Vikan - 26.02.1981, Blaðsíða 8
Jónas Kristjánsson skrifar um nýju veitingahúsin
Ingunn Nilsen þjónustustúlka við diskinn á Vesturslóð.
Elskuleg
þjónusta í
þægilegu
umhverfi
ÍU1 F\
Veslurslóö er ein af þessum |jt|u
veitingastofum, sem opnað hafa á undan-
förnunt misserum, íslenskri veitinga
mennsku til nokkurrar fremdar. Hún
hefur ýmsa galla og einkum þó
takmörkuð markmið. en er að öllu
samanlögðu ánægjuleg viðbót.
Þjónustan er ákaflega geðug og
unthverfið þægilegt. Malseldin er sóma-
sanileg. þótt greina megi, að á hana er
lögð minni áhersla en á það, sem kalla
má andrúmsloft staðarins. Með Vestur-
slóð er aðallega verið að búa til umgjörð
um borðhald.
Vesturslóð reynir eins og sumir fleiri
veitingastaðir að skipta um yfirbragð
ntilli hádegis og kvölds. í hádeginu er
haft bjart og reynt að laða að viðskipta-
vini á þönum. Á kvöldin er skipt yfir i
hálfrökkur til aðfá þá.sem vilja slaka á.
Dökk furan gefur tón
Þetta lánast, einkum þó á kvöldin.
Engu máli skiptir, þótt stíllinn sé ein-
hvers staðar á milli Provenœ og Texas.
Dökk furan upp eftir veggjum og í lofti
gefur ásamt trégólfi hinn þægilega tón.
Borð og stólar eru líka úr tré.
lnnréttingin flippar meira í haslarlegu
veggfóðri og undarlegum gervisvölum í
lofti. i hnökkum frammi við dyr og í
stórri nektarmynd innan um siðsama
kúreka á smærri myndum. Svona bang-
bang veitingahúsastíll er vist i tísku
núna.
Eftirminnilegri eru þó daufar luktir á
veggjum, stór Ijósakróna í lofti. kerti log-
andi i gifurlega vaxdreyptum flöskum á
borðum og einkum þó vel hirtar jóla-
rósirnar á köflóttum dúkum, allt frekar
til þess falliðaðgleðja matarsinnið.
Umhverfið er þó slegið út af elskulegri
þjónustu, ekki bara af hálfu eigandans.
8 Víkan 9. tbl.
heldur lika annars starfsfólks. Og ekki
bara við illræmdan höfund þessarar
greinar. heldur líka við aðra gesti við
önnurborð.
Kúrekatónlistin að baki var lágvær
eins og vera ber. Hún heyrðist bara.
þegar þögn sló á mannskapinn. Hins
vegar mætti gjarna fjölga kassettum, svo
gestir þurfi ekki að heyra sömu lögin
þrisvar sinnum í einni matarsetu.
Fyrst og fremst grillstofa
Matseðill Vesturslóðar telur 30 fasta
rétti og einn rétt dagsins með súpu á
undan. Þessi áherslumunur á föstum og
lausum réttum sýndi á einfaldan hátt. að
hér mátti ekki búast við neinu svifi til
gastrónómískra hæða.
Margir réttir dagsins í hlutfalli við fáa
fastarétti mundu hafa gefið i skyn, að i
eldhúsinu væri i senn lögð áhersla á hið