Vikan - 13.06.1985, Page 35
Draumar
Barn úr
búðinni
Kœn draumráðandi!
Vildirðu vera svo vænn
að ráða þennan draum fynr
mig.
Eg var niðri í bæ og varð
allt í einu svöng. Eg litaðist
um og kom auga á grænan
bíl sem búið var að breyta í
sjoppu. Eg gekk þangað og
keypti mér eitthvað sem ég
vissi ekki hvað var. En
þegar ég er að borga kem
ég auga á þrjá kassa og eitt
smábarn t hverjum. Eg spyr
manninn í sjoppunni hvað
hann sé að gera með smá-
börn t sjoppunni en hann
segir að ég megi hirða eitt.
Eg tek lítinn strák en þá er
hann ekki í neinu nema
bleiu, sokkabuxum og
peysu þannig að ég fer úr
úlpunni og geng afstað. Þá
er ég allt í einu komin
heim og X (eins og við
skulum kalla hann) kemur
á móti mér á hjóli með
kókflöskur í hendinni. X
stoppar og spyr hvað ég sé
með og ég sýni honum litla
strákinn og segi honum alla
söguna. Við förum svo í
heimsókn t hús en þá er
annað fólk komið í húsið
og ég er neydd til þess að
sýna þessu ókunnuga fólki
strákinn.
Þá ræðst konan á mig og
ætlar að taka barnið frá mér
en ég berst á móti og við
það vaknaði ég.
Draumurinn varð því ekki
lengri. Viltu reyna að ráða
hann fyrir mig. Eg hef ekki
hugsað um annað síðan
mig dreymdiþetta.
Litla ögn.
Kæra litla ögn. Gamalt
íslenskt máltæki segir: Böl
er ef barn dreymir nema
sveinbarn sé og sjálfur eigi.
En fleira kemur til í
þessum draumi sem hægt
er að styðjast við. Þó er ekki
hægt annað en taka fram
að þessi draumur er
aðvörun. Þótt ekki sé það
einhlítt virðist mega ráða
drauminn á þann veg að
þeir sem þú reiknar síst með
að geri slíkt reyni að spilla á
milli þín og manns sem þér
er kær. Þó eru margar
vísbendingar í draumnum
um að þetta muni allt fara
vel að lokum.
Loðin í
andliti
og með
ljónsunga
í bandi
Kæri draumráðandi.
Eg er með tvo stutta
drauma sem mig dreymdi
nýlega. Oska ég að fá þá
ráðna. Sá fyrri var þannig:
Eg var að spegla mig og brá
mér þá heldur en ekki í
brún því ég var orðin kaf-
loðin í andliti með löngum
svörtum hárum. Eg fer að
plokka þetta og situr þá við
hliðina á mér garnall kær-
asti og horfir á aðfanrnar.
Síðari draumurinn var á
þessa leið: Allt í einu var ég
komin með Ijónsunga heim
til mín, 3 eða 4 að tölu.
Þeir voru spakir og ég var
ekki mikið hrædd við þá.
Svo var ég farin að versla í
stórmarkaði og þá með
einn Ijónsungann í bandi.
Það var sá sem stærstur var,
hinir voru minni. Atti ég í
miklu basli við að koma
honum inn í bílinn en það
hafðist og fannst mér ég
binda hann úti meðan ég
var inni í versluninni.
Eg vonast eftir ráðningu
sem fyrst.
H.
Fyrri draumurinn er ekki
einhlítur. Ef þú ert gift
kona og hárvöxturinn í
andlitinu hefur minnt á
skegg er hann ekki góðs
viti. Hann boðar þá að
snurða hlaupi á þráðinn í
hjónabandinu. Ef þessi
hárvöxtur minnti á hinn
bóginn ekkert á skegg og
var á óeðlilegum stöðum í
andlitinu er hann fyrir
góðu, líklega fjárhagsleg-
um ávinningi. Ef það er
raunin munt þú samt verða
fyrir ámæli og öfund vegna
happsins.
Seinni draumurinn er
hins vegar ótvírætt fyrir
góðu. Sennilegast boðar
hann að þú munir koma
þér vel hjá yfirboðurum
þínum eða komast í ein-
hver tengsl við persónu sem
verður þér til góðs.
Guði sé lof fyrir allar framboósræóurnar. ísleifur þarf virkilega
á svefni að halda.
Á ég að boróa þetta? Ég? - Eini eiginmaðurinn sem þú átt?
24. tbl. Vikan 35