Vikan - 24.06.1982, Síða 20
Umsjón: Jón Baldvin Halldórsson
SEA HARRIER:
þota búin
þyrlukostum
FLOGIÐ AFTURÁBAK. Sea Harrier getur sýnt hina
ótrúlegustu loftfimleika, jafnvel bakkað ef þannig
liggur á henni. Loftblæstrinum er þá beint niður og
fram á við. Þetta þýðir líka að þotan getur hægt mjög
snögglega á sér í loftinu.
Stríöiö um Falklands-
eyjar kynnti enn eina
brjálaöa stríösvél fyrir
fólki um heim allan, bresku
Sea Harrier þoturnar sem
flengdust um himininn og
sölluðu niöur herþotur
Argentínumanna. Sjálfar
gátu þær ótrúlega oft snúiö
aftur til flugvélamóöur-
skips lítiö sem ekkert
skaddaöar. Þaö er erfitt að
Ijúka lofsorði á svona
maskínur sem hannaðar
eru til aö eyða mannslífum,
þó er ekki annaö hægt en
dást að frábærri hönnun
þessarar þotu. Hún hlýtur
aö teljast einhver mesti
sigur flugvélahönnuða á
seinni árum. Einhvern
tíma hefði þótt ósennilegt
aö tækist aö búa til þotu
sem gæti tekið sig á loft án
þess aö nota flugbraut og
lent á sama hátt og þar á
ofan snarstoppaö í loftinu
rétt eins og hún kæmi aö
rauðu ljósi og þyrfti aö
bíða. Þessu til viðbótar
getur Sea Harrier bakkað í
loftinu!
Lágþrýst
loftrennsli.
Háþrýst
loftrennsli.
FLOGIÐ ÁFRAM. Eins og á venjulegri þotu, loftblæstr-
inum er beint aftur og loftstraumurinn sem leikur um
vængina lyftir vélinni. Efra borð vængjanna er kúptara
en neðra borðið sem veldur því að loftið sem fer yfir
vængina þarf að fara hraðara en loftið sem fer undir
vængina. Hraðara loftið togar vængina upp og léttir
hreyflunum þannig störfin.
LÓÐRÉTT FLUGTAK. Loftblæstrinum er beint lóðrétt
niður á við. Meðan vélin er að komast á loft lyfta
hreyflarnir allri þyngd flugvélarinnar, vængirnir hjálpa
þá ekkert til. Sama er í lendingu. Sé notuð flugbraut
þarf minna afl frá hreyflunum vegna þess að vængirnir
hjálpa þá til.
Stillistöng
fyrir stefnu
loftopanna
í flugtaki.
Stjórn
útblásturs.
Með því að færa stóra handfangið
fram og aftur er afl hreyfilsins
aukið og minnkað en með stöng-
inni lengst til hægri er stefnu loft-
útblástursins stjórnað. Meginhug-
myndin er einföld: Stjórnstöngum
er ýtt fram til að auka hraða (meira
afl, útblástursopin snúa beint
aftur), stjórnstöngum ýtt aftur til
að hægja á ferðinni (minni kraftur,
útblástur fer niður á við).
Afl hreyfla.
ZO ViKan Z5. tbl.