Vikan


Vikan - 05.06.1980, Qupperneq 42

Vikan - 05.06.1980, Qupperneq 42
Framhaldssaga „Sjáöu, foringi. Hér — og hér. Nýr viður. Nýr lás. Ný málning." En Meadowson-fjölskyldan vildi enga skýringu gefa á skemmdunum. Þær voru reyndar, ef lögreglan hefði bara vilað af því, glögg ábending um hvarf Júlíu Jordan og gáfu einnig visbendingu um það sem á eftir fór. En lögreglan gat með engu móti vitað það. Ekki á þessu stigi málsins. Þvi miður. Annar hluti FÓRNARMESSAN (1) Júlia. Hann hafði aldrei skilið fullkomlega. hvað hún stóð föst á meydómi sínum. Viku eftir að þau hittust fyrst fór hann með hana heim til sín í Muswell Gardens. Hún reikaði um stóru herberg- in tvö, tók sér í hönd bækur, skraut- muni, snyrtilegu bunkana af lagalegum skjölum, sem hann vanii svo oft við heima hjá sér, blöðin vendilega limd saman nteð limbandi og þeim staflað upp á skrifborðinu hans í stofunni. Hún var eins og forvitinn kettlingur með ósvífið nefið niðri i öllu, i skápunum i eldhúsinu hans, i skúffunum i svefnher- berginu. Jafnvel þá vissi hann, að þetta var sú eina rétta. Önnur gat aldrei orðið. Stutt símtal til Friars Hill og þau fóru saman i rúmið eins eðlilega og ef þau hefðu verið búin að vera saman i heilt ár. En fræðilega séð var hún enn hrein mey, þegar þau borðuðu morgunmatinn saman morguninn eftir. Það var hún enn þegar hún hvarf . . . (2) Júlia. Hún fór bara i veisluna vegna þess að Betty Meadowson grátbað hana um það. Foreldrar Bettyar, Bill og Mollie, skipulögðu skemmtan kvöldsins, og veislurnar þeirra höfðu orð á sér að vera taumlausar. Hún sagðist ekki myndu i fara nema Mike kæmi með, og Mollie hringdi sjálf heim til hennar til að segja. að auðvitað væru þau bæði hjartanlega velkomin. En Mike hringdi i hana á skrifstof- unni um fjögurleytið og sagði. að sér seinkaði. Hún hringdi í Betty og sagðist ekki geta komið, og Betty grét í símann. Hún varð að vera í veislunni, foreldrar hennar kröfðust þess, en hún myndi ekki geta haldiðhana út, ef Júlía kæmiekki. Þegar Júlía heyrði ekkasogin í síman- um, fann hún til sterkrar freistingar að leggja á. En hún vissi, að það gat hún ekki gert. „Allt i lagi,” sagði hún, „ég skal koma svolitla stund. En ég þarf að fara snemma. Ég fer út með Mike á morgun.” Hún iðraðist þessa um leið og hún kom inn i Meadowson-húsið. Þetta var með eldri og rúmbetri húsum í hverfinu og þar var allt að þvi niðamyrkur. Það var ekki annað en svart kerti sem stungið var i stút á tómri flösku, sem lýsti eilitið upp. Einhvers staðar djúpt innan úr húsinu heyrðist þungur taktur. ákafur ásláttur á dimmradda trumbu. Betty beið eftir henni i anddyrinu. Hún fylgdi henni upp i herbergið sitt og sagði strax óðamála: „Ó. Júlia, Guði sé lof! Ég hélt. að þú kæmir ekki!” Hún var búin að drekka eitthvað af vini, og orðin streymdu af vörum hennar. „Ég þekki e/iganEngan! Éullt af öfuguggum. Enginn sem við þekkjum . . . Þetta er hræðilegt! Og þegar ég hélt, að þú kæmir ekki —" Júlía sagði: „Getum við ekki kveikt. Bet? Af hverju eru bara kerti?” „Það var hugmynd Bills. Þetta á að gera andrúmsloftið vinalegra eða eitt- hvað.” Hún flissaði taugaóstyrk. „Það er jsegar orðið það. Þau eru farin að hátta sig í borðstofunni.” „Er nokkur ástæða til. að við kveikj um ekki Ijósin hérna uppi?" Júlia gekk að rofanum á veggnunt. Það srhall I honum. en ekkert Ijós kom. Herbergið var næstiim niðantyrkt. Það var aðeins^ eitt kerti á snyrtiborðinu, og hrikalegar skuggamyndir flöktu á veggjunum, þegar hún hreyfði sig. „Jeremias minn, Bet, á þetta að vera fyndið?” „Það er slökkt á aðalrofanum. Má ekki svindla, sagði Bill. Segulbandstækin ganga fyrir rafhlöðum.” Skyndilega faðmaði hún Júliu að sér. „Ó, Júlía. ég er hrædd! Ég vildi, að hann Mike þinn væri hérna. I alvöru. Jule, þetta eru allt eintóm ógeð. Ég veit ekki, hvar þau hafa grafið þau upp —” Dyrnar opnuðust og Mollie Meadow- son stóð þar. Hún slagaði svolitið til. Hún starði blindum augum á kertaljós- ið. „Bill vill fá þig, Bet. Og þig, Júlía. Af hverju felið þið ykkur hér?” Hún var búin að búa í Englandi í tuttugu ár, en talaði enn eins og fólkið gerði í Wollon gong fyrir sunnan Sidney. þar sem hún var borin og barnfædd. Hún var í appelsínugulum buxum. sem sveipuðust svo þétt um mjaðmir hennar að þær hefðu getað verið önnur húð hennar. Við þær var hún í hvitri blússu, sem var alveg fráhneppt. Undir henni voru brjóst hennar nakin. Bet sagði: „Mollie, er —” „Ég spurði af hverju þið væruð i fel- urn?” „Við erum ekki í felum. Ég fór með Júliu hingað upp. Hún var að koma.” Niðri hlýtur einhver að hafa opnað hurð. þvi hljóðið hækkaði. sami villti, krefjandi frumskógatakturinn. Júlia horfði heilluð á Mollie Meadowson. sem sveigðist til og frá eftir taktinum.Betty var enn að afsaka sig, en Mollie virtist ekki heyra til hennar lengur. Hún var Lengsta handfang í heinti heitir (íme Einkavinur húsmóöurinnar Fyrir fjölskylduna — fyrirtæki — fjölbýlishús Er sjálfvirkur opnari fyrir bílskúrshurúir. í stað þess að berjast við hurðina styður þú á hnapp inni í hlýjum bílnum, hurðin opnast sjálfkrafa og kveikir Ijðs. Þú ekur inn, styður á hnappinn og hurðin lokast. í' tæléinu er sérstakur rafeindaminnislykill þannig að ekkcrt annað tæki getur opnað þinn skúr — eða þína vörugeymslu. Það kostar ekkert að kynnast þessari tækni, sláðu á þráðinn — við erum í síma 32030. 30ÁRA REYNSLA Í USA — YEIR 800 TÆKl SELD HÉRLENDIS ASTRA Ármúla 42 • Ars ábyrgö • Fullkomin viðgeröa- og varahlutaþjónusta FráUSA MEYJAR- FÓRNIN horfin á vald trumbusláttarins á neðri hæðinni. Trumbuslátturinn var ólíkur öllu. sem Júlía hafði áður heyrt. Hann bergmálaði um húsið eins og sláttur risavaxins hjarta, drundi við í myrkrinu og kerta- bjarmanum. Þetta var truflandi, ógn- vekjandi. Áslátturinn virtist leita og finna svörun djúpt innra með henni. svörun og viðbrögð, sem voru allt að því kynferðisleg. Betty sagði:.,.Við verðum vist að fara. Júlía, Bill verðurekki ánægður með —” Yfir hjartslátt trumbunnar sagði Júlia: „Ég er ekki viss um, að ég vilji vera áfram. Kannski er þetta ekki veisla. sem ég kann að meta.” Mollie nam skyndilega staðar. „Hvernig veistu það? Þú hefur ekki séðhana enn!" „Við verðum vist að fara niður, Júlía." „Af hverju kemurðu ekki heim með mér? Við yrðum einar —" Mollie sagði hvasst: „Það fer enginn eitt eða neitt! Þetta er okkar veisla. og þið andskotist að vera áfram! Báðar tvær. Komið ykkur nú niður og enga þvælu!” Hún skipti svo óvænt skapi, að það var næstum óttalegt. Drauma- svipurinn var strokinn af henni; hún var allt i einu orðin hörð og varir hennar fast klemmdar aftur. „Áfram með ykkur! Báðar tvær!" Bet brotnaði saman. „Konidu með mér, Jule —" Andartak hvarflaði uppreisn að Júlíu. En Bet var aftur farin að gráta og togaði í handlegg hennar. Það svaraði ekki kostnaði að fara að rífast, hugsaði hún. Ef þær Bet stæðu saman, gætu þær ráðið við hvað sem þær rækjust á niðri, þó að Bet gæti það ekki ein. Og það var ekki eins og það væri eitthvað hræðilegt. sem biði þeirra. Þetta var heimili Bills Meadowson og veisla á hans vegum. 42 Vlkan 23. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.