Vikan


Vikan - 13.06.1985, Blaðsíða 23

Vikan - 13.06.1985, Blaðsíða 23
16. júní: Sá sem fæddur er þennan dag er skjótráður og skemmtilegur en dálítið ör í lund. Athafnasemin er mikil og stundum veröur löngunin eftir aö láta til sín taka svo sterk aö hún veldur áberandi eirðar- leysi. Orkan er ótæmandi og veltur mikiö á því aö hún fái eðli- lega útrás. Ef afmælisbarnið finnur ekki athafnaþrá sinni hæfi- legan farveg er hætt viö aö af- leiðingin veröi vanlíðan og takmarkalaus óþreyja og eirðar- leysi. Sá sem fæddur er í dag þykir skemmtilegur félagi og hann á auðvelt með að afla sér félaga en nær samt ekki ævinlega að tengjast fólki nánum böndum. Hættir dálítið viö þunglyndi. Starf svettvang kýs hann sér helst í viðskiptum, blaðamennsku eða þar sem kostur er á tíðum ferða- lögum. Þar munu eðliskostir afmælisbarnsins, skjótræöi og snörp greind, njóta sín vel. Sá sem fæddur er í dag er ekki til þess fallinn aö stunda störf sem ekki sýna árangur fljótlega. Honum mundi til dæmis henta báglega að fara út í skógrækt á örfoka landi eða brunahrauni. Þar þarf aðra eiginleika en þeim eru gefnir sem fæddir eru þennan dag. Á hinn bóginn má ætla að afmælisbarnið muni komast ágætlega af þótt ekki safnist því neinn stórgróði. Hvað varðar ástina og samskiptin viö hitt kynið skiptast vissulega á skin og skúrir. Skemmtilegheitin afla afmælis- barninu nægrar athygli og aðdáundar en það endist ekki alltaf fram yfir fyrstu kynni. Sá sem fæddur er í dag hrósar reyndar stundum happi yfir þessu því innst inni er hann óviss um hæfileika sína og ekkert of fús að setja þá undir mæliker. Hann lætur sér yfirleitt nægja að daðra og gerir þaö af hjartans lyst og stundum af íþrótt. Um síðir kemur þó aö því aö makinn finnst og þá er mikið undir því komið að makinn skilji og skynji hinar dýpri hræringar afmælisbarnsins en dæmi það ekki af útlitinu og hranalegum andsvörunum einum saman. Heillatölurer5og7. + + + * ¥ 17. júní: * * * * * Þeir sem fæddir eru þennan dag eru vissulega allólíkindalega af guði gerðir. Þeir eru snöggir til átaka en stundum dálítið latir. Þeir eru fljótir að átta sig á hlutunum en þó annað veifið ótrúlega skilningssljóir. Þeir eru reikulir í ráöi en eiga þó til að vera hverjum manni þrautseigari þeg- ar þeir vilja það viö hafa. Hæfileikamir eru víða og helst er sú hætta á ferðum aö fjölhæfnin komi niður á rótfestunni og af- mælisbarnið festist lítt við það sem það tekur sér fyrir hendur. En ef það nær tökum á góðum gáf- um sínum og tekst aö hemja sig nógu lengi til þess aö ná settu marki eru flestar leiðir færar. Það verður þó varla brýnt nógu duglega fyrir þeim sem fæddir eru þennan dag að láta ekki fjötra sig viö einhæf og tilbreytingarlaus störf. Tilbreytingin og nýjung- arnar eru eins og andrúmsloftið þeim sem fæddur er þennan dag, annars veslast hann upp eins og planta í þurrki. Starfið verður líklega helst tengt flutningum og ferðalögum en þó kemur til greina að afmælisbarnið hasli sér völl í störfum sem tengjast útgáfu eöa prentverki. Ekki verður sagt um afmælis- barniö að stöðugleiki og trygg- lyndi setji svip sinn á tilfinninga- lífið. Þvert á móti er þar æ ofan í æ róið á ný mið og þess vandlega gætt að festa ekki trúss við neitt til langframa. Auðvitaö kemur samt að því að sá sem fæddur er í dag kýs að leggja að í hinni tryggu höfn hjónabandsins en það er af hagsýni og trúlega gert þegar fiskunum er farið aö fækka. Ekki eru líkur á barnmörgu hjónabandi því satt aö segja telur afmælis- barnið börn vera aöallega til trafala í heimilishaldinu. Heilsufar er gott nema hvað hætt er við kvefi og ofnæmi. Heillatölur eru 5 og 8. * * * * * 18. júní: * * * * * Hér fara saman dágóður skammtur af viljastyrk og at- hafnaþrá. Þessu fylgja miklir forystuhæfileikar og útsjónar- semi. Vinnugleðin er geysileg og fer stundum út í öfgar. Afmælis- barninu hættir til þess, eins og mörgum sem gæddir eru góðum gáfum og sterkum vilja, að telja sjálft sig ómissandi. Því á það erfitt með að slaka á og enn erfiðara með að taka sér frí. Það er þó bót í máh að ef afmælisbarn- inu verður þetta ljóst getur því tekist ágætlega að hafa stjórn á öðrum og fá þá til að vinna með góðum afköstum. Sá sem fæddur er þennan dag er borinn til mannaforráða og honum eða henni farnast best ef kostur gefst á ábyrgðarmiklu starfi í fyrirtæki eða hjá ríkinu. En þrátt fyrir þennan metnað í lífinu er afmælis- barninu gefið að horfa léttilega á lífið. Trúlega er ekki nein hætta á að afmælisbarnið leggi árar í bát þótt á móti blási. Skynsemin ber gjörsamlega ofurliði allar tilfinningar svo þeim sem fæddur er þennan dag er engin hætta búin af neinum ævin- týrum í sambandi við hitt kyniö. Afmælisbamið leggur ekki út í nein ævintýri, samskiptin við hitt kynið eru yfirveguð og vandlega undirbúin. Það gefur auga leið að hjónabandiö verður fremur farsælt en geislandi af hamingju. Afmælisbamið leggur mest upp úr ráðdeild og heiöarleika en lætur sig minnu skipta þótt hugmynda- auðgin sé ekki upp á marga fiska. Heilsufar er almennt gott en nokkur hætta á streitu og kvillum sem henni fylgja. Heillatölur eru 9 og 5. * + + + + 19. júní: * ¥ * ¥ * Afmælisbam dagsins er spaug- samt, greint og skemmtilegt. Sá sem fæddur er í dag er gefinn fyrir að láta hlutina gerast og það fljótt. Athafnasemin bókstaflega ólgar í blóöinu. Afmælisbarnið er kjaminn í hverjum hópi og þykir með afbrigðum fyndinn og léttur félagi. En kímnin er einatt bara á ytra borði og undir er kvika. Þótt sá sem fæddur er í dag þyki taka lífinu með lítilli alvöru og stundum jafnvel snúa alvar- legustu málum upp í fáránlegt grín er hann í eðlinu tilfinninga- samur, rómantískur og auösærður. Háöið er bara brynja sem viðkvæm vera bregður yfir sig í varnarskyni. Sá sem fæddur er í dag er gefinn fyrir þessa heims lystisemdir og leitar þar líkast til algleymis frá vonsku verald- arinnar. En í þessari þrá eftir þessa heims gæðum er jafnframt fólginn eilítill broddur af sjálfs- eyðingarhvöt sem hafa verður gát á. Starfið verður líklega helst í tengslum við siglingar og sjómennsku en þó er ekki hægt að útiloka að afmælisbarniö taki að fást við listir. Raunar getur þaö einnig gerst að þetta verði allt saman hluti starfsins og þaö snúist öðru fremur um viðskipti. Líklegt er að afmælisbarnið verði sterkefnað og mun það koma þeim sem næst standa mjög á óvart. Tilfinningalífið veröur af- skaplega sveiflukennt. Afmælis- barnið sveiflast frá því sem nálg- ast að vera hin algjöra fullsæla til hinnar dýpstu örvæntingar. Ástar- ævintýrin eru mörg og sum svo heit að þau brenna. Líkur eru á fleiri en einu hjónabandi. Taugarnar eru viðkvæmar og afmælisbamið kann á stundum að þarfnast góðrar hvíldar frá amstri hversdagsleikans. Heillatölur eru 2 og 6. 24. tbl. Víkan 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.