Vikan - 29.04.1982, Page 42
Stjörnuspá
llniiurinn 2l.m;irs 20.;i|iril
Vikan verður heldur grá
log hversdagsleg til að
byrja með. Þú ert
þreyttur eftir erilsaman
tíma og veitir ekkert af
því að hvíla þig. Hafðu
samband við vin sem
hefur beðið eftir lífs-
marki frá þér lengi.
Kr.'hliinn 22. júni 2.\.júli
Þú hefur lítið sinnt
persónulegum mál-
efnum að undanförnu.
Einhver röskun verður
á högum fjölskyldu
þinnar en með tímanum
fellur allt i Ijúfa löð.
Hjálpaðu einhverjum
nákomnum sem hefur
þörf fyrir.
\uiiin 24.sc*|>(. 2.\.oki.
Lifið brosir við þér
þessa dagana. Þér
hlotnast einhver
upphefð og í kjölfar
hennar máttu eiga von
á öfund vinnufélaga
þinna. Láttu sem þú
takir ekki eftir því og
reyndu að vera starfinu
vaxinn.
Slcintieilin 22.des. 20. jan.
Félagar þinir ráðast í
framkvæmdir og er
ætlast til að þú réttir
þar hjálpandi hönd. Þar
sem þú varst ekki
hafður með í ráðum er
það þér mjög á móti
skapi. Ekki eyða dýr-
mætum tíma í nöldur.
ViuliA 2l.:ipril 2l.ni;ii
Nú fara í hönd góðir
dagar. Þú færð boð sem
þú getur ekki staðist
enda engin ástæða til
annars en að þiggja það.
Þú munt hitta margt
fólk á næstunni og það
er mikið líf allt i
kringum þig.
I.júnid 24. jii11 24. ii<ii*l
Þig hefur lengi langað
til að stofna til kynna
við ákveðna persónu.
Þú færð tækifæri til
þess á næstunni en
gættu þess að verða
ekki fyrir vonbrigðum.
Grasið virðist nefnilega
oft vera grænna hinum
megin.
SporOdrckinn 24.okl. 2.\.u»i.
Einhver óvissa er
rikjandi i þinum mál-
efnum. Þér finnst
óþægilegt að vita ekki
hvað framtíðin ber i
skauti sér. Reyndu að
lifa fyrir liðandi stund og
njóta lífsins.
Valnslicrinn 2l.jan. lO.fchr.
Þú hefur átt i miklu
striði við þig út af
orðrómi sem barst þér
til eyrna. Ef þér þykir
vænt um vin þinn láttu
þá eins og þú heyrir
ekki svona slúður. Þú
munt frá tækifæri til að
sýna hvað í þér býr.
Tiihurarnir 22.mai 2l.júni
Áætlanir þinar og
hugmyndir falla i góðan
jarðveg hjá þínum
nánustu. Vertu
óhræddur við að skipu-
leggja fram i timann,
það getur oft verið
nauðsynlegt. Fram-
undan er annasamur
lími.
\lc)jan 24.ái»úsl 2.\.scpl.
Þú hefur áhyggjur af
ástarmálunum þessa
dagana. Það er algjör
óþarfi því deilumálin
eru smámunir einir. Þú
munt fara i stutt ferða-
lag yfir helgina og á það
eftir að verða mjög
örlagaríkt.
Hogmariurinn 24.nói. 2l.dcs
Nokkrar breytingar
verða á högum þínum.
Þú munt liklega skipta
um aðsetur en hvort
það er til langframa er
undir þér komið. Þú ert
beittur þrýstingi i
ákveðnu máli svo þú
verður að standa fast á
þinni skoðun.
Fiskarnir 20. fchr. 20. mars
í þessari viku er upplagt
að gera allt það sem þú
hefur trassað undan-
farið. Ekki láta það
samt hafa áhrif á verk
sem ætlast er til að þú
Ijúkir á næstunni. Þú
átt von á ánægjulegri
heimsókn.
\'WÍ
Þýö.: Anna
Sjúkrabíllinn var farinn með
hinn slasaða og nú sat ég og
fyllti út eyðublað vegna slysa-
tryggingarinnar. Ég átti ekki í
nokkrum vandræðum með að
fylla út dálkinn fyrir nafn og
heimilisfang hins slasaða. Það
var kaupmaðurinn á horninu,
hann herra Fredreksen smá-
kaupmaður. Staðurinn þar sem
slysið vildi til var nýbónaða
gólfið í forstofunni hjá okkur.
En þegar ég kom að dálkinum
Orsök slyssins var ég mát. Ég sat
lengi og velti þvi fyrir mér
hvernig ég ætti að orða það.
— Getum við ekki bara
skrifað að hann hafi runnið til á
bananahýði á nýbónuðu
gólfinu? spurði ég Maríönnu.
— Nei, það getur þú aldeilis
ekki, maður! í fyrsta lagi datt
hann alls ekki vegna banana-
hýðis og þar að auki getur
maður sagt sér það sjálfur að
á aðdraganda þessa ótrúlega
slyss.
— Skrifaðu það þá á blað.
Það var hugmynd út af fyrir
sig. Undir dálkinn Orsök slyssins
skrifaði ég: Sjá hjálagt. Og hér er
skýrslan mín:
Varðandi orsakir slyssins get ég
upplýst að við erum með
útihurð úr tekki. Þessi útihurð
hefur alltaf staðið á sér í
rigningum, þoku eða hvaða
röku veðri sem er. Konan mín
hefur reynt að fá mig til að
komast að því hvað valdi þessu
og hvers vegna við getum aldrei
opnað framdyrnar án þess að
ýta fast á hurðina með öxl og
upphandlegg, og öllum þunga
likamans að auki, til að hrinda
henni upp. Það er að segja ef við
Athugið
— hurðin stendurá sér
hann hefði ekki fengið alla þessa
áverka af því að renna á gólfinu
okkar. Þú verður að segja
nákvœmlega hvernig þetta allt
vildi til. Við getum ekki tekið
áhættuna af þvi að maðurinn fái
minna út úr tryggingunum bara
af því þú getur ekki tjáð þig.
— Ég get ómögulega útskýrt
allt þetta i sex línum. Það myndi
ekki nokkur maður trúa sögunni
ef ég færi ekki út í smæstu smá-
atriði og gæfi nákvæma lýsingu
erum að fara inn. Þegar við
erum á útleið (sem á ekki við í
þessu tilviki) verðum við að
grípa báðum höndum um
hurðarhúninn, um leið og við
reynum að ýta hurðinni ögn
niður á við, rykkja fast í þar til
við náum henni úr dyra-
karminum. Hún stendur aðal-
lega á sér efst í hægra horni.
Eins og fyrr er sagt hefur
konan mín oftsinnis reynt að fá
mig til að komast að því hvers
42 Vikan X7. tbl.