Vikan - 05.06.1980, Page 16
Myndlist
Fljúgandi steinflísar geta skaðað augu myndhöggvarans.
Mest hœtta stafar þó þessum listamönnum af steinrykinu
sem myndast við listiðjuna. Sumir myndhöggvarar hafa
orðið að hcetta störfum vegna atvinnusjúkdóms af þessum
völdum. Ef rykloftið ncer að setjast að í öndunarfærum,
veldurþað m.a. sjúkdómisem nefnist„ryklunga”.
16 Vikan *3. tbl.
Hættu þessari verjast margir myndhögg\>arar með því að
vinna einvörðungu úti undir beru lofti, þegar þeir höggva í
stein. Nemendur Myndlistaskólans róma allir þá góðu
aðstöðu sem þeir hafa í nýja húsnœðinu við Rauðarár-
stíginn, en þangað var skólinn fluttur fyrir tveim árum.
Nægjanlegt gólfrými og sú aðferð að hella vatni yfir
steininn áður en högg\’ið er hefur til miki/la muna dregið úr
rykmenguninni.
Hér til vinstri sést gifsafsteypa sem gerð var með því
að hella gifsi í gifsmót eins og það sem sést hér að ofan á
síðunni. Upprunalega gifsmótið er aftur á móti sjálft af
steypa af frummyndinni sem oftast er gerð úr leir,
annaðhvort rauðleir eða pípuleir. Myndin af karl-
manninum, sem sést hér að neðan, er einmitt unnin í
rauðleir.