Vikan - 29.04.1982, Side 26
Umsjón: Hrafnhildur
~xfrc
' >
HANDBRAGÐIÐ
LEYNIR SÉR EKKI
Á öllum sviðum lista hefur listamaðurinn ákveðið yfirbragð, séreinkenni sem
skilur hann frá öðrum Hstamönnum. — Þó margir deili um hvort fatahönnun
eigi að teljast listgrein eður ei þá er ekki hægt að neita því að þar reynir á
sköpunarhæfiieika i ríkum mæli. Ogþar sem annars staðar skara sumir fram
úr á meðan aðrir faiia í gieymskunnar dá.
Á hverju ári halda tískukonungarnir sýningar og kynna þar stefnur og
strauma. Oft viii verða sama yfirbragð á þeim fatnaði sem kemur fram á
sama tíma, til dæmis stutt tíska eitt árið, síð það næsta. En þegar betur er
að gáð kemur í Ijós að nokkrir hönnuðir halda ákveðnum séreinkennum á
öllum fatnaði sem frá þeim fer. Þetta sérstaka yfirbragð ræður síðan úr-
slitum um vinsældir þeirra.
Hérsjáum við nokkra vinsælustu tískuhönnuðina i
París í dag og sýnishorn af fatnaði sem talinn er ein-
kennandi fyrir hvern og einn.
YVES SAINT LAURENT
Y ves Saint Laurent fæddist í Algeirsborg
árið 1936. 17 ára gamall hélt hann til
Parísar og hóf störf hjá hinu fræga
tiskuhúsi Dior. Um svipað leyti og
Dior lést hafði honum tekist að verða
aðalhönnuður fyrirtækisins. En þá var
hann kallaður i herinn og eftir veruna
þar og spítalavist neitaði Diorsam
steypan að ráða hann aftur. Því
stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki árið
1962 og hefur saga
hans verið samfelld
frægðarsaga eftir það.
Hann kom fram
með margháttaðar
nýjungar, stuttu
tiskuna, gegnsæju
blússurnar, safari-
tiskuna og ekki sisl
sigauna-tiskuna
sem fór eins og eldur
i sinu um allan
heim. Aðalsmerki hans fyrr og siðar er
þó leinóttu jakkafötin. Hann fullyrðir
að konur geti klæðst þægilegum, sport-
legum klæðnaði bæði hversdags og
spari. í tiskuheiminum er frægðin fall-
völt og breytingarnar örar en Yves
Saint Laurent hefur tekist að skapa
tísku sem er sigild og stenst fyllilega
innrás alls kyns stundarfyrirbrigða á
ári hverju.
CLAUDE MONTANA
Claude Montana er 31 árs og þrátt
fyrir ítalskt nafn er hann franskur.
Eftir aðskólagöngu hans lauk ferðaðist
hann um Evrópu en settist siðan að í
London þar sem hann hóf feril sinn
sem tiskuhönnuður. 1971 ákvað hann
að freista gæfunnar í Paris og vakti
geysilega athygli árið 1977 með
athyglisverðum tillögum um sport-
fatnað og prjónafatnað. svo og hóf
hann fljótt hönnun á leðurfatnaði.
1979 stofnaði hann fyrirtækið Claude
Montana S.A.
THIERRY
MUGLER
Thierry Mugler er þýskur, fæddur í
Strassborg árið 1948. Hann var ballett-
dansari, vann við Rinaróperuna. Þegar
hann var 17 ára fór hann i listaskóla i
heimabæ sínum og fór þaðan til
Parísar þar sem hann fékk stöðu við
tiskuhúsið „Gudule”. Hann vann síðan
i London, á Ítalíu og i Paris. 1974 hélt
hann sýningu undir eigin nafni og
vakti gifurlega athygli. Hann er mjög
djarfur í allri fatahönnun og fer ekki
troðnar slóðir í þeim efnum. Breiðar
axlarlínur, rennilásar á ská, málm-
plötur og þröngar buxur eru einkenni
hans þessa stundina.
26 ViKan 17. tbl