sagði hljóðlega: ,.Í borðstof-
unni. Hann vill þið komið þangað inn.
Þiðbáðar."
..Nei, mamma. Ég vil ekki fara
þangað inn.”
„Viltu að pabbi verði reiður við þig.
Betty?”
„Nei.” Hún þrýsti sér upp að hurð-
inni. „Nei —”
Júlía sagði: „Opnaðu. Ég vil fara
heim.”
,.En Bill vill fá þig. Hann bíður eftir
að þú komir í veisluna.”
„Mike —” Hún þagnaði. Ef Mike
bara . . .
„Hvað með Mike?”
„Hann kemur. Honum seinkaði. en
hann kemur —”
„Hannkemurekki.”
„Hvemig veistu það?”
„Vegna þess að ég veit nákvæmlega
hvar hann er á þessari stundu. Hvers
vegna heldurðu, að honum hafi seinkað
í Manchester? Viðtalstímunum var
breytt, svo hann kæmist ekki hingað.
Gerðu nú eins og Bill vill og hættu þess-
um fáránlegu undanfærslum.”
Bak við lokaðar borðstofudyrnar
heyrði hún enn endalausan og síendur-
tekinn takt trumbunnar, flókinn vef
hljóða, sem virtust ógna geðheilsu henn-
ar. Hún hristi höfuðið eins og það losaði
hana við ólgandi sláttinn. sem varnaði
henni að hugsa rökrétt. En jafnvel þó
hún setti hendur yfir eyru, buldu stöðug
höggin samt á huga hennar og nöktum
taugaendum. Hún sá bendingar Mollie
og að hún sagði eitthvað, en orðin
heyrði hún ekki. Bara djöfullegan
trumbuslátt. sem hún gat ekki lokað úti.
Þegar hún tók hendurnar frá eyrun-
um. heyrði hún Mollie segja: „Gerðu
eitthvað, Gray! Ég get ekki meira —”
Gray?
Gray?
Ó, nei! 0, Guð, nei! Hún hafði ekki
heyrt um nema einn Gray: Gray Jordan.
sem átti að vera faðir hennar. En að
þessi lifandi nár — þessi skuggalega
beinagrind — ó, nei —
Maðurinn sem Mollie nefndi Gray
kom i átt til hennar. Hann var dökk-
klæddur, jafnvel augu hans virtust
svört, þó það væri erfitt að vera viss um
það í flöktandi birtu kertisins. En hún sá
skakka hæðnisbrosið. sem virtist hafa
fest fyrir fullt og allt á hauskúpuandliti
hans, annaðhvort forn vanskapnaður
eða nýlegt slys.
„Júlia, þú gerir eins og húsfreyja
býður þér.”
„Nei.”
Nú voru augun mjög nærri henni,
undnar varirnar aðeins skammt frá.
Hún fann til skyndilegs viðbjóðs og
langaði að kasta upp. „Ó, Guð, nei!"bað
hún tryllingslega. „Ekki það —”
Úr augunum kom blindandi geisli af
svörtu Ijósi og hélt huga hennar föngn-
um, en einhvers staðar úr fjarska, eins
og fyrir enda mikilla undirganga. heyrði
hún hvellan hljóm — hljóð sem minnti
á vél i gangi og á miklum hraða.
„Nei!” hrópaði hún. „Nei! Nei! Nei!”
Hljóðið ágerðist og yfirgnæfði jafnvel
dáleiðandi trumbusláttinn úr hinu her-
berginu. Það var hvellt eins og hljóðið
frá lannlæknabor og nísti i gegnum við-
kvæma kviku innri meðvitundar
hennar. 1 kvöl sinni engdist hún upp við
viðinn í hurðinni, barðist um og kast-
aðist til og frá i örvæntingarfullri við-
leitni sinni að sleppa frá þessu svarta
ljósi og frá hvössum bornum. sem
þrengdi sér dýpra og dýpra inn í hugskot
hennar.
Gray Jordan — ef þetta var þá Gray
Jordan — var að tala. Hann var að skipa
henni að gera eitthvað, en hún vissi ekki
hvað. Hún heyrði ekkert — ekkert ann-
að en skerandi hljóðið, sem reif í eyru
hennar og var ekki hægt að loka úti.
Hljóð, sem var ólýsanlega kvalafyllra en
trumbuslátturinn. sem það yfirgnæfði.
En allt í einu áttaði hún sig. Þó hún
heyrði ekki orðin, skildi hún merkingu
þess sem hann sagði henni. Hann var að
segja henni að fara inn í borðstofuna, að
leita að Bill, að gera eins og hann bauð
henni. Og loks hafði hún ekki kraft til að
berjast á móti.
Hún gekk eins og viljalaust flak eftir
anddyrinu, fram hjá tröppunum og
hikaði með höndina útrétta í átt til borð-
stofudyranna. Hún leit einu sinni um
öxl, en likið, sem Mollie nefndi Gray,
fylgdi fast á hæla hennar og verurnar
með ránfuglsnefin þar á eftir. Betty var
skilin eftir, að minnsta kosti um stund.
Hún hallaði sér upp að læstu útidyrun-
um og dökkt hár hennar féll eins og gróf
blæja yfir annað augað.
Gray Jordan sagði: „Áfram, Júlía!
Ekki hika. Opnaðu.”
Hún heyrði ekki orðin. En skipunin
kom jafnákveðið í huga hennar og hefði
hún heyrt þau. Hún ýtti niður hand-
fanginu, opnaði hægt og gekk inn í ann-
an heim.
(3)
Hún kom ekki inn i kunnuglegt her-
bergið með langa gljáandi borðinu og
átta háum stólum, stóra mahónískenkn-
um milli glugganna og sjávarmyndum
Arthurs Somervilles á veggjunum. Þess i
stað gekk hún inn i skuggalegan gang,
sem hafði engin glögg takmörk. Jafnvel
gólfið var álíka lítið efniskennt og veggir
og loft. Þó það bæri hana uppi, komu og
fóru óhugnanlegir skuggar í gegnum
það, flutu áreynslulaust upp og hurfu á
ný meðsvipuðu lagi.
Lýsingin var hér frábrugðin hinum
herbergjum hússins, því hér voru tvö
svört kerti í stað eins, sitt hvorum megin
við hátt altari. 1 flöktandi birtunni var
erfitt að greina, hve langt var að altar-
inu. Það hefði getað verið risavaxið og
óendanlega langt frá eða minna og nær
henni. Yfir þvi sat vera með geitar-
höfuð, hyrnd og með munn, sem virtist
afskræmdur um alla tíma af kuldalegu
brosi. Framhald í næsta blaði.
í ÞESSARI GLÆSILEGU ÍSBÚÐ GETURÐU
FENGIÐ KAFFI, KAKÓ, KÖKUR, SAMLOKUR,
PIZZUR, HAMBORGARA, PYLSUR, PÆ MEÐ ÍS,
BANANABÁTA, ÍS-MELBA OG ALLA OKKAR
SÍVINSÆLU ÍSRÉTTI.
Lítið inn í isbúöina að
Laugalækó/ og fáið ykkur
kaffi og hressingu/ takið
félagana meö.
frá kl. 9-23.30 I
Allir þekkja ísinn frá Rjómaísgerðinni
ÍSBÚDIN
LAUGALÆK 6 SÍMI 34SSS
23. tbl. VIKan 45