Vikan


Vikan - 29.12.1983, Blaðsíða 46

Vikan - 29.12.1983, Blaðsíða 46
FRAMHALDSSAGA þaö gekk maöur framhjá hinum megin viö gluggann. Þetta var arabinn, „Jembe” — Salim Abeid — sem var í flugvélinni frá London. Hún sá hann stansa í skugganum af húsi skammt frá og tala við mann sem virtist hafa beðið þar, ólífulitan araba í vel sniðnum hvítum jakkafötum. Salim Abeid virtist tala af sama ákafa og hann hafði sýnt í Napolí og Dany velti því fyrir sér hvort samræðurnar snerust enn um stjórnmál. Hann baðaði út hönd- unum, yppti öxlum og augu hans skutu gneistum. Félagi hans sýndi lítinn áhuga og burtséð frá því að hann gaut augunum stöku sinnum að úrinu sínu datt hvorki af honum né draup. Salim Abeid sneri sér við og bandaði hendinni í átt að glerhlið- inni á brottfararsalnum. Sem snöggvast fannst Dany arabinn í hvítu fötunum horfa beint á hana og enn einu sinni greip hana skelf- ing. Ef til vill var þetta lögreglu- maður, arabískur lögreglumaður. Ef til vill var þessi „Jembe” að segja honum frá henni, að hann hefði séð hana í anddyrinu á Airlane í London. Eöa það sem verra var — enn verra — var það hann sem myrti hr. Honey wood og leitaöi í herberginu hennar á Airlane — og ætlaði að nota á hana klóróformínótt? Dany fann að hjarta hennar byrjaði aftur að slá ótt og títt og hún skimaði í ofboði eftir Lash — eöa Larry. En Lash var lengst í burtu, hinum megin í salnum, og einokaöur af Amalfi Gordon. Larry, sem virtist svolítið þreyttur, var að sækja kaffibolla fyrir frú Bingham. Hann brosti til hennar yfir þéttsettan salinn og skelfing hennar sjatnaði óvænt. Hún var aö gera sér grillur og hegðaði sér, eins og Lash hafði sagt, ámóta og móðursjúk kven- hetja í sápuóperu. Aðstæöur hennar voru víst áreiðanlega nógu hættulegar þótt hún færi ekki að búa til grýlur til að hræða sjálfa sig enn meira með. Og þó. . . „Farþegar með flugi núll þrír fjórir til Mombasa, Tanga, Pemba, Zanzibar og Dar-es- Salam eru vinsamlegast beðnir um að fá sér sæti í vélinni,” til- kynnti líkamslaus grafarraust. Appelsínugul Afríkujörðin rann burt undan þeim, víðátta sólbakaðrar jarðar og flattoppa þyrnitrjáa, doppótt af hægfara flekkjum sem voru gíraffar og sebrahestar, gnýir og reikandi antilópuhjarðir á beit — því þetta var þjóðgarðurinn í Nairobi. Stakt hvítt ský, með daufum bleikum bjarma, hvíldi í köldum bláma morgunhiminsins og þegar það nálgaðist sá Dany að þetta var ekki ský heldur fjall. Stakt snævi krýnt fjall sem minnti óljóst á japanska mynd af Fuji-yama. Kilimanjaro, „fjall kulda- djöflanna”, gnæfði einmana yfir ofboðslegri, rykbrúnni víðáttunni; útbrunniö eldfjall með snjóum sem storkuðu brennandi Afríku- sólinni. Rödd úr sætinu fyrir aftan Dany, karlmannsrödd, hvell, hátóna og að því er virtist yfir- veguð eftirherma þular á þriðju rás BBC, sagði: „Já — fremur til- komumikil sýn, er ekki svo? Og sagt er að skrokkur af hlébarða sé í gígnum, frosinn við ísinn. Enginn veit hvernig hann komst þangaö. Dásamlega spennandi, finnst þér ekki? Eg elska leyndardóma! ” Dany hreyfði sig eins og til aö snúa sér viö og líta á þann sem talaði en hönd Lash skaust fram og greip aövarandi um úlnliö hennar. „Ponting,” sagði hann hljóðlaust og Dany flýtti sér aö einbeita sér aftur að útsýninu. Sessunautur Nigel Pontings virtist vera frú Bingham og með þaö fyrir augum að fræöa hina fá- vísu — eða hugsanlega vegna þess að hann naut þess að heyra rödd sína — hóf hann langan fyrir- lestur um Kenýa. „Og þú hefur bókstaflega ekki hugmynd um hvað það eru frumstæðir vegir inni í landinu,” skrækti hr. Ponting. „Ég get fullvissað þig um að þetta eru ekki meira en slóöar. Kvalræði fyrir hjólbarðana! Svo aö ekki sé nefnt á manni bakið! En þegar maður er svo á endanum kominn þangað er þetta alveg dásamlega sviphreint. Hinir innfæddu — dýrin — landslagið! Hrífandi frumstætt. Miklu betra en lág- lendið í Kenýa og landnema- svæöið sem minnir svo óþægilega á fyrir-fyrri-heimsstyrjöld finnst mér ævinlega. Of poona, finnst þér ekki? En aftur á móti norður- svæðin...” Rödd hans hjalaöi í síbylju á- fram eins og vatn sem lekur úr biluöum krana, við og við rofin af daufum athugasemdum frá HÁRSNYRTISTOFAN KLIPPÓTEK Dömu- herra- og barnaklippingar. Permanent Djúpnæringarkúrar Glansskol og Hennalitanir Strípulitanir KADUS — TERMINAL hársnyrtivörur HÁRSNYRTISTOFAN KLIPPÓTEK Eddufelli 2 — Fellagörðum (gegnt Fellaskóla) Sími 71380. I------- 46 Vlkan 12. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.