Vikan


Vikan - 06.01.1983, Blaðsíða 30

Vikan - 06.01.1983, Blaðsíða 30
Hljómsveit í miklum Texti: Þórey stellingum Þegar sem mest var að gera nú rétt fyrir jóiin lögðu menn frá sér afþurrkunarklútana, slökktu á bökunarofnunum, flýttu sér heim úr verslunarleiðangrinum og fóru í bíó. Þá var byrjað sýna íslensku dans- og söngvamyndina Með allt á hreinu og hana vildu menn sjá sem fyrst. Eftirvæntingin Ijómaði á andlitunum þegar tjaldið var dregið frá og hulunni svipt af þessari dularfullu og jafnframt umtöluðu kvik- mynd. Mikið hafði verið pískrað í salnum og gengu þær sögur frá manni til manns að myndin fjallaði um baráttu kynjanna í hnotskurn, iífsfirringuna og þrá einstaklingsins eftir æðri vitundarskynjun, um dularfullt mannslát kryddað draumkenndum kynlífsatriðum og viðkvæmum þjóðfélags- vandamálum til sjávar og sveita. Allt bar þó að sama brunni — enginn vissi írauninni hvað hann var að fara að sjá. Með allt á hreinu er þegar allt kemur til alls kvikmynd eftir kvikmyndagerðarmanninn Ágúst Guðmundsson og hljómsveitina Stuðmenn. Með aðalhlutverkin fara Stuð- menn og Grýlurnar, sem ímyndinni kallast reyndar Gærurn- ar. Myndin er, eins og við er að búast, grínmynd en þó með alvarlegum undirtóni eins og vera ber. Valgeir Guðjónsson, einn hinna frægu Stuðmanna, gaf blaðamanni og Ijósmyndara Vikunnar góðfúslegt leyfi til að heimsækja sig i aðalvígi sitt, félagsmiðstöðina Ársel sem hann veitir forstöðu. Erindið var að forvitnast um hina um- töluðu kvikmynd og Stuðmenn. Víðförul hugm ynd Þetta er gömul hugmynd, sú fyrsta var að halda áfram með Tívolíplottið - nota persónur og stemmningar sem voru á Ttvolí- plötunni. Svo þróaðist þetta nú langt frá því og á endanum var bókstaflega ekkert eftir af upp- haflegu hugmyndinni. Þá var þetta búið að fara langa leið, margir búnir að sýna þessu áhuga, nokkrir leikstjórar búnir . að spá íþetta og þetta virtist allt- af ætla að ganga saman. Loks endaði þetta hjá Agústi Guð- mundssyni sem tók af skarið og tók það sem var bitastœðast í handritsdrögunum sem til voru og síðan var unnið út frá því. Þetta var mikið samvinnuverk- efni - meira heldur en menn hafa gert áður hérlendis. Eg held að það tíðkist ekkert voðalega víða að sömu menn séu leikendur, framkvœmdastjórar, höfundar handrits að hluta og semji alla tónlist - við fengum mjög mikið pláss, meira pláss heldur en margir hefðu vogað sér að láta okkur hafa. Að leika í kvikmynd er nokkuð sem við höfðum aldrei komið nálœgt áður, hvorki að skrifa handrit né leika. En það tókst alveg furðanlega vel. Draumar sem rætast og ekki Þetta er svona öðrum þrœði karlar-konur mynd, samskipti kynjanna og barátta kynjanna í dálítið óvenjulegu Ijósi. Það er svo sem ekki verið að svara neinu eða koma með innlegg í lífsgát- una eða lausn hennar. Hinn póllinn í myndinni er kannski um að eiga sér draum um betra líf, en það eru ekkiallt- af farnar réttu leiðirnar við að láta þann draum rœtast. — En fyrst og fremst á þetta að vera skemmtimynd. Myndin er tekin íReykjavík og nágrenni, Akureyri, Selfossi, Vestmannaeyjum, Osló og Kauþmannahöfn. Jú, þetta kost- ar allt mjög mikla peninga sem hverfa mjög hratt þegar á staðinn er komið. Islenskar myndir eru í rauninni gerðar við skilyrði sem ég held að fáir myndu láta sér lynda annars staðar í heiminum. Þetta byggist mjög mikið á því að fólk lánar vinnu sína og fær ekki greiðslu fyrir ómælda vinnu fyrr en eftir dúk og disk. Þessi hópur, sem við unnum með í sumar, reyndist alveg ómetanlegur. Eins og ég held að öll íslensk kvikmyndakrú geri. Þetta gengur bara ekki öðruvísi. Eómarlundin er mjög rík, menn leggja á sig mikla vinnu án þess að hafa nokkra tryggingu fyrir að fá hana greidda. Styrkur fyrir kaffi ogmeö’í Það er ekkert gott að þurfa að gera kvikmynd upp á það að það stendur allt í járnum við að koma dæminu heim og saman og síðan þarf að fá þriðjung til helming þjóðarinnar á myndina tilþess að menn sleppi óskaddaðir og við að fara á uppboð. Við fengum styrk úr kvikmyndasjóði en sá styrkur dugði bara fyrir kaffi og með því. Saga Stuðmanna frá upphafi Stuðmenn eru undir eigin nafni í myndinni en við erum ekki að leika sjálfa okkur í myndinni. En þessi hljómsveit erþannig, við setjum okkur í miklar stell- ingar þegar við erum að semja lögin og svona. Þetta er öðruvísi músík en við gerum annars. En Stuðmenn og hugmyndina á bak við þá — þeir hafa nú auð- vitað breyst mikið í gegnum tíð- ina — má rekja alveg aftur til 1%9—70 og eru þannig með eldrt starfandi hljómsveitum þó þetta hafi að vísu ekki verið mjög samfelldur ferill. Við byrjuðum t menntaskóla sem paródíuhljómsveit, tókum fyrir gamla rokkið — við fórum í fermingarfötin, greiddum okkur vatnsgreiðslu. I fyrsta skipti sem við spil- uðum opinberlega spiluðum við einmitt eitt lag sem er í myndinni og við endurgerum núna, fyrsta lag Stuðmanna sem heitir Draumurokkar beggja. Stuðmenn gerðu sitthvað þarna tvo vetur í Hamrahlíðar- skólanum. Tveimur árum síðar fórum við Jakob til London og tókum upp fjögur lög sem voru 30 Vikan X. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.