Vikan - 24.06.1982, Blaðsíða 6
Texti og myndir: Eiríkur Jónsson
Fyrír mörgum árum þvoði hún
óvart hár dönsku drottning-
arinnar, nú greiðir hún forseta
ísiands þegar mikið liggur við:
■taö er langur vegur frá
Hafnarfirði til Kaupmanna-
hafnar, eða var þaö alla vega fyrir
18 árum þegar Þorbjörg Hjörvars-
dóttir, þá aðeins 14 ára, hóf nám í
Iðnskólanum í Hafnarfirði. Eigin-
lega átti hún að verða stúdent, það
þótti fínasta fínt í þá daga en
Doddý, eins og hún er kölluð bæði í
Danmörku og á íslandi, ætlaði sér
aö verða hárgreiðslukona og varð
það reyndar svo um munaöi.
En þetta með Hafnarfjörðinn
kemur nú ekki til af góðu. Iðn-
skólinn í Reykjavík vildi nefnilega
ekki veita stúlkunni skólavist en
þá brá hún á þaö ráö að taka
strætisvagninn til Hafnarfjarðar
og lét skrá sig í hárgreiöslunám
þar. Enda er Hafnarfjörður
líklega ekkert verri bær en
Reykjavík til aö læra slíkt,
hvorugur staðurinn hefur getið sér
sérstakt orð fyrir hárgreiðslu.
En hvað um þaö. Nú eru 18 ár
síðan sagan hófst fyrir alvöru og
síðastliöin 8 ár hefur Kaupmanna-
höfn verið sögusviðiö hvaö Doddý
áhrærir. Og á ekki fleiri árum er
hún oröin frægari en allar aðrar
íslenskar hárgreiðslukonur til
samans. Hún greiðir nefnilega
forseta Islands hvenær sem kallið
kemur. En hvers vegna ætli hún
geri það?
,,Það er nú einfalt mál og alls
ekkert merkilegt,” segir Doddý.
,,Ég greiddi öllu kvenfólkinu í
íslenska sendiráöinu hér í Höfn og
þar hlýtur forsetinn að hafa heyrt
af mér.” Doddý er ekki mikið
fyrir að tala um samskipti sín við
bæöi hár og persónu forsetans,
segir bara: „Okkur forsetanum
kemur vel saman og þaö er gaman
að vinna fyrir hana.”
Lokaöar kommóðusk-
úffur
Það gerist heldur ekki svo
margt óvænt í opinberum heim-
Þorbjörg Hjörvarsdóttir er sérlegur hárgreiðslumeistari forsetans og tilbúin
hvenær sem kalliö kemur.
DODDY
% - .
(eða: Þorbjörg Hjörvars-
dóttir hárgreiðslukona,
Vesterbrogade Í9 í Kaup-
mannahöfn)
6 Vikan 25. tbl.