Vikan - 14.08.1980, Síða 14
Glefsur úr blöðum
Vefjið flöskum með eitri i inn i sand-
pappir og límið aftur með einangrunar-
bandi. Ef börn eru í húsinu, læsið þau þá
niður i litla málmkassa.
Philadelphia Record
ATHUOIÐ:
Hver sá sem fer lengra en hingað mun
drukkna
SAMKVÆMT FYRIRMÆLUM
YFIRVALDA .
Skilti i Essex
Dr. Thrush, sérfræðingur í berklarann-
sóknum. var spurður hvernig það hefði
atvikast að hann skolaði niður nokkrum
milljónum berklabaktería:
Sp. Hvernig fannst þér þær?
Dr. Thrush: Þetta gerðist óvart. Eg
var að rannsaka vatn með berkla-
bakteríum I. Heitt var í veðri og ég fékk
mér vatnsglas, en komsl þá að raun um
að ég hafði tæmt glasið með bakteri-
unum í. 1 þrjár vikur skemmti ég mér við
alls konar ímyndanir, ojg þegar þær voru
liðnar, og ekkert hafði gerst varð ég
mjögglaður.
Dailv Mail
Helmingurinn af húsi Alfredo
Rontardo er i Venezuela og hinn
helmingurinn i Columbiu. Það gæti
varla verið betra fyrir hann, því hann er
eftirlýstur af lögreglunni fyrir afbrot
sem aðeins er refsivert í Venezuela. í
hvert sinn sem komið er til að handtaka
hann, fer hann inn í svefnherbergi. Það
er í Columbíu.
Weekend
Undirskriftin á 10£ ávísuninni leit
kunnuglega út. en fr. Joseph Broussard i
Houston Texas gat ómögulega minnst
þess að hafa skrifað hana, þegar hún var
að fara yfir bankayfirlitið. Bankinn
athugaði málið og komst að raun um
að til var önnur fr. Joseph Broussard í
bókunum. Þessar tvær konur skrifa nafn
sitt næstum nákvæmlega eins, eru báðar
1.65 á hæð, jafnþungar og hafa sama
heimilislækni.
Þegar þær báru saman bækur sínar
um eiginmennina. komust þær að raun
um að báðir voru frá Nex Iberia i
Louisiana, eru báðir dökkhærðir og aka
báðir bil af sömu.gerð, lit og árgerð.
Annar Josephanna er þó þrem árum
yngri. nokkuð lágvaxnari og þyngri en
hinn.
Weekend
Atvinna i boði: Maður óskast til að vinna
við kjarnakleyfa ísótópa, virkar
sameindakeðjuverkanir og þriggja fasa.
cyclotróniska úraníum photosyr.þezcsa.
Engin starfsreynsla nauðsynleg.
Auglýsingí
The Mines Magazine
FOLIES PARISIENNE
Sjáið nektina i fossunum
DJARFUR BLÆJUDANS: MEYJAN
OG MYRKRAHÖFÐINGINN.
Einstæður viðburður í sögu nektar-
sýninganna. Les Beaux Mannequins de
Parisienne. Austrænar og evrópskar
nektardansmeyjar. Ellilífeyrisþegar á
mánudögum.
A uglýsing i blaði
i Leicester
Lásaþjófnaðir hafa færst mjög í vöxt að
undanförnu i Dessuk i Egyptalandi.
Hinkum eru það lásar á verslunum. sem
stoliðer. Lögreglan telurað þjófaflokkar
sem sérhæfa sig i lásaþjófnuðum séu
áhvrgir fyrir hvörfunum..
Úr egypsku blaði
Vissulega er foreldrum og kennurum
hér um að kenna. Þeir eru að leika sér
bæði á aðalumferðargötunum og einnig
á hliðargötunum, fleygja húfunum
sínum á undan sér og elta þær út um
allt. og i alls kyns annars konar leikjum.
Úr bréft til'
hlaðs i Ealing
Látið okkur annast farangur ykkar
VIÐ SENDUM HANN 1 ALLAR
ATTIR.
Auglýsingfrá japönsku
futningafyrirtæki
KONUNGURINN NEITAR AÐ
HAFA ÉTIÐ6 MANNS.
/ yrirsögn i
The Guardian
Oft er haft á orði að núorðið taki lengri
tíma að komast yfir hafið en komast á
skrifstofu. Við skulum vona að þessi
nýja áætlun kúvqndi þvi.
Dailv Telegraph
Þegar ákærði James Smithers var
spurður, hvort hann hefði einhvern
hinna stolnu muna undir höndum,
svaraði hann: Já. ég er með eitthvað af
þessu heima og ég get látið ykkur fá það,
ef þið komið með mér heim núna.
Weston lögregluþjónn sagði að á
heimili ákærða, Gilkes Land, Hindes-
bury Road, hefði ákærði látið hann fá
marglitan baðslopp, sjö skyrtur, þrennar
nærbuxur, tvö sokkapör, poka af Ivorol,
rakvél með blöðum, eitt par af eyrna-
lokkum, gluggahlera. einn 5-centa
pening frá USA, eitt blys og siðan sagt:
HLEGIÐ Á
KOSTNAÐ
ANNARRA
14 Vikan 33. tbl.