Vikan


Vikan - 19.02.1981, Blaðsíða 17

Vikan - 19.02.1981, Blaðsíða 17
Framhaldssaga alla þína hjálp.” Svo fór ég aftur í bílinn minn. Nú var klukkan orðin níu. Það tæki mig um það bil tvo tíma með því að aka hratt að komast til Los Angeles. Kannski yrði bið á þvi að ég næði pakkanum. Ég kæmist ekki til fundar við Klaus fyrr en um þrjúleytið. Ég gekk hröðum skrefum að póst- húsihu og áttaði mig svo á þvi að ég hafði ekki símanúmerið hjá Klaus. Ég fletti upp í símaskránni en hann var ekki skráður þar. Svitinn bogaði af mér. Ég hringdi í upplýsingar. Simastúlkan var mjög elskuleg. „Þetta er neyðartilfelli,” sagði ég. „Ég verð að ná sambandi við herra Edwin Klaus. Hann býr á býlinu við Shannon Road. Vinsamlegast gefðu mér samband jtangað.” „Augnablik." Það varð þögn, svo kom hún aftur í símann. „Mér þykir það leitt. en númerið er ekki skráð." „Ég veit það. Sonur hans slasaðist illa í bilslysi. Ég verð að láta föður hans vita. Þetta er Lewis læknir sem talar." Langt hik. „Allt i lagi. læknir. Ég skal gefa þér samband.” Ég þerraði svitann af andlitinu og beið. Svo heyrðist kuldaleg rödd Bennys i símanum. „Hvaðer það?” „Gefðu mér samband við Klaus> æpti ég næstum. „Þetta er Lucas.” „Af hverju heldurðu að hann kæri sig um að tala við þig, skepna? Dinglaðu þér!" „Náðu i hann, apinn þinn!”orgaði ég. Það varð þögn, svo heyrði ég manna- mál, loks kom Klaus í símann. „Já, herra Lucas?” „Lögreglan er búin að fara með pakkann til Los Angeles. Ég er núna á leiðinni þangað en ég kemst ekki til þin fyrr en klukkan fjögur.” „Á minútunni fjögur, herra Lucas. Ef þú ert ekki kominn þá fær Benny að gera það sem hann lystir við konuna þína,” og hann lagði á. Perrell lögregluforingi var stuttur og þrekinn maður. Hann vissi að ég lék golf með Brannigan svo ég fékk fyrsta flokks þjónustu. „Ég er búinn að greiða úr þessu fyrir þig, herra Lucas,” sagði hann. „Við erum að vísu ekki búnir að finna Maclain, en við fundum undirntann hans, sem er á leiðinni til Sharnville aftur. Hann sagði mér að Maclain ætlaði að eyða helginni með einhverjum kvenmanni, en hann hefði sagt sér að afhenda þennan pakka, sem þú hefur hvað mestar áhyggjur af, í bankanum. Hann gerði það klukkan hálftíu í morgun og fékk móttökukvittun." Hann rétti mér bréfmiða. Hjartað barðist í brjósti mér þegar ég leitámiðann. Móttekinn einn pakki frá herra Lucas, Sharnville, til herra Farrell Brannigan. Lois Shelton, einkaritari hr. Brannigans. Ég þekkti Lois Shelton ágætlega. „Þakka þér fyrir, fulltrúi. Ég ætla þá að fara i bankann." Þegar ég kom aftur í bílinn minn spurði ég sjálfan mig hvort Brannigan væri búinn að opna pakkann og lesa yfirlýsingu mína. Ég spurði eftir ungfrú Shelton þegar ég kom í bankann. Sjtúlkan í móttökunni brosti til mín. F „Gjörðu svo vel, herra Lucas. Þú ettir að vera farinn að rata.” Ég tók lyftuna upp á efstu hæð og gekk inn í skrifstofu Lois Shelton. Hún var hávaxin, dökkhærð, grönn og snotur, án þess að vera lagleg. „Nei, Larry, hvað ert þú að vilja hér?” spurði hún og ýtti aftur skrif- borðsstólnum sínum. „Þú kvittaðir fyrir pakka til F.B.," sagði ég. „Er hann búinn að fá hann?” Svitinn streymdi niður andlit mitt og rödin var hás. „Er eitthvað að?” Henni var brugðið og hún reis á fætur. „Er hann búinn að fá hann?” „Pakkinn liggur á skrifborðinu hans núna. Hann er í helgarfríi. Er þetta eitt- hvaðmikilvægt?” „Er hann ekki við?” „Nei.... hann fór í gær. Hann. sagðist ætla að taka sér frí um helgina og leika golf.” „Ég var að komasteð því að reikni- vélin min er vitlaus. Tölurnar i pakkanum eru allar snarvitlausar. Ef F.B. sér þær sparkar hann mér út í hafs- auga." Hún hló. „Vertu ekki svona áhyggjufullur. Þetta getur komið fyrir. Ég skal ná í pakkann fyrir þig.” Meðan ég beið flaug mér nokkuð i hug. Ég var búinn að taka afrit af yfir- lýsingu minni og segulböndunum sem Klaus hafði nú undir höndum. Því skyldi ég ekki gera eitt afritið enn? Ég leit á úrið mitt. Klukkan var rétt rúmlega tólf. Ef ég vann hratt gat ég samt verið kominn til Sharnville klukk- an fjögur. Lois kom inn með pakkann. „Lois — gerðu mér greiða. Geturðu lánað mér tvö segulbandstæki og Ijósrit- unarvél?” „Auðvitað. Komdu meðmér.” Hún fór með mig inn i litla skrifstofu. „Gjörðu svo vel: tvö segulbönd og Ijósritúnarvél. Var það eitthvað fleira?” „Nei... þetta er ágætt. Ég verð fljótur.” Hún heyrði að síminn hringdi á skrif- borðinu sínu, veifaði til mín og fór. Það tók mig rúmlega klukkustund að taka eftir segulböndunum tveimur og Ijósrita yfirlýsinguna mína. Ég Ijósritaði lika skuldabréfin. Ég bjó aftur um bögg- -ulinn, stakk svo Ijósritunum af yfirlýs- ingu minni og skuldabréfunum í umslag ásamt segulböndunum, lokaði umslag- inu og skrifaði á það: Afhendist hr. Brannigan 5. júli og ekkifyrr. j dag var 29. júní. Þarna var ég kom- inn með tíma til aðgerða. Ef Klaus sneri alveg á mig og léti drepa mig hefði Brannigan samt nægilegar sannanir á hann undir höndum, en ef ég yrði hepp- inn og lifði innbrotið af gæti ég sótt pakkann aftur til Lois. Ég fór inn i skrifstofu hennar og setti pakkann á skrifborðið. „Lois, ég ætla að biðja þig um að afhenda F.B. þetta fimmta júlí og ekki fyrr. Þetta eru hugmyndir að nýjum öryggisráðstöfunum. Ég er enn að vinna að þeim. Ef þú hefur ekkert heyrt frá mér 4. júlí láttu hann þá fá þetta næsta morgun. Kannski skipti ég um skoðun og þá hringi ég í þig og kem svo og sæki þetta. Þetta hljómar svolítið eins og James Bond-saga, en þetta skiptir mig miklu máli. Allt í lagi?" Lois kinkaði kolli en virtist ringluð. „Ég læsi þetta inni i peningaskápnum mínum. Þetta er lítill vandi." „Þakka þér fyrir. Ég verð að komast aftur til Sharnville.” Ég sendi henni fing- urkoss, fór með lyftunni niður á jarð- hæð með pakkann i höndunum, settist inn í bílinn minn og tók stefnuna aftur til Sharnville. Ég ók upp veginn að húsi Klaus og vísarnir á úrinu m'ínu mjökuðust í átt að 15.15. Benny opnaði útidyrnai unt leiðog ég gekk upp þrepin. „Þér tókst það þá, skepna." sagði hann. „Mín óheppni. Ég var farinn að hlakka til að taka hóruna þina i gegn." Ég gekk inn í stofuna þar sem Klaus sat við skrifborð sitt og setti pakkann fyrir framan hann. „Opnaðu hann, herra Lucas." Ég reif af snærið og brúnan umbúða pappírinn, opnaði skjalatöskuna og sýndi honum frumritið af yfirlýsing- unni. segulböndin tvö og fölsuðu skulda bréfin. Hann kinkaði kolli. „Þú hefur gert eins og þér var sagt. Það var skynsamlegt, herra Lucas." Hann starði á mig og það var glampi i ís- gráum augunt hans sem skaut mér skelk i bringu. Framh. I nœsta hlaði. Fjölbreytt úrval tískuvara frá enskum og þýskum fyrirtækjum. Ú'rval fatnaðar fyrir konur á öllum aldri. Verið velkomin HAFNARSTRÆTI 4 SÍMI 13350 8. tbl. Vikan 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.