Vikan - 29.12.1983, Qupperneq 48
FRAMHALDSSAGA
Gussie Bingham (sem sjálf var
enginn viövaningur í einræðum en
hafði fundið ofjarl sinn þessa
stundina) og þetta hefði verið
ósköp róandi hefði hann ekki
byrjaö að tala um Dany.
„Ég botna ekki í þessu,” sagöi
Nigel Ponting áhyggjufullur. „Ég
get bókstaflega ekki skiliö það.
Engin skilaboö á hótelinu og ekki
einu sinni búiö að afpanta her-
bergið. Maöur verður að vona að
Frost-hjónin hafi fengiö
símskeyti, en í alvöru — ég vissi
ekki hvort ég átti að fara eöa
vera! Ætli stelpuskömmin hafi
ekki orðið sér úti um einhverja
flekkjaveiki, mislinga eða ein-
hvern ámóta skólastúlku-
sjúkdóm.”
Lash sneri höfðinu og glotti ill-
kvittinn til Dany en henni var ekki
hlátur í huga. Hún var farin að
þreytast á því að heyra talaö um
sig eins og hún væri skólakrakki
og hvað sem öðru leiö sá hún
ekkert fyndið við að þurfa aö
hlusta á þessar samræður.
„Eiginlega,” sagöi Nigel, „er
þaö vegna frú Ashton sem ég er
staddur hérna. Bróður þínum
fannst líta vel út að láta taka á
móti henni í Nairobi og eflaust
hefði það sparað þér ómak ef ég
hefði sinnt henni og vísað henni
um borgina. Svo hann var svo
vinsamlegur að leyfa mér aö fá
stutt frí um þessar mundir til að
það félli að dagsetningunni og svo
lét stelpuskömmin ekki sjá sig!
Andstyggilegt af henni því ég býst
alveg við því að veröa sendur
aftur að taka á móti henni þegar
hún loks kemur. Og ég hef and-
styggð á flugferöum. Ég læt það ef
til vill ekki uppi, en ég er bókstaf-
lega alltaf skelfingu lostinn í flug-
vél. Ertu það ekki líka?”
„Nei,” sagði Gussie Bingham,
greip tækifærið tveim höndum.
„Ég get ekki sagt þaö. En ég er
auðvitað forlagatrúar. Ég hef trú
á því að hafi forlögin ætlað mér að
deyja í flugslysi þá deyi ég í flug-
slysi. Það er nú allt og sumt. Og sé
svo ekki er ekki fleira að hafa
áhyggjur af. Allt, kæri Ponting
minn, er fyrirfram ákveðið. Allt!
Það er engin tilviljun til. Þegar
maöur hefur skilið þennan
einfalda en mikilvæga sannleika
veröur lífið miklu einfaldara.
Maöur hættir að hafa áhyggjur.”
Hr. Ponting rak upp hvellt
andmælaóp. „Ö, nei, nei, nei, nei,
frú Bingham! Ég get ekki verið
þér sammála. Kenningin um aö
allt sé fyrirfram ákveðið hlýtur að
vera röng, jafnvel þó hægt væri að
færa sönnur á hana. Hún er svo
geölaus. Fólk hlýtur þó að grípa
tækifærin og móta þau að vild
sinni?”
„Þetta segir Millicent. Viö
deilum mikið um þetta. En það er
sannfæring mín að þegar við
höldum að við séum aö grípa
tækifæri séum við einfaldlega að
gera eitthvað sem okkur var á-
skapað aö gera og getum ekki
komist undan. Eins og til dæmis
þegar við fórum frá Lydon Gables
og til London, þá vorum við
komnar hálfa leið niður á stöö þeg-
ar ég mundi eftir að ég hafði tekið
vegabréfiö mitt upp úr veskinu
hennar Millicent til að sýna
vinkonu minni (verulega hlægileg
mynd!) og skiliö það eftir á
píanóinu. Við þurftum auðvitað að
flýta okkur til baka og hvað
heldurðu! Við sáum að logandi
kolamoli hafði dottiö úr arninum í
setustofunni og teppið var þegar
byrjaö að sviðna! Frú Hagby hefði
ef til vill ekki gefist tilefni til að
fara þangað inn í nokkra klukku-
tíma og heföum við ekki komið
aftur hefði húsiö ef til vill brunnið
til grunna!”
„Mikil heppni,” samsinnti
Nigel Ponting.
„Heppni? Hreint ekki. Okkur
var ætlaö að snúa við. Mér var
ætlað að skilja vegabréfið eftir og
hefði þar af leiðandi ekki getað
annað.”
Nigel flissaði svolítið. „Og ef
þiö hefðuð nú misst af lestinni og
ekki komist til London og
tímanlega á flugvöllinn? Hefði
það líka verið ykkur ætlað? ”
„0, en við áttum ekki aö missa
af lestinni! Sem betur fer var hún
seint á ferðinni. En jafnvel þó hún
hefði ekki verið þaö hefðum við
ekki misst af flugvélinni vegna
þess að við fórum tveimur dögum
fyrr til London, síðdegis þann
tólfta, og bjuggum á Airlane því
Millicent þurfti að versla og. . . ”
Daný tók eftir einhverri
hreyfingu við hliðina á sér og sá
að Lash hafði allt í einu gripið
fastar um blaðið sem hann hélt á
svo ytri dálkarnir voru krumpaðir
og ólæsilegir. En hann hlaut að
hafa vitað að frú Bingham og ung-
frú Bates bjuggu á Airlane? Og
hann gat þó ekki ímyndað sér . . .
Framhald í næsta blaði.
ÞVERHOLTI
MOSFELLSSVEIT
SÍMI 66090
Alhliöa
hársnyrtiþjónusta
fyrirherra, dömur
oy börn
Umboðsadilar fyrir Model-sport. Kreditkortaþjónusta
48 Vikan S2. tbl.