Vikan - 26.02.1981, Blaðsíða 12
Höfundur: James Hadley Chase Þýöandi: Magnea Matthíasdóttir
8. hluti
Eftir drykklanga þögn hét hann
áfram: „Ef ég hefði verið annar
eins viðvaningur og þú hefði ég gert tvö
afrit til viðbótar af segulböndunum og
ljósritað yfirlýsinguna og skuldabréfin
áður en ég lét frá mér innihald skjala-
töskunnar... Ef ég hefði verið viðvan-
ingur eins og þú, herra Lucas, hefði ég
skilið afritin eftir i bankanum með fyrir-
mælum um að afhenda herra Brannigan
þau þegar hann sneri til baka eftir golf-
helgina sína. Gerðirðu það, herra
Lucas?”
Hann er djöfull! heyrði ég í anda
Glendu segja örvæntingarfulla.
Einhvern veginn tókst mér að halda
andliti mínu svipbrigðalausu. Einhvern
veginn tókst mér að mæta spyrjandi
augnaráði hans.
„Ég vildi að guð gæfi að ég hefði
hugsað út í það," sagði ég hásum rómi.
Bros hans lét kalt vatn renna mér
milliskinnsoghörunds.
„Ég hef í hyggju að hringja i ungfrú
Shelton og þú spyrð hana hvort pakk-
inn, sem þú skildir eftir hjá henni, sé
öruggur."
Benny kom inn i herbergið og hallaði
sér glottandi upp að veggnum.
„Ég hef aukasíma. herra Lucas,
þannig að ég heyri hvað hún segir.”
Hann tók aðsnúa skífunni.
Hann er djöfull!
Það var komið upp um mig og mér
fannst ég vera gjörsigraður þegar ég
sagði: „Hún er meðafrit.”
Hann lagði símtólið á og starði á mig
geðveiku augnaráði sínu. Svo leit hann á
Benny.
„Ég eftirlæt þér þetta viðvaningsfífl.
Reyndu að vera ekki alltof subbulegur.”
Hann reis á fætur, gekk framhjá mér og
út úr herberginu.
Benny glotti ógeðslega og færði sig frá
veggnum.
„Þetta verður mér sönn ánægja,
skepna," sagði hann. „Þegar ég lem ein-
hvern aumingjann þá veit hann af því að
hann hafi verið laminn."
Hann var snöggur i hreyfingum, sló
mig á kjálkann með vinstri hendi og i því
að ég fórnaði höndum sló hann hægri
hnefa, sem var harður sem steinsteypa, í
magann á mér.
Ég komst hægt aftur til meðvitundar.
Langt i fjarska, rétt eins og i draumi,
heyrði ég rödd Glendu: „Ó, ástin mín,
hvað hafa þeir gert þér?”
Ég bærði á mér og sársaukinn var eins
og úlfsbit. Ég hrópaði upp yfir mig.
„Ekki hreyfa þig.”
Augnalok mín voru þung en ég
neyddi mig til að opna augun. Ég sá
rautt hár Glendu ógreinilega, likt og i
þoku, svo greindi ég andlit hennar.
„Ekki segja neitt. Biddu, Larry. Ekki
hreyfa þig. Bíddu bara.”
Augnalok mín voru of þung til að
. Milljón skipt í þrjá
hluta er ekki sérlega
spennandi. Nú ætla ég að
gera þér tilboð, góurinn.
Þú færð Glendu og
fimmtíu þúsund og ég fœ
afganginn. Líst þér á
það?”
Sá hlær
best...
IX Vikan 9. tbl.