Vikan - 19.05.1983, Qupperneq 31
1
I
<
Eddie Grant
A árunum 1968—1971 var hljómsveitin The
Equals vinsæl í Bretlandi og víðar. Hljóm-
sveitin gerði þrjú lög vinsæl og er Baby Come
Back þekktast þeirra. Eftir 1971 hvarf
hljómsveitin sporlaust og enginn vissi hvað
varö af meölimunum fyrr en um 1978, að einn
þeirra kom fram á sjónarsviðiö á ný undir
eigin nafni. Þaö var Eddie Grant og lagið
Walking on Sunshine ýtti honum í frandínu
poppsinsá ný.
Eddie Grant er frá Suður-Ameríkuríkinu
Guayana. Hann fluttist ungur aö arum til
Bretlands og geröist tónlistarmaður, en nuna
er hann fluttur til Vestur-Indía. Hann byr a
eynni Barbados, lítilli eyju meö svipaöan
íbúafjölda og Island. Þar hefur hann komiö
sér upp stúdíói, einbýlishúsi og öörum
þægindum og býr til músík. Stúdióiö heitir
Blue Wawe og þykir mjög vandaö, er eftirsott
af frægum músíköntum. Þaö var groöinn af
laginu Walking on Sunshine sem geröi honum
kieift aö koma sér svo vel fyrir. Síöan þaö lag
varö vinsælt hefur hann átt fleiri vinsæl lög,
til dæmis alveg nýlega Electric Avenue af
samnefndri breiðskífu og I Don’t Wanna
Dance. Eddie segir aö lykillinn aö vinsældum
hans sé sá aö hann geri allt sjálfur. Hann
spilar á öll hljóðfæri sem nai.ösynleg eru,
semur og útsetur öll lögin algjörlega sjaifur
og tekur einnig upp og hljóðblandar á eigin
spýtur. Hann notar þó stundum aöra hljoð-
færaleikara en þá veröa þeir aö hlýöa skipun-
um hans til hins ýtrasta, annars fá þeir um-
svifalaust farseðil frá Barbados.
Sumir segja hins vegar aö lykillinn ai
vinsældum Grants sé þaö aö vera mannlegur.
Margir svartir söngvarar eru mjög politiskir,
bundnir af því að þeir eru svartir i heimi sem
stjórnaö er af hvítu fólki. Eddie leyfir
tilfinningum sínum aö komast óhindraö a
framfæri, hann er stundum svartsynn,
stundum bjartsýnn. Tónlist hans er ættuö fra
Vestur-Indium en blönduð popptónlist hvita
mannsins. Sumir myndu kalla þetta argasta
disko, en hvaö er aö þvi aö spila goða
dansmúsik?
l