Vikan - 06.01.1983, Síða 15
Fjölskyldumál
systkinahópi þar sem mjög náið
samband skapast í gegnum árin,
stundum jafnvel nánara en milli
foreldra og bama. Þær rannsóknir
sem gerðar hafa verið sýna ótví-
rætt samband milli stöðu maka í
systkinahópi og velgengni þeirra í
hjónabandi. I fjölskyldumeðferð
hefur einnig komið í ljós að deilur
má oft rekja til stöðu í systkina-
hópi. Þannig er líklegt að stóra
systir úr einni fjölskyldu og elsti
bróðir í annarri eldi grátt silfur
saman. Bæði eru vön að ráða og
taka ábyrgð, og valdabarátta í
starfi og á heimili gengur oft út á
það að gera hitt að „litlu syst-
kini”.
Ef stóra systir giftist manni sem
sjálfur á eldri systur eða stóri
bróðir giftist konu sem á eldri
systkini eru mun meiri líkur á
jafnvægi. I rannsókn sem gerð var
í Stokkhólmi fyrir nokkrum árum
hjá 217 fjölskyldum kom í ljós að
slík hjónabönd virtust hamingju-
sömust. Bæði hafa þá fengiö
þjálfun í uppeldinu að umgangast
hinn aðilann.
Bestu forsendumar eru trúlega
þær að báðir makar eigi eldri og
yngri systkini. Þá er auðveldara
að vera sveigjanlegur í umgengni
og minni líkur á að festast í því að
vera stór og duglegur eða lítill í
sér og háður öðrum um of. En
systkinahópar verða æ minni og
þar með færri tækifæri að fá mikil-
væga þjálfun í nánum
samskiptum í fjölskyldu.
Hvað þarf að vera
/íkt og hvað ólíkt?
Sænskur sálfræðingur, Barbro
Lennér-Axelsson, hefur tekið
saman rannsóknir og ýmis skrif
um makaval. Hún telur að hjón
séu meira lík en ólík þegar á allt
er litið. Enda virðist það vera á
vissum sviðum sem fólk vill
líkjast hvert öðru. Hún nefnir
útlit, námshæfileika, menntun og
afstöðu til trúarbragða og stjóm-
mála.
A hinn bóginn þykir oft
mikilvægt að persónulegir eigin-
, leikar hjóna séu ólíkir. Þannig
veröur örlyndur maður gjaman
hrifinn af rólyndri konu, mál-
gefinn maður af hljóðlátri konu,
góður skipuleggjari af hirðulausri
og svo framvegis. Þannig fá báðir
möguleika á að bæta við sig eða fá
útrás fyrir eiginleika sem þá
sjálfa vantar.
En hjón líkjast hvort öðru æ
meir því lengur sem þau búa
saman og móta hvort annað. Eftir
margra ára sambúð finnst þeim
að í raun séu þau mjög lík og hafi
alltaf verið.
Makava/ er f/ókið
Segja má aö í dag sé mun
erfiðara að finna lífsförunaut en
oft áður. Það er ekki tilviljun að
einkamálaauglýsingar í blöðum
verða æ algengari og í flestum
löndum blómstra hjónabands-
miðlanir sem finna maka með
hjálp tölvu.
Það viröist vera erfitt að finna
einhvern við hæfi. Margir kvarta
undan því að það sé erfitt að
nálgast því samverustaðir séu af
skomum skammti. Það á ekki við
alla að fara á skemmtistaði og
kynnast við þau skilyrði.
I svokölluðum velferðarþjóð-
félögum má segja að búið sé að
leysa flestar grundvallarþarfir
mannsins, svo sem að klæðast,
nærast og eiga þak yfir höfuðið.
Flestir geta séö fyrir sér sjálfir og
þurfa ekki að treysta á maka eða
aðra tilþess.
Þörfin fyrir ást og djúp tengsl
við aðra manneskju hefur ekki
minnkað við að manneskjan getur
lifað sjálfstæðu lífi nú á dögum.
Það er grundvallarþörf hjá öllum
en ein af þeim sem verður æ
erfiðara að uppfylla í heimi þar
sem samskipti manna verða
sífellt flóknari. Þess vegna er
mikilvægt aö læra að þekkja eigin
þarfir og hvað þaö er sem stjórnar
tilfinningasamböndum okkar og
FRANCH MICHELSEN
ÚRSM ÍÐAM EISTARI
LAUGAVEGI 39 SÍM113462
Ml( IIIISI \
w
ára þjónusta
Flest glæsilegustu úr heimsins
hafa verið smíðuð í Genf
Byssuúr frá tímum
frönsku endurreisnarinnar
Þegar þrýst er á gikkinn.
kenrur blóm franr úr
úrinu og úðar það
jafnframt
ilmvatni. Úrið er
hulið í byssuskeftinu. Bæði
gangverk og glerungur
frá Genf. Úr þessi eru hluti
Wilsdorfsafnsins, nefnt
svo til heiðurs stofnanda
ROLEX, Hans Wilsdorf.
Glæst saga úrsmiða
Genfar er varðveitt í
sköpun einstæðs úrs,
ROLEX OYSTER.
Hver OYSTER úrkassi er
gerður í hvorki meira né
nrinna en 162áföngum
sem krefjast kunnáttu,
hagleiks og nákvæmni, því
úrkassinn er unninn úr
aðeins einu stykki.
Án efa er hægt að srníða
úr á einfaldari hátt.
Úr í bonbonniére stíl frá
franska keisaratímanum
(1810-1820). Gangverkið
og skreyttur úrkassinn eru
til vitnis um afburðahæfni
handverksmanna Genfar.
En ROLEX er ekki að
flýta sér.
§'
ROLEX
of Geneva
l.tbl.Vikan 15