Vikan - 06.01.1983, Qupperneq 34
INGRID BERGMAN
„Ég hélt aö framleiðendurnir
væru gengnir af göflunum,” sagöi
Ingrid Bergman í viðtaii rétt fyrir
dauöa sinn, er hún var spurð aö
því hvernig henni heföi oröiö við
er hún fékk tilboö um aö leika
aöalhlutverk í sjónvarpsþáttum
um Goldu Meir. Islenska sjón-
varpið sýndi fyrri hluta þáttanna
aö kvöldi nýársdags. Seinni hlut-
inn veröur sýndur sunnudaginn 9.
janúar.
„Eg hélt að ég yröi að vera lík
Goldu Meir í útliti, vera gyðingur
og vera frá öllum öörum löndum
en Svíþjóö. Fyrir utan nú þaö hvaö
ég er stór! ” Henni var sagt aö hún
þyrfti aö hafa minnstar áhyggjur
af því. „I augum Israelsmanna
var Golda Meir stærsta kona í
heimi.”
Og eftir að Ingrid Bergman
hafði fengið geröa prufukvikmynd
samþykkti hún aö taka að sér hlut-
verkið.
„Allir sögöu við mig aö ég þyrfti
enga prufumyndatöku. Eftir aö
hafa starfað við kvikmyndaleik í
fjörutíu og fimm ár vissi ég hvaða
tökum ég ætti að taka þetta hlut-
verk. Eg var ekki sammála þess-
um röksemdafærslum. Eg gat
ekki hermt eftir eða túlkað per-
sónuleika Goldu Meir. Eg gat bara
reynt að miðla þeim áhrifum sem
hún haföi á mig. Og ég vildi vera
sannfærð um aö ég gæti þaö. Eftir
að ég hafði séö prufukvikmyndina
fannst mér að það væri í það
minnsta reynandi!”
Ingrid Bergman vissi lítið meira
en aö Golda Meir hafði verið for-
sætisráðherra Israels. Hún var þá
látin kynna sér heimildarmyndir
um Goldu, ævisögu hennar, viðtöl
viö hana og yfirleitt allt um hana
— og hún var heilluð. En hvað var
það sem henni fannst einkennandi
fyrir persónuleika hennar:
„Þaö var krafturinn,” sagði
Ingrid. „Krafturinn. . .sannfær-
út af misheppnuðu hjónabandi
sínu. „Hún var ekki eins kaldrifj-
uö og óvinir hennar vildu vera
láta,” segir Ingrid um hana.
Þegar kom til tals að gera þessa
kvikmynd voru margir í Holly-
wood hissa á því að leikkona sem
ekki væri gyðingur gæti túlkað
hlutverk Goldu Meir svo sannfær-
andi. Sama svariö var gefið og
þegar einhver hafði lýst yfir furðu
sinni yfir aö Fiðlarinn á þakinu
heföi verið sýndur við metaösókn í
Japan:
„Þetta er ekki saga um gyðinga.
Þetta er saga um ofsótt fólk sem
vill fá aö vera í friði til að vinna og
lifa, í sátt og samlyndi við alla.”
Og eins og í Fiðlaranum á þak-
inu fær kímnin og léttleikinn að
fljóta með. Golda Meir var keöju-
reykingamanneskja. Einu ári
áður en hún dó varaöi besta vin-
kona hennar og ráögjafi, Lou
Kaddar, hana við því að reykja
svona mikið. „Ertu hrædd um að
ég deyi ung?” svaraði þá Golda.
Framleiöendurnir vönduðu ekki
einungis valið á aöalleikaranum. I
aukahlutverkum eru reyndir leik-
arar eins og Leonard Nimoy, sem
leikur eiginmann Goldu. Hann
hefur aö mestu getið sér frægöar-
ingarkrafturinn, látleysið og
heiðarleikinn sem einkenndi per-
sónuleika hennar. Og auðvitað
þessi gíf urlega ást til landsins sem
átti að byggja og verða heimili
allra gyðinga. Hún var ísraelsk
Jóhanna af Örk!”
Með þessari samlíkingu sýndi
Ingrid Bergman að hún hafði orðiö
fyrir miklum áhrifum af Goldu
Meir því eftir aö Ingrid lék hlut-
verk frönsku frelsishetjunnar
haföi hún hana ætíð að leiðarljósi.
„Ef ég heföi verið spurð að því
fyrir einu ári hvert hefði verið
uppáhalds hlutverkið mitt heföi ég
umsvifalaust svaraö: Jóhanna af
Örk! En eftir að hafa leikiö í kvik-
myndinni „A Woman Called
Golda” held ég að það sé besta
hlutverk sem ég hef fengið. Það
hefur verið frábær upplifun að fá
aö leika í þessari kvikmynd! ”
Ingrid Bergman liföi sig svo
sannarlega inn í hlutverk Goldu
Meir. Hún fann sig andlega skylda
þessari konu sem sýndi ótrúlega
hörku á alþjóölegum vettvangi en
þjáðist jafnframt innilega með
hermönnum sínum og þjóð sinni,
sem fékk ekki óskir sínar uppfyllt-
ar. Og hún fann líka til sársauka
34 Vikan l.tbl.