Vikan


Vikan - 06.01.1983, Blaðsíða 62

Vikan - 06.01.1983, Blaðsíða 62
\ \ \ Hann Ahmed frá Alsír Þessi ágœti maður sendi okkur bréfum daginn og bað um íslenska pennavini, stráka og stelpur. Hefur aldrei komið til Islands en hefur mikinn áhuga á landi og þjóð. Hann heitir Chaovat Ahmed, er 24 ára, 1,75 sm á hœð með dökkt hár og hnetubrún augu. Hann hefur mestan áhuga á ferða- lögum, íþróttum, dýralífi, lestri og tónlist. Og nafn og heimilisfangið er Chaovat Ahmed, 43A, Rue des Fréres Sidi Moussa MeO, z Bovfarik (W. Blida) Algeria. Um stjörnu- merki Pósturinn hefur margtek- ið fram að hann getur ekki svarað í hverju bréfi hvaða stjörnumerki eiga vel sam- an. Hins vegar birtist af og til í Vikunni efni um þessi mál og má benda á 6. tbl. 1981 íþví sambandi. Póstin- um barst smáyfirlit al- menns eðlis um stjörnu- merki og ýmis einkenni þeirra og birtir hér til að koma til móts við lesendur: Stjörnumerki skipta mönnum í tólf flokka sem hver um sig hefur sérstök einkenni, en til að fá ná- kvæma mynd af því hvaða stjörnumerki hefur mest áhrif á hvern einstakling nægir ekki alltaf að miða við fæðingardaginn einn. Mjög margir þekkja reyndar það sem einkennir ljón, meyjar, bogmenn eða einhverja aðra í stjörnu- merkjahringnum (dýra- hringnum). En stundum þarf nákvæma fæöingar- stund til að geta greint hvaða merki ráða mestu um mótun einstaklings, þá geta til dæmis naut verið með margar plánetur í tví- bura (sem er mjög ólíkt merki) því það að menn séu naut segir ekki annað en að þeir séu fæddir þegar sólin var í nautsmerkinu. Aðrar plánetur koma þá ekki til tals. Merkin eru því leiðsögn, því sólin er talin sterkasta afliö af þeim sem stjörnuspekingar spá í, en engin vissa er fyrir því að menn beri einkenni síns merkis. Stjörnumerkjunum er skipt í tvennt, jákvæö og neikvæð til skiptis. Hrútur- inn jákvæður, nautið nei- kvætt og svo framvegis allan hringinn. Margir mis- skilja þetta og halda að fólkið í merkjunum sé já- kvætt eða neikvætt en svo einfalt er málið bara ekki. Eina vísbendingin sem þetta gefur er að jákvæðu merkin séu líkari innbyrðis og neikvæðu sömuleiðis. Hver treystir sér líka til að dæma hvað er neikvætt og hvað jákvætt? Síðan er merkjum skipt í þrjá flokka eftir því hvort þau eru höfuðmerki (cardinal), ákveðin (fixed) eða breyti- leg (mutable) og raðast frá hrúti sem er höfuðmerki. Sumir hafa glapist á að líta á þetta sem einhver stikk- orð um merkin, en því miður, það er alls ekki hægt! Loks er merkjunum skipt eftir höfuðskepnunum fjór- um og það er táknrænt, hrúturinn eldmerki, nautið jarðmerki, tvíburinn loft- merki, krabbinn vatns- merki og svo framvegis og einnig hér er erfitt aö al- hæfa eins og allt of oft er gert. Höfuðskepnunum eru gefin ákveðin persónuein- kenni en auövitað er frá- leitt að fara út í enn grófari flokkun á mannkyninu, allir eru breytilegir og hafa persónueinkenni hver úr sinni átt. Þeir sem alvar- lega spá í stjörnuspeki var- ast svona einföldun en nýta sér þessa vitneskju í tengsl- um viö annað. Hvert ein- asta einkenni sem fylgir merkjunum eða merkja- flokkunum getur bæði verið til góðs eða ills og fer mikið eftir því hvernig fólk nýtir það sem það fær í vöggu- gjöf. Það er kannski orðið of oft sagt en skal þó árétt- að enn einu sinni að hver er sinnar gæfu smiður — stjörnurnar gefa bara vöggugjafir. — Pósturinn getur svo bætt því við að mjög mis- jafnt er hvort menn leggja yfirleitt trúnað á það sem sagt er um stjörnuspár, en það sem hér á undan fer miðast við að menn taki eitthvert mark á þeim — það verður hver og einn að gera upp við sig. Vinningshafar lukkuplatan '82—47 Hljómsveitin sem spurt var um heitir Jonee Jonee. Þór Gunnarsson, Hörpulundi 4, 210 Garðabæ. Elisabet Reynisdóttir, Kolbeinsgötu 45, 690 Vopnafirði. Gunna B. Þorsteinsdóttir, Lundarbrekku 6, 200 Kópavogi. 6Z Vikan X.tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.