Vikan


Vikan - 19.02.1981, Page 19

Vikan - 19.02.1981, Page 19
Fjölskyldumál skaðsemi sem áfengisneysla þeirra getur valdið. Hvað segja sérfræðingar á sviði áfengismála um notkun áfengis á meðgöngutíma? Ulf Rydberg, sem er sérfræðingur í áfengisrannsóknum við Karólínska sjúkrahúsið í Stokkhólmi, hefur ýmislegt til málanna að leggja í [ressu sambandi. Hann vinnur nú ásamt fleirum að rannsókn um börn áfengis- sjúkra kvenna, og enda þótt ekki sé búið að kunngera rannsóknina opinberlega hefur hún vakið mikla athygii í fjöl- miðlum, ekki síst þar sem það er algjör nýjung fyrir marga að áfengi geti valdið skaða í fósturlifi. Rtydberg hefur í viðtali nefnt þrjár konur sem til hans hafa leitað í sambandi við áhyggjur út af áfengisneyslu á meðgöngutíma. Ein þeirra hafði fyrir venju að drekka nokkur glös af iéttu víni næstum daglega áður en hún vissi að hún var komin um þrjá mánuði á leið. Hún hafði einnig verið í nokkrum partíum og þá drukkið enn meira og fundið vel á sér. Þessi kona hætti alveg allri áfengisneyslu þegar hún vissi af þungun og íhugaði fóstureyðingu vegna áfengisnotkunar sinnar. Ulf Ryd- berg réð konunni frá því að fá fóstur- eyðingu en sagði jafnframt að hann gæti ekki algjörlega róað hana með því að ekkert hefði komið fyrir fóstrið. Hann sagði einnig að enn væri of lítið vitað um áhrif áfengis á fóstur til að geta fullviss- að konuna en að það væri aðeins vitað að mikil og langvarandi misnotkun ylli fósturskemmdum. Hvar mörkin liggja er hins vegar erfitt að segja til um. Önnur kona, sem leitaði til Rydbergs, fékk þau ráð að skynsamlegast væri að hún fengi fóstureyðingu, þar sem hún hafði drukkið um það bil eina þriggja pela flösku af sterku áfengi frá byrjun meðgöngu. Þá áleit hann líkurnar á sköddun fósturs af völdum áfengis það miklar að ekki ætti að taka þá áhættu. Þriðja tilfellið likist því fyrsta, en þar var um unga stúlku að ræða sem smakkaði yfirleitt lítið vín en fór I Suðurlandaferð í frii og drakk tals- vert mikið I stuttan tíma, án þess að vita að hún væri ófrisk. Henni var ekki ráðlagt að fá fóstureyðingu og reynt var að róa hana með því að segja að ósenni- legt væri að fóstrið hefði skaddast. Ulf Rydberg segir að erfitt sé að segja til um hvar mörkin um skaðsemi áfengis liggja, en af því að ástæða sé til að hafa sem mest öryggi á meðgöngutima ráðleggi hann mæðrum að smakka ekki áfengi á þessum tíma. Samkvæmt þessari skoðun hans hefur nú verið gefinn út bæklingur til ófrískra kvenna, jrar sem m.a. segir: „Reyndu að bragða ekki sterka drykki, vín né öl, til þess að vera viss um að þú skaddir ekki þá nýju manneskju sem vex í líkama þinum." Setning sem efalaust er erfið fyrir margar konur því mörgum finnst að meðgöngutíminn sé nógu erfiður þó ekki þurfi líka að neita sér um að bragða smávegis vín, ef maður hefur ánægju af þvi á annað borð. Sköddun fósturs af völdum áfengis Sköddun af völdum áfengis skiptir Rydberg i tvo hópa. Á fyrstu þremur mánuðunum getur mikil áfengisneysla valdið skemmdum á beinagrind, í andliti og hjarta. Barnið fær oft sérkennilegt útlit, hefur stutt á miili augnanna og vanskapaðan efri kjálka. Þessi sköddun lagast ekki seinna í lífinu. Ef haldið er áfram að misnota áfengi geta komið fram skemmdir á síðasta hluta meðgöngutima, eins og að barnið fæðist minna en eðlilegt er talið og hefur lítið höfuð, sem getur haft áhrif á vöxt heilans. Fylgjan er oft einnig minni en hún ætti að vera. Sköddun á seinni hluta meðgöngutímans gemr lagast en það er ekkert sem hægt er að fullvissa um. Frekari tákn um hvernig áfengis- notkun mæðra á meðgöngutima sýnir sig í fari barna eru árásargjöm börn. börn sem eru haldin ofvirkni og mjög tilfinninganæm börn. Hversu mikið má drekka? Þessa spurningu verður sennilega hver og ein kona að gera upp við sjálfa sig. Það er álitið að í Svíþjóð fæðist eitt barn af þúsund með alvarlegar fóstur- skemmdir af völdum áfengis en I Frakklandi, þar sem áfengisnotkun er rnikil, eitt barnaf hverjum tvö hundruð. Bandaríkin eru álitin liggja frekar ofar en Norðurlönd hvað þetta snertir, en í þekktum bandarískum rannsóknum kemur I ljós að sérfræðingar telja litlar líkur á fósturskemmdum af völdum áfengis ef dagleg neysla móður er undir átta sentílitrum af sterku víni á dag. Spurningunni er erfitt að svara og vilja fáir vísindamenn sennilega svara henni alveg tvímælalaust, þó að allir virðist vara við mjög mikilli áfengisneyslu á meðgöngutíma. L3 8. tbl.Vikan 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.