Vikan - 29.04.1982, Side 63
Pósturinn
Madness Info., Stiff Records, 9-
11 Woodfield Road, London
W9, England.
Barbra Streisand Club, Simply
Streisand, Postbus 103, 2250
AC Voorschoten, Holland.
Toyah Willcox, Intergalactic
Ranch House, 42 Manchester
Street, London Wl,England.
XTC, Alleydore Ltd., 65
Priory Green, Highworth,
Swindon, Wilts, England.
Utanáskriftir fleiri klúbba
verða birtar seinna. Tvær
„frekjur” báðu um aldur
strákanna í Duran Duran:
John Taylor er 21 árs, Roger
Taylor er 21 árs, Nick Rhodes er
19 ára, Andy Taylor er 20 ára
og Simon Le Bon er 22 ára. Þess
má geta að Taylorarnir eru ekki
bræður og ekkert skyldir.
Vörtur
Ég á við smávandamál ad etja
og yrði ég mjög þakklát ef þú
vildir vera svo vænn að reyna
að hjálpa mér að leysa það.
Þannig er mál með vexti að
handarbökin á mér eru öll
þakin vörtum og eru þær bæði
stórar og smáar. Ég finn ekki
til í þeim eða neitt því um líkt
en mér þætti mjög vænt um að
losna við þær vegna þess að ég
finn oft til þess að öðrum
fnnst þetta ógeðslegt. Ég veit
um Jleiri krakka sem eiga við
sömu erfiðleika að etja ogþú
myndir eflaust hjálpa mörgum
ef þú veist eitthvert ráð. En ef
svo er ekki gætirðu kannski
vísað til einhvers húðsjúkdóma-
læknis eða eilthvað svipað því.
Mig langar líka að vita hvort
vörtur séu smitandi og af
hverju þær koma, séu þær ekki
smitandi.
Með fyrirfram þökk fyrir
birtinguna,
Ein með vörtuvandamál.
Vörtur orsakast af veirum í
blóðinu. Þær geta komið á
hvern sem er og stundum hverfa
þær allt í einu án þess að nokkuð
hafi verið gert. Því er ýmiss
konar hjátrú tengd vörtum og
hvernig eigi að losna við þær.
Ein er sú að binda jafnmarga
hnúta á spotta og vörturnar eru
margar. Síðan á að grafa
spottann úti í garði undir fullu
tungli og eiga vörturnar þá að
hverfa von bráðar. En nútíma-
tæknin hefur önnur og betri ráð.
Vörturnar eru sumsé brenndar
burt með efnafræðilegum
leiðum og það er aðeins á færi
læknis. Því er eina ráðið að leita
læknis. Hafðu fyrst samband við
heimilislækninn og láttu hann
ráðleggja þér frekar.
Feit og
ástfangin
fæ oft eitthvað hvítt og slímugt
í nærbuxurnar. Ég hef spurt
mömmu mína hvað þetta sé og
hún segir bara að þetta sé
útferð. En nú vil ég fá að vita
hvað útferð sé. Og svo spyr ég:
Ég er 13 ára og er 164 cm á
hæð og 49-50 kg. Er ég ekki
einum of þung?
Með fyrirfram þökk,
5760-8153
Útferð er slim sem er venjulega
hvítleitt og kemur frá leg-
göngunum. Lítilsháttar útferð er
alveg eðlileg en meiriháttar
stafar af truflunum á starfsemi
líkamans, oft smávægilegum. Þú
ert 13 ára, segirðu, og því á kyn-
þroskaaldrinum. Á því tímabili
er hormónastarfsemin kröftug
og ýmis líkamsstarfsemi óreglu-
leg án þess að nokkuð sé að. Ef
útferðinni fylgir enginn kláði né
sviði er engin ástæða til að vera
með áhyggjur. Þvoðu þér oft og
vandlega og til eru sérstök þunn
dömubindi sem mælt er með að
nota þegar svona stendur á.
Ef útferðin er mjög mikil og ef
henni fylgir kláði eða sviði getur
það stafað af sveppagróðri í leg-
göngunum, bólgum (a'gengast)
eða kynsjúkdómum og í þ;í til-
viki er nauðsynlegt að leita
læknis en mörg góð lyf eru á
markaðnum við þess konar
kvillum.
Kæri Póstur.
Ég er í miklum vandrœðum.
Eg er hrifin af strák, X, en ég
er miklu feitari en hann. Eg
veit að honum likar ekki illa
við mig og mér líkar rnjög vel
við hann. Ég veit ekki hvaða
stelpu hann hefur áhuga á.
Hjálpaðu mér að ná í hann.
Takk fyrir svarið, ef ég fæ
Ein í ástarmálum.
Pósturinn fær ekki skilið hvaða
máli holdafar þitt skiptir í þessu
sambandi. Þó þú sért feitari en
strákurinn er ekki þar með sagt
að hann geti ekki orðið ást-
fanginn af þér. Margir strákar
eru yfir sig hrifnir af þybbnum
stelpum og vilja ekkert með hor-
renglur hafa. Og margir hafa
uppgötvað að holdafar segir
ekkert um skapgerð og eigin-
leika mannfólksins.
Það er aftur á móti annað mál
að ef þér finnst þú vera of feit og
ef þér líður illa af þeim sökum þá
áttu umsvifalaust að fara í
megrun. Borðaðu minna,
slepptu súkkulaði og öðrum
óþverra og gerðu leikfimi-
æfingar reglulega. En það er
margsannað mál að ekkert þýðir
að vera að fara í megrun fyrir
aðra. Það getur kostað mikið
sálarstrið að ná árangri og þú
stenst ekki freistingarnar nema
að vera ákveðin í að láta
megrunina ganga vel.
Útfcrð
Ég er í svolitlum vandræðum.
Það er nefnilega þannig að ég
Skop
17. tbl. Vtkan 63