Vikan - 27.12.1984, Page 58
Barna— Vikan
Eldspýtnaþrautir áramótanna
Flestir fullorðnir birgja sig upp af
eldspýtum fyrir jól og áramót því
það er eins gott að ekki vanti eld-
spýtur þegar kertin eru tendruð yfir
jólahátíðina eöa kveikt á blysunum á
gamlárskvöld. Nú skuluð þið safna
saman öllum þeim eldspýtum sem
þið komist yfir og leggja nokkrar
þrautir fyrir systkini ykkar,
mömmu, pabba, afa og ömmu, já,
eða fyrir gestina í jólaboðunum og
um áramótin. En það má aðeins
nota eldspýtur sem einhverjir full-
orðnir hafa kveikt á því eins og þið
vitið eflaust öll mega böm ekki fikta
með eldspýtur.
Búið til þríhyrninga úr 13 eldspýtum
eins og myndin sýnir. Með því að
taka í burtu þrjár eldspýtur eigið þið
að geta fengið þrjá þríhyrninga.
ÞRÍHYRNINGAR OG FERN/NGAR
ÞRAUT1.
■y \r y 1 ~
n íl -r
Takið 16 eldspýtur og búið til fimm
ferninga eins og myndin sýnir. Getið
þið nú fært til 3 eldspýtur þannig að
eftir standi 4 ferningar?
ÞRAUT3.
Takið 9 eldspýtur og búið til þrjá þrí-
hyrninga. Með því að færa til þrjár
eldspýtur eigið þið að geta talið 5
þríhyrninga (þeir mega vera mis-
stórir).
ÞRAUT5.
o
Búið til exi eins og myndin sýnir og
notið í hana 9 eldspýtur. Færið til 5
eldspýtur þannig að úr verði 5
þríhyrningar.
ÞRAUT2.
> ÞRAUT6.
Þessi er fyrir þá sem alveg örugg-
lega geta talið upp á 36 og geta raðað
U _____öllum eldspýtunum svona vel!
'qC
Þessi þraut er aðeins flóknari en
þarna eru líka notaðar 16 eldspýtur.
Búið nú til þríhyrninga eins og
myndin sýnir — þetta eru 8 þríhyrn-
ingar. Getið þið nú fundið út hvaða
fjórar eldspýtur á að taka í burtu
þannig að eftir standi 4 þríhyrn-
ingar.
Þegar búið er að búa til alla þessa
ferninga er vandamálið að taka í
burtu aðeins 4 eldspýtur en fá út 9
ferninga. (Agætt að láta þá eldri
spreyta sig á þessari.)
58 Vikan 46. tbl.