Vikan


Vikan - 05.06.1980, Side 29

Vikan - 05.06.1980, Side 29
u Hos Jan Hurtigkarl. 1. grein ahöfn Hos Jan Hurtígkarl lætur akki mikið yfir s6r i ibúðablokkinni. Ljósm.: K.H. krónur fyrir heila flösku af Chateau Pape-Clement 1964 frá Graves í Bordeaux. Bestu kaupin, þótt dýr séu. kunna að vera í hinu fræga Taittinger Brut kampavíni á I75krónur. Við fengum okkur áðurnefnda hálf- flösku af riesling og heila af Cos d’Esturnel 1974 frá St. Estephe i Bordeaux. Rieslingurinn var sæmilegur. en rauðvínið var gott. hafði bæði góðan ilm og gott bragð, enda frá fremur lélegu ári og því orðið vel drykkjarhæft um þessar mundir. Þessi röksemdafærsla kann að virðast skritin. En staðreyndin er sú. að góðir árgangar göfugra vína eru yfirleitt á boðstólum á veitingahúsum löngu áður en þeir verða drykkjarhæfir. í rauninni er mun liklegra, að miðlungs árgangar slíkra vina og lélegir séu komnir i drykkjarhæft ástand. þegar boðið er upp á þá í veitingahúsum. Því miður var vínið borið fram í hinum snobbuðu loftbelgjaglösum. sem stundum eru kölluð Búrgundarglös. en eru það ekki. Það er eins og að drekka úr blómavasa. Ég sníkti mér venjuleg vín- glös. en þá móðgaðist þjónninn svo. að hann lét annan taka við borðinu. Stórbatnaði þá þjónustan, sem hafði verið stærilætisleg áður. Sá galli fylgir stundum góðum veitingahúsum, að þjónar verða óhæfi- lega merkilegir með sig. telja sig eins konar presta i helgidómi. En það getur komið fyrir. að viðskiptavinurinn viti meira um vínglös en þjónninn. Og svo var í þessu tilviki. önd og sjóbirtingur Við vorum tvö, hjónin, og pöntuðum okkur einn matseðil mánaðarins og annan matseðil dagsins. svo og osta- bakka að auki. Víkur þá sögunni að matseðli mánaðarins. Fyrst var boðið uppá andakjötshlaup. Það var þykk sneið af hiaupi með stórum andakjötsbitum. Með í för voru teningar úr soðhlaupi og hrásalat. Þetta var góður matur. sem hét á seðlinum „Ballottine de Canard aux gelées des legumes frais". Siðan kom steiktur sjóbirtingur með rósapaprikusósu. vorlauk. blaðlauk. spínati og kartöfluflögum. Þetta var lika góður matur og hét „Filet de Saumon aux poireaux confits, Berurre de tomate & baie rose”. Þá komu sérpöntuðu ostarnir þrir. allir frá Frakklandi og allir góðir. Að lokum var boðið upp á valhnetuköku, rabarabara-vatnsís. peru- vatnsís. passionsávaxtais og skaftköku. Allt var þetta milt og gott á bragðið. Hvítt, grænt og rautt Þótt þessi matseðill mánaðarins reyndist góður, er tæpast hægt að segja, að hann sómdi einu af fimm bestu veitingahúsum Kaupmannahafnar. Það gerði hins vegar matseðill dagsins. Þar var fyrst boðið upp á stóra sveppi og tvenns konar ferskan spergil. ofnbakað i rjómasósu og mjög gott á bragðið. Næst var boðið upp á einhvern danskan fisk, sem sannarlega minnti á skötusel. Hann var borinn fram i vatns- karsasósu og með i förum var maukaður ferskur tómatur. Fiskurinn hvitur, karsinn grænn og tómatmaukið rautt. Þetta var fallegur réttur og bragðið eftir þvi. Síðan kom það rauðasta lambakjöt. sem ég hef séð. mjög lítið steikt. ásamt mairófum, smágúrkum (courgettes), spinati og kartöfluflögum. Þessi réttur var aldeilis frábær. Loks kom röðin að ostinum og eftir- réttunum, sem áður hefur verið getið. Betra en það besta hér Hér hefur raunar verið talinn upp allur matur, sem var á boðstólum á Hos Jan Hurtigkarl þetta kvöld. Eins og á öðrum góðum veitingahúsum var ekki flaggað neinum löngum fastaseðli. Slikir seðlar gera veitingahús of háð frysti kistum og dósahnífum. Mitt mat er. að Hos Jan Hurtigkarl sé fimmta besta veitingahús Kaupmanna- hafnar og nokkru betra en bestu veitingahús Reykjavikur. Islenskum matreiðslumeisturum væri nær að fara þangað heldur en á Bella C'enter sýningar, þar sem flaggað er gersamlega úreltri matargerðarlist frá risaeðlutíma- bilinu. Jónas Kristjánsson (Hos Jan Hurtigkarl, Dronningens Tværgade 43. simi 15 05 54, lokað sunnudaga og á sumrin einnig laugar dagal. t' I næstu Viku: Anatole 23. tbl. Víkan 29

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.