Vikan - 29.04.1982, Page 62
Roðnar
Það er visst vandamál sem
hefur skotið upp kollinum í líji
mínu. Hefur það látið á sér
bera síðastliðnar vikur og
mánuði. Ég er 19 ára gömul.
Hef alla tíð verið ófeimin við
að láta skoðanir mínar í Ijós og
alltaf átt mjög auðvelt með að
kynnast fólki og umgangast allt
og alla. Málið nýja er að ég
roðna. Ég tala við fólk, hitti
fólk, fer að tala við það og
„búmm", orðin glóandi í
framan. Og auðvitað hef ég
fyrir bragðið dregist irin í skel,
lokaða, og heíd mig þar I stað
þess að .segja hluti sem ég
meino eða vil koma að, orðin
fejrtin. Spurning: Getur svona
* lagað verið tímabundið (á einn
eða annan hátt)? Er gott fyrir
mig að fara til sálfræðings? Á
ræðunámskeið? Hvað geturðu
ráðlagt mér? Ég roðna ef yrt er
á mig, liggur við. Ég satt að
segja hejði aldrei getað trúað
því að þetta gæti hent mig.
Hjálpaðu mér!
Eitt atriði: Ég hef átt góða
æsku og unglingsár og það er
ekkert afbrigðilegt sem hefur
komið upp á. En samt....
Frá Crotan
Pósturinn getur huggað þig með
því, ef þér er þá huggun í því, að
vandamál þitt er ekkert eins-
dæmi. Ótal margir eiga við þetta
sama að stríða. En þetta getur
verið nokkuð erfitt viðfangs, sér-
staklega vegna þess að um er að
ræða hálfgerðan vítahring, rétt
eins og þú lýsir. Hins vegar er
þetta oft tímabundið og fylgir
einhverju tilfinningalegu ójafn-
vægi, oft í kjölfar gelgjuskeiðs og
kynþroskaára, einnig ef þú hefur
orðið fyrir röskun á tilfinninga-
lífinu, svo sem orðið ástfangin
eða gert eitthvað sem þú
skammast þín verulega fyrir og
svo framvegis. En vegir
sálarinnar eru órannsakanlegir
og ýmiss konar truflanir á til-
finningalífinu, sem aftur koma
fram i ósjálfráðum líkamlegum
viðbrögðum, geta átt sér flóknar
skýringar sem ekki er á færi
nema sérfræðings að leysa. Þess
vegna gæti verið rétt af þér að
leita til sálfræðings ef þér sjálfri
finnst það eina leiðin til hjálpar.
IJnglingaráðgjöfin hefur sál-
fræðing á sínum snærum. Hægt
er að panta tíma í síma 39730,
39801 og á mánudögum milli 10
og 14 er hægt að koma í Sól-
heima 17 án þess að panta tíma.
Einnig er starfandi sálfræðingur
á stofu í Reykjavík, Anna
Valdemarsdóttir, sími 12303, og
er hægt að panta viðtal hjá
henni.
Pósturinn ályktar samt sem
áður af upplýsingunum í bréfinu
að þú ættir að geta leyst málið
sjálf. Eins og kemur fram hér að
ofan er þetta oft vítahringur.
Maður þorir ekki að segja neitt
af því að maður roðnar og
maður roðnar af því að maður
er feiminn, hræddur um að
roðna. Þú virðist hafa nokkurt
sjálfstraust og hvað sem kann að
hafa valdið þessu verðurðu að
trúa því að það sé aðeins dálítil
röskun á tilfinningalífinu, eins
konar sjúkdómur eða kvilli sem
snertir persónuleika þinn ekkert.
Þú sjálf ert ekkert verri en áður,
ekkert hefur breyst nema þetta,
að vegna þess að þú fórst að
roðna svona ertu þér mjög með-
vitandi um sjálfa þig og roðnar
því enn meira. Eina leiðin fyrir
þig, og sú sem þú verður að fara
ef þú ætlar þér að yfirvinna
þetta, er að kæra þig kollótta
þótt þú roðnir. Haltu fyrir alla
muni áfram að segja skoðanir
þínar, yrða á annað fólk, gera
allt það sem þú varst áður vön
að gera. Leyfðu roðanum bara
að hlaupa fram í kinnarnar og
hálsinn. Sannaðu til, það tekur
enginn eftir þessu. Og þó svo
væri, hvað með það? Ég er viss
um að þú hefur ekki tekið eftir
því að fjölmargir roðna við
svipaðar aðstæður og þú lýsir.
Ef þú sjálf hættir að kippa þér
upp við þetta smám saman þá
kemur að þvi að þú verður þér
ekki lengur jafnmeðvitandi um
þetta og þetta hverfur, sannaðu
til.
Ávallt aðdá-
cndaklúbbar
Póstinum hafa borist mörg bréf
þar sem beðið er um utan-
áskriftir hinna og þessara
aðdáendaklúbba. Hér á eftir
fara þær utanáskriftir sem
Póstinum tókst að grafa upp en
því miður ekki allar sem um
hefur verið beðið.
Ekki hafa verið stofnaðir
klúbbar í tengslum við allar
erlendar hljómsveitir, sérstak-
lega ekki þœr yngri og minna
þekktu. Besta ráðið er þá að
skrifa plötufyrirtækjunum
beint, en heimilisfang þeirra er
oft á umslögum utan um
plötur.
Gogo’s, c/o CBS Records, 51
West 52 Street, N.Y., New
York 10019, USA.
Kristy McNichol, c/o Fanmail
Corp. of America, P.O.Box
604, Medina, Ohio 44256,
USA.
The Human League, PO Box
153, Sheffield S1 ÍDR,
England.
Duran Duran, 76 Hurst Street,
Birmingham B5, England.
Depeche Mode, Mute Records,
16 Decoy Avenue, London
NWl 1, England.
LUKKUPLATAN
Þesslr tveir em liðsmonn i hljómsvort sem fíestír þekkja eflaust Fyrir
nokkrum vikum sp/ölluðum við örlitið vió þá hór i bktðinu og um
svipað leyti kom frá þeim fyrsta platan þeirra en eftir henni höfðu
margir beðið með óþreyju. Hvað he'rtir platan?
Platan heitir: -------------------------------------
Sendandi er:________________________________________
Heimili_____________________________________________
Póstnúmer______________________Póststöð-------------
Utanáskriftin er: VIKAN, Lukkuplatan '82 — 17
PÓSTHÓLF 533,101 REYKJAVÍK.
Vinningshafar
Lukkuplatan '82-11
Hljómsveitin á myndinni var Duran Duran. Vinningshafarnir fá að
sjáffsögðu senda plötu með Duran Duran.
Þórður Kristinsson Biikabraut 3,230 Keflavik.
TumiHelgason, Urðarteigi, 765 Djúpavogi.
Heigi Þ. Guðbjartsson, Lækjamót, Miklaholtshreppi, 311 Borgarnesi.
62 Vikan 17. tbl.