Vikan - 06.01.1983, Blaðsíða 19
Hvað gerist í pólitíkinni? Hver verður
þróun „kreppunnar"? Verður árgæska til
lands og sjávar? Hvað með náttúruhamfar-
ir? Gerist eitthvað markvert í heimspólitík-
inni? — Við leitum svara við þessum
spurningum og mörgum öðrum sem áleitn-
ar eru þegar nýtt ár rennur upp.
Flugstöðvarmálið verður leyst með þvi að nefna hlutina upp á nýtt. Þannig
getur þetta orðið „íslenskt" hús. . .
Vikan var búin að fá vilyrði
fyrir því að mega heimsækja hana
kvöld nokkurt seinni hluta desem-
ber. Það var stórstreymt þetta
kvöld og háfjara. Sjávarlyktina
lagði sterkt að vitum okkar,
meöan við biðum þess að dyra-
bjöllunni væri svarað. Við vorum
mættir.
„Þetta er Vikan,” kölluðum við
í dyrasímann. „Eruð þiö í hjóla-
stól?” var kallað á móti. — „Ha,
við? Nei.” „Komið ykkur þá inn
fyrir sjálfir, ég sæki ykkur ekki,”
var svarað að innan. — Og við inn
úr kuldanum með það sama.
„Jæja, svo þiö eruö komnir,”
sagði kona sem stóð á stigapalli
nokkrum tröppum fyrir ofan
okkur. Hún var varla fimmtug,
þessi kona. Vel á sig komin og
smekklega klædd. Hún haföi
tinnusvart hár sem féll laust yfir
hvíta heröaslá. Hún reykti síga-
rettu í löngu munnstykki.
„Komið inn fyrir, við höfum
allt kvöldið, er það ekki? Eg læt
ykkur vita fyrirfram að ég er
engin tölva sem þið getið matað
með forriti, ef þið hafið haldið þaö.
— Og það eruð þið sem hafið hægt
um ykkur meðan ég tala því ég
hefi búið mig undir komu ykkar
eins og um var talað. Eg geri það
ekki fyrir hvern sem er.
Þið setjist þarna,” sagði
völvan okkar, — „ég sest hér við
gluggann, þar sem ég get sam-
einað ljósin á Akranesi og fjar-
lægðina, til þess að færa mér þá
fyrirboða sem þið fáið nú að kynn-
ast.”
„Veðrabrigði til
sjós og lands"
Völvan sat grafkyrr meö hægri
höndina hvílandi á gluggakistunni
og studdi lófa við höfuöið. I vinstri
hendi hélt hún á þurrkuðu blómi.
— „Þetta er hosta forunei” (garð-
jurt af liljuætt), sagði konan. Viö
urðum forviða. Ekki minnkaði
undrunin þegar hún féll í trans, í
þess orðs fyllstu merkingu.
Hún tók að tala með stillilegri
röddu en næstum vélrænni. Við
settum segulbandið í gang.
„Hér er svo margt ókomiö,”
sagði hún, — „og það er eins og
allt ætli að ske í senn, allt of mikiö,
allt of fljótt. Ekki svona fljótt, ekki
svona fljótt,” endurtók hún hvað
eftir annað.
„Engar náttúruhamfarir,
engin veörabrigði munu hafa
meiri áhrif hér á landi en stjórn-
málin. Þau eru yfirþyrmandi og
munu eiga eftir að breyta miklu
fyrir alla landsmenn á árinu 1983.
— En vegna stjórnmálanna munu
menn finna fyrir veðrabrigðum til
sjós og lands.
Það verða kosningar. Þaö
verða svo sannarlega kosningar.
Og þær munu draga dilk á eftir
sér. Það mun enn verða deilt um
hvenær kosningar skuli fara fram.
Það verða ekki allir tilbúnir að
samþykkja kosningar í apríl.
Stjórnarskrármálið er heldur
ekki í höfn og mun þaö mjög
blandast deilum um kjördag.
Urslit kosninga þeirra sem
næstar eru sýnast mér lítið breyta
því stjórnarmynstri sem nú er. Eg
er að reyna að sjá hvaða menn
verða þarna í sviðsljósinu í nýrri
ríkisstjóm en þetta er allt mjög
þokukennt. Eg sé nefnilega menn
blandast þarna saman í svo ríkum
mæli, ekki alltaf sömu mennina
þó. — Eg held að á árinu verði
tvennar kosningar. Það byggi ég á
því að eftir fyrri kosningarnar
upphefjast miklar deilur um
stjórnarmyndun.
Sú stjóm sem mynduð veröur
mun ekki eiga langa lífdaga og
sýnist mér því aðrar kosningar
Það verður heimssögulegur
atburður er páfinn heimsækir
kaþólsk lönd í Ameríku á árinu.
síðarnefndi mun eiga aðild aö
stjórn þeirri sem fyrst verður
mynduð. — Eg sé ekki fulltrúa
Sjálfstæöisflokksins í þeirri ríkis-
stjórn, það er að segja núverandi
stjórnarandstöðu.
Gunnar Thoroddsen mun enn
veröa í sviðsljósinu og eiga stóran
þátt og örlagaríkan að endur-
skipulagningu Sjálfstæöisflokks-
ins. Eg sé formannaskipti innan
Sjálfstæðisflokks á árinu og ég sé
ekki betur en þar sé kona í for-
manns- eða varaformannssæti. —
En endurskipulagning þess flokks
„Albert Guðmundsson virðist hafa mikilvægu hlutverki að gegna . . . ég sé
hann með simtól í hendinni og það liggja þræðir milli hans og allra þessara
aðila. . ."
fylgja í kjölfarið. Eg sé þó að allir
flokkar munu eignast sína ráð-
herra. Sumir munu sitja lengur en
aðrir vegna þess hve skammt
verður milli kosninganna eða
stjórnarmyndana. Þannig hverfa
nokkrir af núverandi ráðherrum
úr stjórnarstólum að fullu. Það á
við bæði um menn úr Framsókn-
arflokki og Alþýöuflokki. Sá
er helsta umræöuefni manna
framan af árinu.
Fararsnið á
fólkinu
Eg gæti sagt miklu meira úr
heimi stjórnmála okkar. Það er af
svo miklu að taka. En ég verð að
stikla á stóru.
I.tbl. Víkan 19