Vikan


Vikan - 19.02.1981, Síða 8

Vikan - 19.02.1981, Síða 8
Jónas Kristjánsson skrifar um nýju veitingahúsin Góður matur, gömul Torfa Hér sést af stigaskörinni fram veitingasalinn á efri hœðinni. Annað fallegasta húsið Torfan er önnur af tveimur fallegustu veitingastofum landsins, enda sett upp í gömlu og grónu húsi eins og Naustið. Hin smekkvísa innrétting sýnir nænta virðingu fyrir sögulegu samhengi. Hún fellur að húsinu eins og hún sé frá sama tíma. Þar á ofan er matur og þjónusta með því betra sem kostur er á hér á landi. Að vísu er matargerð I sama, gamla, þunga. danska stílnum og önnur matreiðsla íslenskra veitingahúsa. En sem slík er hún í hugmyndaríkara og fjölbreyttara lagi. Húsið verður bráðum hálfrar annarrar aldar gamalt. reist árið 1838 Það er látlaust, fallegt og I samræmi, ef frá er skilinn turninn, sem er síðari tíma viðbót, misheppnuð leið til að tengja húsið Latinuskólanum handan Amtmannsstigs. 1 fordyri er skráð fróðleg saga hússins. Og á veggjunt má sjá myndir frá endur- reisn þess, er úr því var gerð veitinga- stofan Torfan. Aðrar myndir á veggjum eru breytilegar eftir árstimum og sýna lciksvið islenskra leiktjaldahöfunda. Eldhúsið og um 50 sæta matstofa eru á jarðhæð. Uppi eru svo 20 sæti til viðbótar undir stórum kvisti hússins. Innréttingar eru I sama stíl uppi og niðri, en þó heldur opnari og kuldalegri uppi. þótt þar sé blómskrúðið meira. Loftin með reitum eru hvít og glugga- búnaður er einnig hvitur. Rúðurnar eru litlar eins og í gamla daga. Mildilega Ijós- grænir veggir fara vel við þessa gömlu hefð. Brakandi trégólfið er nógu lélegt til að vera upprunalegt. Nýmóðins eru loftljósin yfir borðum og þægilegu, skandinavisku tréstólarnir. Uppi á lofti er hægt að fá til einka- samkvæma rómantiskt herbergi undir súð. Þennan litla heint fylla svo köflóttir borðdúkar úr hörblöndu, kerti og jóla- rósir. Að öllu samanlögðu er þetta prýði- legur ramrni góðrar máltíðar. Tréklossar út úr stíl Ungar stúlkur gengu vingjarnlega um beina. Þær voru aldeilis ekki á þvi að láta rnenn kaupa og borga heila skammta, þegar hálfir voru nógir. Heiðarleiki i yiðræðum um matar- pöntun vekur traust í upphafi og stuðlar að betri stemmningu. Eini gallinn við þjónustuna var skipulagður að ofan. Stúlkurnar gengu um á tréklossum, sem hömruðu gólfið látlaust. Af því að Torfan er ekki í Amsterdam, mætti benda á inniskó i staðinn, svona til að hlifa hlustum matargesta. Meiri tillitssemi kom fram I bak- grunnstónlist, sem var engin. Á þessum ný VEITINGAHÚS Fyrri hluta liðins árs skrifaði Jónas Kristjánsson ritstjóri um íslensk veitingahús fyrir Vikuna. Þessir þættir vöktu mikla og óskipta athygli og ber enn við að spurt sé i hvaða blaði Jónas hafi skrifað um þetta húsiðeða hitt. Siðan hafa býsna margir nýir matsölustaðir bæst í hópinn. Er þvi vel við hæfi að gefa umsögn um þessa nýju staði líka, og er sú yfirferð nú hafin. 1 þessu tölublaði er fjallað um Torfuna, en i næstu Viku má lesa um Vesturslóð. Síðan verður haldið áfram eins og efni standa til. Er ekki að efa að lesendur kunna jafnvel að meta þessa þætti og þá sem áður eru komnir — og kannski betur! síbyljutímum hvilir fátt taugarnar betur en þögnin, friður fyrir tónlist. Og I and- rúmslofti Torfunnar eiga tónsnældur ekki heima. Þetta ber sérstaklega að þakka. Árstíðabundinn seðill Matseðlar Torfunnar eru þrír, seðill dagsins, mánaðarins og fastaseðillinn. Þrír réttir voru á seðli dagsins, 10 á seðli desembermánaðar og heilir 35 réttir á fastaseðlinum. Þessi mikli fjöldi rétta er greinilega út I hött. Mánaðarseðillinn er skemmtileg nýjung hér á landi. Með honum fá matreiðslumennirnir tækifæri til að haga vali hráefna eftir árstíðum. Þarna var skráð rjúpa og hreindýr, aða og hörpuskel. smákarfi og ný síld, allt mjög freistandi. Ég mæli hiklaust með, að gestir í Torfunni einbeiti sér að mánaðar- seðlinum. Þar er að finna hið óvenjulega og óvænta. Matseðill dagsins og fasta- seðillinn eru kunnuglegri. Fást þó tvær útgáfur skötusels á fastaseðlinum. Meðlæti í ferskara lagi Allur matur í Torfunni leit glæsilega út, þegar hann var borinn á borð. Íslenskir matreiðslumenn kunna þann þátt yfirleitt vel. Hins vegar var meðlæti yfirleitt of margvislegt og of mikið, einn- ig samkvæmt íslenskri hefð. Meðlætið i Torfunni var þó ekki eins staðlað og víða er hér á landi. Sama sósan og sama soðna grænmetið fylgdi ekki öllum réttum, heldur reyndu kokkarnir að laga meðlætið að kjötinu eða fiskinum, sem var þungamiðja hvers réttar. 8 Vikan 8. tbl,

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.