Vikan - 19.02.1981, Page 39
Erlent
myndatöku stóð og hún hefur haldið
áfram að stækka siðan.
Nú er hún meir en 1.85 á hæð og hún
býst við að verða að minnsta kosti 1.90.
„Getur það ekki orðið vandamál fyrir
þig?” var hún spurð.
„1 sumum tilfellum áreiðanlega,”
segir hún.
„Þá er ég látin fara úr skónum þegar
verið er að taka nærmyndir. Mótleikar-
arnir heimta það.”
1 Hollywood er hún kölluð kyntákn.
„Ertu það?" er hún spurð.
„Nei,” segir hún, „svo sannarlega
ekki. Og ég er heldur ekki sjálf í nektar-
senunum. Þá er staðgengill fenginn.”
„Hvað um nektarsenurnar i Pretty
Baby, kvikmyndinni sem þú slóst í
gegn með?”
„Ég var ekki nema 11 ára þá og gerði
mér alls ekki grein fyrir atriðinu,” segir
hún. „Pretty Baby er besta myndin mín
til þessa." Brooke er metnaðargjörn. „Ég
vildi gjarna verða betri leikkona,” segir
hún, „og ég geri mér grein fyrir þvi að ég
á eftir að -þroskast mikið áður en ég
verð fullvaxta kona. Næsta mynd sem
ég«laík í verður Endless Love (Endalaus
ást) sem Franco Zefirelli leikstýrir. Þar
tek ég ekki þátt i neinum nektarsenum
heldur — það verða staðgenglar að sjá
um. En ég get treyst því að það sem
Zefirelli gerir verður bæði smekklegt og
fagurt."
Hvað um stjórnarformennskuna?
Teri, móðir Brooke, er mikil viðskipta-
kona. Hún stýrir nú kvikmyndafélagi
Brooke og fylgir þar með þeirri
Hollywood-hefð að hvenær sem útlit er
fyrir að vel gangi einhvers staðar er
stofnað fjölskyldufyrirtæki. Faðir
Brooke var aðstoðarforstjóri stórs
bandarísks snyrtivörufyrirtækis svo það
var ekkert undarlegt að Brooke væri
farin að auglýsa sápu 11 mánaða gömul.
1965. „Ég var nakin á þeirri mynd,”
segir hún.
Foreldrar hennar skildu eftir stutt
hjónaband. faðir hennar var aðeins 23
ára þá en móðir hennar þrítug. Faðir
hennar er nú kvæntur á nýjan leik og
býr á Long Island. Brooke reynir að
hitta hann eina helgi í mánuði. Hann vill
sem minnst af frægð dóttur sinnar vita
en þeim kemur ágætlega saman. Hann
kom ekki á frumsýninguna á Pretty
Baby á sínum tíma, lét sér nægja að
senda blóm. En henni finnst hann ekki
sinna hinum krökkunum sínum nógu
mikið.
Mamma hennar er alltaf í grennd-
inni. þegar hún er að leika, en þó hefur
komið fyrir að hún hefur verið útilokuð
frá upptökum um tíma vegna afskipta-
semi. Þeir sem gerst þekkja til þykjast þó
geta fullyrt að móðir hennar sé reglulega
indæl manneskja og láti hagsmuni
stelpunnar alltaf vera I fyrirrúmi.
Brooke er í skóla 3-4 tíma á dag og á sér
13 ára meö mömmu sinni, þœr
skemmta sár saman.
Og ein myndin enn, til að sýna að
hún er nú bara krakki.
Og i rólegheitunum með pabba
sínum.
sínar vinkonur en er litið farin að fara út
með strákum. Hún er þó farin að hafa
áhuga en þykist lítinn tíma hafa til að
sinna þeim. I Ameríku fara samskipti
unglinga eftir föstum formúlum sem
kallast „dating” upp á amerískuna.
Mamma hennar. Teri, hefur verið á
„föstu” í 10 ár með olíujöfri. Bob
Karsian að nafni. Brooke kvað vera
dálítið afbrýðisöm og reyndi eitt sinn að
fá móður sina til að lofa sér að giftast
ekki. Mamma hennar var fljót að
komast að samkomulagi og lofaði að
giftast ekki á undan dótturinni.
Brooke er dýravinur. „Hestar eru
uppáhaldið, auðvitað,” segir hún, „en ég
á einn hund líka, fjóra ketti og kaninu.”
Kannski er hægt að kalla hana venju-
legan krakka, hver veit?
Og við birtum auðvitað akki
nektarmyndir, hér er hún ársgömul
og farin að sitja fyrir í auglýsingum,
en skýlir nekt sinni.
8. tbl.Vikan 39