Vikan


Vikan - 29.12.1983, Qupperneq 23

Vikan - 29.12.1983, Qupperneq 23
 ^Elsku Egnnie sýna mér, sagöi hann, og smágöngutúr fyrir hádegisverð gæfi okkur góða matarlyst. Jæja, við gengum eftir klettastígnum um stund, hönd í hönd, eins og ástarfuglar, þangað til við komum að staðnum þar sem útsýnið var svo stórkostlegt. Það sést ekki nógu vel frá stígnum, sagði Ronnie. Þaö er miklu betra að fara alveg að bjargbrúninni. Hann hjálpaði mér í gegnum vírgirðinguna og sýndi mér hvar best væri að standa til að ég gæti séð víkina fyrir neðan bjargið. Ég yrði að halla mér ansi mikið áfram til að sjá það, sagði hann, en hann hélt í mig svo að ég var örugg. Jæja, einmitt þegar ég hallaði mér þannig áfram, með Ronnie fyrir aftan mig, hlýtur eitthvað að hafa hrætt hann, fugl flogiö yfir eða hávaði eða eitthvað, vegna þess aö hann færði hendina snögglega og fóturinn á mér rann til og ég datt. Auðvitaö reyndi Ronnie að bjarga mér, aumingja drengurinn. Hann ætlaði að grípa í peysuna mína en náði ekki almennilegu taki og það eina sem það gerði var að ýta mér fram af brúninni. Þú getur ímyndað þér hvað hann varð miður sín við að sjá mig hrapa svona beint niður bjarg- iö, fallið hlýtur aö hafa veriö í það minnsta þrjú hundruð fet. Það var hræöilegt; hann var miður sín af sorg, skalf og neri saman höndunum. Eftir um það bil fimm mínútur róaðist hann aðeins og hljóp í burtu til að finna símaklefa. Lögreglan og sjúkraliðið kom, en auðvitað var það orðið of seint. Þeir breiddu teppi yfir líkama minn og létu hann inn í sjúkrabílinn. Ronnie sat og grét við hliðina á mér. Ég kenndi svo í brjósti um hann, ég hafði eiginlega ekki tíma til að hafa áhyggjur af því að ég væri. . . . þú veist, dáin. Þegar ég fór að hugsa um það var ég búin að venjast því. Ég hafði — líkami minn á ég viö — hafði verið jarðsett þá. Jarðarförin var þokkaleg, ekki íburðarmikil vegna þess að Ronnie trúði ekki á það að sýna innri sorg sína, eins og hann orðaði það. Hann bað jaröarfararstofnunina að hafa þetta mjög einfalt. Hann var svo leiður og sorgmæddur. Hann hafði engar fjárhagslegar áhyggjur eftir aö erföaskráin hafði verið lesin — reyndar hafði hann nóg til að lifa góðu lífi þaö sem eftir var ævinnar, með peningana mína og trygginguna og húsið og allt. En það var ekki spurning um fjárhag — hann hafði misst mig og ekkert gat bætt fyrir þaö. Hann reyndi margar aðferðir til að sefa sorg sína. Hann réð til sín þjónustufólk til að hugsa um sig — hann var svo hjálparvana án mín — og breytti húsinu, gerði það mjög glæsilegt, svo það minnti hann ekki alltaf á mig. Og hann fór út á hverju kvöldi, á næturklúbba og í samkvæmi og fór í nokkrar reisur til landa eins og Bahama. Allir hljóta að hafa haldið að hann væri virkilega hamingjusamur en auðvitað þekkti ég hann Ronnie minn betur en það. Ég vissi að hann þjáðist. Jæja, eftir að hafa hugleitt það í langan, langan tíma fékk ég frábæra hugmynd. Hvernig væri ef ég gæti einhvern veginn fært Ronnie yfir til mín? Það þýddi auðvitað að ég yröi að skipuleggja . . . ótímabæran dauða hans, en hann hafði oft sagt mér að hann vildi heldur vera dáinn en vera án mín. Ég þurfti þó nokkra þjálfun áður en ég náði valdi á því aö stjórna föstum hlutum. Ég byrjaði á litlum hlutum, lét bréf fjúka af skrifborð- inu og slökkti ljós, síðan tók ég að færa stóla frá einu herbergi til annars og lét rúmið sveima yfir gólfinu — það var bara gaman. Eftir þaö fannst mér ég vera tilbúin aö reyna lukku mína á Ronnie. Ég vildi ekki meiða hann of mikið, aöeins færa hann yfir á góðan og vel- viljaðan hátt. Jæja, ég reyndi allt. Ég tæmdi pakka af svefntöflum út í viskíið hans, en af óheppni glopraöi hann því öllu yfir nýja, persneska teppið áður en hann gat drukkið það. Þá reyndi ég að kæfa hann meö þvi að skrúfa frá gasofninum í herberginu hans þegar hann svaf. Þjónninn hans kom inn og eyðilagði það fyrir mér. Að lokum varð ég aö reyna eitthvað ofbeldiskenndara. Ég lét ljósa- krónur falla á hann, ýtti honum niður stigann, hlóö og skaut af einni af byssunum hans meðan hann reyndi að hreinsa hana, lét gólffjalir hrynja og vörubíla sveigja í átt til hans. En hann lifði það allt af. Auðvitað komst hann ekki hjá því að taka eftir því að eitthvað grunsamlegt var að gerast. Ég á við, eftir sextíu og tvö næstum bana- slys á tveim mánuðum tækir þú líka eftir því. Er það ekki? Að þessu loknu var hann orðinn ein taugahrúga. Hann rak allt þjónustufólkið og læsti sig inni í svefnherberginu sínu. Ég kenndi svo í brjósti um hann, vesalings drenginn. Þarna sat hann á rúminu í skothelda vestinu, meö öryggishjálminn á höfðinu og teppi dregið upp að höku, umkringdur guð má vita hverju — byssum, krossum, neyðarmatvælum, sjúkrakössum — og las um hvernig á að bregðast við ef kjarnorkustyrjöld skellur á. Hann hrökk við í hvert sinn sem klukkan tifaði og varö hvítur sem snjór ef marraði í gólfinu. Ég gat ekki afborið að gera honum meira mein, hann virtist vera svo glataður, hræddur og hjálparlaus. Ég geri eina tilraun enn, hugsaöi ég með mér, og ef það gagnar ekki læt ég hann í friði. Svo ég settist á end- ann á rúminu, horfði á hann og reyndi aö hugsa upp eina leið enn til að færa hann yfir. Og að lokum datt mér það í hug. Ég vissi að aumingja Ronnie hafði viökvæmt hjarta (áreiðanlega enn- þá viðkvæmara þá en það var áður). Hann var alltaf að taka töflur viö því en ég sá engar hjá rúminu hans. Jæja, ráðstöfun mín var eitthvað á þessa leiö:Hvernig væri ef mér tækist einhvern veginn að birtast honum (holdi klædd, held ég að það sé kallað) við enda rúmstokksins? Þá gæti áfallið viö að sjá elskuna sína standa þar vitandi að ég var dáin og grafin — þá gæti þaö kannski valdið hjartaáfalli. Svo ég stóð upp, sneri mér aö Ronnie við rúmstokkinn og einbeitti mér gífurlega. Smám saman fann ég sjálfa mig verða að föstu formi. Ég byrjaði efst á höföinu og þegar herðarnar voru komnar í ljós hafði Ronnie tekið eftir mér. Augun í honum urðu stærri og stærri og munnur- inn opnaöist. Ég held að hann hafi verið að reyna að segja eitthvað en honum tókst það aldrei almennilega. Hann var svo skrítinn í framan. . . Það hefði áreiðanlega ekki rétt áhrif ef ég færi að flissa, hugsaði ég með mér, svo að þegar tærnar á mér voru loksins orðnar að föstu formi setti ég upp grimman svip og gerði þaö eina sem ég gat ímyndað mér að gæti ýtt honum yfir um, ef ég má komast svo að oröi. Mjög hægt og leik- sviðslega (hefði átt aö verða leikkona, hugsaöi ég) reisti ég upp hægri hönd mína þangað til ég benti á hann, hrópaði svo hræðilegri röddu „MORÐINGI”. Áhrifin létu ekki á sér standa. Ronnie nötraöi allur og reyndi aö ná andanum, teygði sig í töflurnar, en auðvitað voru þær ekki þarna — og svo var allt yfirstaðið. Ég athugaði hjartslátt hans og andardrátt, eins og þeir gera í kvikmyndum, og hann var steindauöur. Mér hafði tekist það. Nú þurfti ég bara að breyta mér aftur. Jæja, ég einbeitti mér og hugleiddi og gerði allt það sem á að gera — en allt til einskis. Ég hlýt aö hafa verið þarna í margar klukkustundir að reyna að komast aftur yfir. En ég gat hreinlega ekki gert þaö, hversu mikiö sem ég reyndi. Svo hér er ég, aftur þar sem ég byrjaði, með þetta stóra hús og alla þessa peninga og engan eiginmann til að deila því með. Og þarna er Ronnie, einn og yfirgefinn án mín á hinum staðnum. Allslaus, reyndar.. . Aumingja Ronnie. 52. tbl. Vikan 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.