Vikan - 29.04.1982, Side 11
Umsjón: Hrafnhildur Ljósmyndir: RagnarTh.
Jógaæfingar — V. hluti
Æfingar fyrir alla fjölskylduna:
Nú er komið að síðasta
þætti í jóga að sinni. Eins
og áður hefur komið fram
sýndum við í fyrstu
tveimur hlutunum góðar
æfingar ti/ upphitunar.
Síðan þyngdum við
æfingarnar og í þessum
hluta tökum við fyrir m/ög
áhrifaríkar æfingar. Það eru
góðar jafnvægisæfingar
sem teygja á líkamanum
og ekki síst hryggsúlunni.
HUGS/Ð UMHEILSUNA
Standið traust i fæturna og hafið gott bii á miiii
þeirra. Snúið hægra fæti frá likamanum. Andið
að ykkur, teygið út hendurnar og spennið lær-
vöðvana. Ýtið mjöðmunum til vinstri.
Þessi æfing vindur upp á hrygginn og eykur á
hreyfanleika og mýkt hryggjariiðanna, lið-
böndin styrkjast beggja vegna og blóðstreymið
eykst til baksins. Fyrst sitjið þið flötum
beinum, með beint bak. Andið að ykkur og
beygið vinstri fót yfir þann hægri og standið i
ilina. Beygið hægri fót þannig að hællinn nemi
við vinstri rasskinn. Gripið með hægri hönd um
vinstri rist og setjið vinstri hönd fyrir aftan
bak. Ef ykkur veitist erfitt að halda jafnvæginu
má láta vinstri hönd liggja á góifi. Stellingunni
skal haldið meðan þægilegt er og hafið
öndunina sem jafnasta. Þegar þið eruð komin i
góða þjátfun er gott að halda stellingunni i
hálfa minútu á hvorri hlið. Farið úr stellingunni:
Losið grip handanna. Snúið ofan af bolnum og
réttið úr fótleggjunum. Hristið fæturna og
hreyfið ökkla og hné fram og aftur.
Andið frá ykkur, beygið ykkur niður tilhægri
og ieggið hægri höndniður á ristina. Róttið
vinstri höndina upp, snúið lófanum og horfið á
eftir hendinni. Þegar þið hafið andað frá ykkur
lyftið ykkur hægt upp aftur og dragið andann
djúpt að ykkur. Endurtekið með vinstri hendi.
Ásdis
Jónsdóttir
Sitjið flötum beinum á góHinu.
Beygið vinstri fót gripið um
ökklann, látið ilina hvila í hægri
handarkrika og hnéð i vinstri handar-
krika. Krækið fingrunum saman.
Andið nokkrum sinnum að og frá.
Endurtakið æfinguna með hægra
fæti.
Þegar æfingum er lokið ergottað leggjast á bakið og slaka velá. Finnið hvernig herðarnar
hvila á gótfinu, og mjaðmirnar. ökklar eiga að vera slakir og lófarnir snúa upp. Andið siðan
reglulega að og frá og finnið hvernig hvildin breiðist út um likamann. Gætið þess að liggja
alveg bein.
17. tbl. Vikam II