Vikan - 26.02.1981, Blaðsíða 47
mm
Fjóra
tíma að
ákveða
„Fari það allt fjandans til,"0 hrópaði
Thomas McGuire, ?9 ára San Fransisco-
búi, til starandi mannfjöldans fyrir neðan
um leið og hann fleygði sér út um brotinn
glugga á 14. hæð háhýsis nokkurs. I LSD-
vímu hafði þessi ungi Ameríkani tekið sér
hamar í hönd og brotið rúðu á fasteigna-
sölu. Hann hafði tekið LSD-töfluna til að
„öðlast hugrekki ', eins og hann orðaði
það. Hann hikaði í fjórar klukkustundir
við að framkvæma þessa örlagariku fyrir-
ætlan sína, fjögurra klukkustunda barátta
milli lífsviljans og þess viðbjóðs sem
Thomas hafði orðið á i Irfinu, sem lyktaði
með því að hann fórnaði lífinu.
„Ógnþrunginni.þögn sló yfir mannfjöld-
ann á þessum sekúndubrotum sem tók
hann að þeytast niður á götuna," sagði
David Sims, Ijósmyndarinn sem tók
þessar einstöku myndir. Lögreglan,
sálfræðingarnir og blaðamennirnir voru
stjarfir, enginn hafði getað fengið
McGuire ofan af fyrirætlan sinni þegar á
reyndi. Meðan McGuire hékk á blábrún
Irfs og dauða í brotna glugganum fyrir
ofan mannfjöldann sagði hann frá Itfi
sínu. Hann var bæði eiturlyfjaneytandi og
kynvillingur og honum sagðist svo frá:
„Þegar ég var búinn að taka eiturlyfið í
morgun var égkominn á það stig sem svo
margir náungar eins og ég komast á. Það
eina sem mig langaði til að gera var eitt-
hvað krassandi. Mér fannst ég lifa i ást-
leysi og ég skammast mín fyrir lífsmáta
minn. Þess vegna ætla ég að binda enda á
þettn allt."