Vikan


Vikan - 14.08.1980, Síða 39

Vikan - 14.08.1980, Síða 39
Húsnœðismálaráðherrann segi afsér! — Mig vantar íbúð! Fólksmergðin á Ráðhús- torginu varð meiri og meiri með hverjum klukkutímanum sem leið. Fólk var á einu máli um að maðurinn ætti eftir að sitja þarna lengi enn. — Nú fellum við stöngina, sagði yfirlögregluþjónninn. — Kemur ekki til mála, svaraði lögreglustjórinn og glotti, — látum hann sitja eins lengi og hann vill. Að lokum dettur hann niður, þetta er vinstrisinni og það skiptir ekki máli hvort þeir eru einum fleiri eða færri. En Boris sat sem fastast. Megi allir heimsvaldasinnaðir húsaleiguokrarar drepast! stóð á borðanum daginn eftir. Og daginn þar á eftir var engan bilbug að finna á Boris og þá stóð: Úr NA TO! Fleiri ibúðir! Öll blöðin fjölluðu um mál hans og nú var hann búinn að vera þarna i fjóra daga. Stórmerkilegt! Og nú voru útlensk blöð komin i málið. — Ungur dani sveltir sig í hel uppi á flaggstöng borgarinnar í mótmælaskyni við húsnæðis- eklu. — Getið þið ekki farið að koma drengstaulanum niður? spurði borgarstjórinn. — Það er gegn öllum lögum að hann setjist að á flaggstönginni okkar. Hún er ætluð fyrir fána okkar á fæðingardegi drottningarinnar og hvernig myndi fara ef unglingar myndu setjast að á öllum flaggstöngum landsins — hvernig gætum við þá flaggað á fæðingardegi drottningarinnar0 — Það er ekkert sem við getum gerl fyrr en við fáum skipanir frá æðri stöðum, sagði lögreglustjórinn. Málið var reifað i ríkisstjórninni. Ákveðið var að láta drenginn sitja áfram en nota tímann til að koma upp varðstöðu við aðrar helstu flagg- stengur Danaveldis og ydda toppana þannig að enginn gæti komið sér þar fyrir til langframa. Næsta morgun sat Boris enn á flaggstönginni með enn nýjan borða: Hálshöggx ’ið húsnæðismála - stjóra! — Lægri húsaleigu! — Stærra húsnæði! — Látum þá riku borga! — Nú förum við upp eftir honum og köstum honum niður. hvæsti yfirlögreglumaðurinn gegnum samanbitnar varirnar. — Það er ekki hægt, sagði lögreglustjórinn, við erum nógu óvinsælir fyrir. Við verðum að reyna að lokka strákinn niður án þess að lögreglan blandi sér um of í málið. Ég hef góða hugmynd! Lögreglustjórinn smellti með fingrunum. — Sendum mann upp til hans með skilaboð um að móðir hans sé látin! Ef ærleg taug er í manninum kemur hann niður til að verða við jarðarförina. Og þá getum við gripið hann ...! Allir voru sammála um að þetta væri snjallræði og svo var maður sendur upp með skila- boðin. „Móðir yðar er látin. Komið niður!” Og hvernig brást Boris við? Hann lét sig síga niður í hálfa stöng og sat þar sem fastast. Þýð.: ej 33. tbl. VIKan 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.