Vikan - 05.06.1980, Qupperneq 26
I
Ár trésins í Vikunni
HÁKON BJARNASON:
Frjór
jarðvegur
undirstaða að allri ræktun
öll ræktun, liverju nafni sem nefnist,
ber aldrei fullan árangur nema þvi
aðeins að jarðvegurinn sé myldinn. frjór
og eðlisgóður. Að visu lifa allar plöntur
að mestu á lofti og vatni — koltvísýringi
andrúmsloftsins og jarðvatni — en þær
geta ekki aflað þess nema með hæfilegu
magni næringarefna úr jörðu. Þau eru
nitur (köfnunarefnil fosfór og kalí ásamt
fáeinum öðrum, svonefndum snefil-
efnum, sem sjaldan erskortur á. Á norð-
lægum slóðum heims er einkum skortur
á nitri og þar næst á fosfór.
Það er ekki nóg að henda næringar-
efnum i eða á jörðina, svo sem tilbúnum
áburði eða taði, og telja svo allan vanda
leystan. Jarðvegurinn er heimur ótelj-
andi skordýra og lindýra, bakteria og
sveppa, sem vinna í þágu plantnanna.
Fyrir þvi verður jarðvegur að vera
gljúpur svo að loft og vatn geti flætt um
hartn og rætur plantna vaxið og smogið
um hann. Jarðvegur er hvort tveggja i
Hákon Bjarnason
fyrrverandi
skógræktarstjóri ríkisins
senn. bæði efnaverksmiðja og lifandi
heimur.
Menn ættu að leiða hugann að þvi að
jarðvegurinn. þetta þunna moldarlag á
yfirborði jarðar. er undirstaðan að lifi
grænu plantnanna á jörðinni. Laufblöð
plantna mynda þau lífrænu efna-
sambönd, sem allt okkar líf byggist á.
Allur jarðvegur er næmur og
viðkvæmur fyrir utanaðkomandi áhrif-
um og því er nauðsyn að hafa gát á með-
ferð hans. Þegar jarðvegur spillist
minnkar uppskeran og þegar hann
eyðist hverfur allt líf og jörðin verður
auð og tóm.
Íslenskur jarðvegur er myndaður af
basalti — blágrýti, grágrýti. móbergi og
eldfjallaösku — og er að mestu leyti fok
jörð — löss — eins og flestir vita. Hann
er mjög frábrugðinn jarðvegi allra
nágrannalanda, sem er myndaður úr
forngrýti og á annan hátt. Okkar jarð
vegur hefur ýmsa kosti en einnig mikla
galla. I hann skortir fínan leir svo að
samloðun hans er lítil en hins vegar er
hann sjaldan svo súr að plöntur líði fyrir
það. Auðvelt er að bæta úr göllunum við
garðrækt með íblöndun lífrænna efna.
húsdýraáburði eða ntýrajörð.
Þegar hafist er handa um gerð nýrra
garða þarf nær alltaf að flytja mold og
fyllingarefni að. En áður en það er gert
er nauðsynlegt að athuga undirstöðu
garðsins ef sá jarðvegur, sem fyrir kann
að vera, er mjög grunnur. Allviða er
undirstaðan mjög þétt móhella og á
ýmsurn stöðum er gljúpt hraun. Þykkt
jarðvegs á móhellu má varla vera undir
einum metra þvi annars hættir honum
við að vaðast út í leysingum á vorin. Á
hrauni er jarðvegi hætt við að þorna um
of í þurrkum og þvi verður að bæta ofan
á þunnan jarðveg. Að öðrum kosti geta
tré og runnar visnað og dáið. Sé undir
staða jarðvegs grjótholt eða gróf urð
þarf jarðvegsdýpt varla að vera meira en
tvær skóflustungur.
Þá verður líka að gæta að því, hvort
hætta sé á aðrennsli vatns i garðinn j
rigningum og leysingum. eða hvort
undirstaðan sé of deiglend. Ef svo er.
verður að gera hæfileg ræsi áður en
meira er að gert.
Þegar að því kemur að flytja ntold i
garðinn vill málið oft vandast. Jarð-
vegur i móum og valllendi er að mestu
myndaður af áfoki steinefna, ryks og
sands, en mýrajarðvegur er sambland
áfoks og plöntuleifa. Sá fyrrnefndi er
mjög snauður af næringarefnum og lif-
laus að mestu. Því er hann ónothæfur
sem gróðurmold i garða nema með þvi
að hauga i hann húsdýraáburði eða
blanda hann til helminga góðum mýra-
uppgreftri. Sama máli gildir um svonefnda
„túnmold". Hún er jafnófrjó og
útjörðin þegar undan er skilið efsta gras
rótarlagið. Mýrajarðvegur er misjafn að
gæðum. Efstu lög mýranna eru oft mjög
blönduð áfoki. en þegar neðar dregur
verður mórinn hreinni og þar er meira af
lífrænum efnum, hálfrotnuðum plöntu-
leifum. sem geyma mikið af næringar
efnum. Mýrajarðvegur er svamp
kenndur og sigur mjög saman þegar
hann þornar. Þvi er varhugavert að taka
ferska mýrajörð til uppfyllingar. Hún
þarf að þorna og veðrast áður en hún á
að notast. Eins og nú standa sakir er
helst að fá slíkan jarðveg úr uppgreftri
úr skurðum, en þar fæst stundum
afbragðsgott efni i garðmold. sem endist
bæði vel og lengi með góðri meðferð.
Eigi menn ekki kost á öðru en móa-
eða túnmold i garða sína mun ekki veita
af 2-3 hjólbörum af hrossataði á hverja
10 fermetra og meira mun ekki skaða. I
mýrajörð er gott að blanda sandi og
nokkur skammtur af húsdýraáburði
>
26 Vikan 23. tbl.