Vikan - 13.06.1985, Qupperneq 33
Fyrir utan hallirnar eru garöarnir
stórfenglegir — hægt er að leigja
sér hjól og ferðast um allan dag-
inn. Inn á milli í görðunum eru
margar smáhallir sem eru jafnvel
forvitnilegri en stóra Versalahöll-
in sjálf. Einnig er skógurinn, Bois
de Vincenne, ógleymanlegur, þar
er stærsti dýragaröur Frakk-
lands. Boulogneskógurinn er sögu-
frægur en ekkert sambærilegur
hvað fegurð snertir.
Bátsferð á Signu er vinsælt
skemmtiefni ferðamanna — að
fara að kvöldi og borða á staðnum.
Þeir sem vilja sjá Lido geta farið
upp á Champ Elysées og tyllt sér í
röðina sem bíður eftir að komast
inn í dýrðina. Þar eru menn reknir
eins og rollur í rétt — allt Amerík-
anar, Japanir og einstaka íslend-
ingur. Frakkar sjást varla á
staðnum. Inn er þér þrýst, vísað
til sætis og „sjóið” byrjar sam-
stundis. Þarna er ekki veriö að
eyða mínútu til ónýtis, þegar sýn-
ingunni lýkur ertu umsvifalaust
rekinn út aftur og næsta holl renn-
ur inn. Svipaö er að segja um
Rauðu mylluna og Crazy Horse
Saloon, þótt þar séu menn ekki
jafnlágt metnir og í Lido.
Verslunarferðir eru skemmti-
legar í París og þar ættu allir aö
geta fundið eitthvaö viö sitt hæfi.
Odýrast er að versla í Latínu-
hverfinu og líka eru góðar en ekki
dýrar verslanir í Forum og þar í
kring. Dýru búðirnar eru á rue
Faubourg St. Honoré þar sem allir
helstu tískukóngamir eru hver
með sína verslun og vel þess virði
að fara í skoðunarferð þótt fjár-
ráöin leyfi varla meira. Ef pen-
ingaveskið er svo úttroðið að
vandræði eru að setjast fyrir því
er það snarlega bætt með innkaup-
um þarna í næstu verslun. Uppi á
blv. Haussman eru svo hin geysi-
stóru Galeries Lafayette en oftast
er ódýrara að versla í smábúðun-
um í hliðargötunum þar í kring.
Nærri Lafayette er íslenska
sendiráöið — við blv. Haussman
númer 124. Flugleiðaskrifstofan
er svo þar skammt frá, á blv. des
Capucines númer 9. Síminn er 742
5226.
Centre Georges Pompidou — Bauborg — er annar samkomustaður lista-
manna. Fyrir utan á stéttinni eru bæði myndlistar- og tónlistarmenn með
alls kyns uppákomur og engum þarf að leiðast þótt dvalið sé klukku-
stundum saman. Safnið innandyra og annað þar er lika margra daga verk
að kynna sér að ráði.
Það er aldrei dauður punktur í þessari borg. Á næsta götuhorni í Gyðinga-
hverfinu var alvöru bankarán — eins og i besta sjónvarpsþætti og einka-
spæjarinn sem leysir málið kannski í næsta glugga. Þjófurinn sennilega
inni i bankanum og ekki öfundsverður af þvi að eiga eftir að smeygja sér út
— óséðurl
Nokkrir veitingastaðir:
Eiffel Tower Restaurant — Jules
Vernes
í Eiffelturninum sjálfum
Le Quai d'Orsay
á Quai d'Orsay við Signu
Beanvilliers
52 rue Lamark (við Montmartre)
Rottiserie L'Abbaye
16 rue Jacob
Restaurant Vagende
blv. St. Germain
Tveir siðustu eru með fleiru en
aðeins fóðrinu —
La Coupole
102, blv. Montparnassse
Þarna koma saman á kvöldin sumir
þeir frægustu, svo sem Brooke
Shields og þess háttar klassapiur.
New York
144 rue Notre Dame d'Victoires
Hérna syngja þjónarnir klassisk
verk á meðan stjanað er við gest-
ina. Það hlýtur að vera erfitt fyrir
kvenþjónana að ná háa C-inu á
hlaupum!
Restaurant Dodin Bouffaut —
franskur
25 rue Fréderic Sauton
Sími 325 2514
Clementine — italskur
101 ruede Seine
Sími 326 6480
Le Toscana — mjög góður
7 rue de Pontheu
Sími: Rond Point des Champs Elysées
Chez André — dýr og góður, fólk fer
og biður i röð eftir sæti
12 rue Marbeuf
Sími 720 5957
Del Papa Restaurant — góður
ítalskur
Rue du Fauborg St Honoré
(Plaza Ternes)
Nos Ancétres Les Gaulois —
franskur i vikingastil, góður og
hræódýr — sérstaklega góð til-
breyting
39 rue Saint Louis en l'lsle
Sími 633 6607
Restaurant Au Chateaubriand
23 rue de Chabrol
Sími 824 5894
LeToitde Passy
Ax94 avenue Paul Doumer
Sími 524 5537
Grandgousier Restaurant
17 avenue Rachel
Simi 387 6612
Les Pieds dans L'Eau — var mjög
góður og virtur
39 Boulevard du Parc
Sími 747 6407
Le Chateau Frontenac
54 rue Pierre Gxx Charron
Sími 723 5585
Le St. Moritz
33 avenue de Friedland
Simi 561 0274
Passy Mandarin — kínverskur og
einn sá besti af þeirri gerð
6 rue Bois le Vent
Simi 288 1218
Ho — franskur, sömu eigendur og Julien
7 courdes Petites —Écuries
Simi 770 1359
Le Couple Chou — franskur, elsti
veitingastaður í Paris og i elstu hús-
um borgarinnar
9—11 ruede Lanneau
Simi 633 6869
Le Moulin du Village
24 rue Boissy d'Anglas
Simi 265 0847
Faugeron
52 rue de Longchamp
Sími 704 2453
Jaqueline Fenix
42 avenue Charles de Gaulle
Sími 624 4261
Julien — sömu eigendur og Ho
16 rue du Fauborg Saint Denis
Simi 770 1206
Restaurant Tourane — sæmilegur,
víetnamskur og kinverskur — mjög
ódýr
22 rue de la Montagne Sainte Gene-
viéve
Sími: 326 3882
„Sósustaðimir tveir"
Au Coeur St. Germain
120 Boulevard St. Germain og
Le Relais de Venice
271 Blv. Pereire
Þessir tveir „sósustaðir" eru sérlega
ódýrir og um einn rétt aö velja. Sósan
með kjötinu er alveg sérstaklega góð og
maturinn yfirleitt óbrigöult góður.
24- tbl. Vikan 33