Vikan


Vikan - 29.12.1983, Qupperneq 34

Vikan - 29.12.1983, Qupperneq 34
Að stun „rétta" Bókasöfn eru heilmikið tilfinningamál hjá fólki. Það er ekki nóg að bókasöfn verði að hafa góðan bókakost, þau verða að skapa fólkinu sem þau sækir „rétta" andrúms- loftið. í London eru mörg bókasöfn í eigu ríkis og einkaaðila. Eitt þeirra nefnist einfaldlega London Library. Þeir sem sækja það verða að gerast meðlimir og Bretar hafa séð ástæðu til að gera smáúttekt á þeim sem fá bækurnar sínar lánaðar í London Library, í gamni og alvöru. Sumir halda því fram að þeir sem komi á safnið séu harðlínumenn í bóklestri sem ekki séu ánægðir með það sem gefið er út af bókum nú á dögum. Þeir sem fari í hillurnar og nái sér í sjaldgæfa skáldsögu frá þriðja áratugnum komist oft að raun um að bókin sé mjög vinsæl meðal lánþega safnsins. En til eru þeir sem þykjast sjá fleira en bókaáhugann einberan í lánþeg- unum. Sumir kalla safnið næstbesta klúbb- inn í London, aðrir eru kannski að sækjast eftir „réttum félagsskap". Safniö var stofnað á 19. öld af Thomas Carlyle, umdeildum manni í sögu, heimspeki og fleiri fræðum. En safnið sem hann kom á fót er óumdeilanlega eitt hiö viðurkenndasta sinnar tegundar. Sagt er að ef skrattinn sjálfur týndi skránni yfir íbúa vítis myndi hann bara drífa sig á safniö og fá sér annaö eintak. Hæstvirtir lánþegar og lánleysingjar Meðal lánþega eru Karl Bretaprins, Adam Ant og Stanley Kubrick. Fyrrum lánþegar eru m.a. Charles Dickens, Kipling, Tennyson og T. S. Eliot og þess er minnst að Aldous Huxley lét safniö senda sér bækur alla leið til Kaliforníu. Karl prins sendir hins vegar alltaf einhvern fyrir sig þegar hann fær bækur lánaðar, eins og aðrir úr kóngafjöl- skyldunni gera reyndar líka. Douglas Matthews bókavörður segir að það séu alls konar bækur sem sendar eru kóngafjölskyld- unni: „Auövitaö aðallega upplýsingarit, til dæmis um staði sem hún heimsækir og mál sem þarf að setja sig inn í, en svo hefur verið beðið um Notes Towards Defination of Culture eftir T. S. Eliot og ég geri ráö fyrir að sú bók hafi veriö lesin. ” Ekki eru þó allir yfir sig hrifnir af safninu. Skáldkonan Virgina Woolf, sem að vísu var meðlimur, sagöi aö þetta væri ekkert nema „reykmettaður staður uppþornaðrar menn- ingar”. Það var reyndar árið 1915. En nú er til þess tekiö að nýjasta lárviöarskáld þeirra Breta er ekki meðlimur (það hefur ekki komið fyrir í manna minnum) og einnig þykir tíöindum sæta að okkar ágæti Magnús Magnússon, sem er frægur í menningarlífi Bretlands, skuli ekki vera meðlimur. Jarlinn af Longford sagöi upp skírteininu sínu og sagðist ekki lengur hafa ráð á að vera meðlimur í safninu (árgjaldið er um 60 sterl- ingspund). Hann er þó talinn nýta sér skír- teini konunnar sinnar í laumi. Bók f útláni í áratug — engar sektir Allir geta orðið meðlimir, ef þeir borga ár- gjaldiö sitt, þeir geta fengið bækur lánaðar út, 34 Vikan 52. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.