Vikan - 13.06.1985, Síða 36
Popp
JT Halldór R. Lárusson
Á 500 km hraða
með David Lee Roth
sér plötu í eigin nafni meö svona
lögum.
1984 var stærsta ár í sögu Van
Halen. Þá sendi Van Halen frá sér
sjöttu plötuna. Hún ber nafnið 1984
og var ein vinsælasta plata síöasta
árs í USA. Af henni urðu lögin
Jump, Panama og Hot for
Teacher geysilega vinsæl og þá
sérstaklega Jump. Meö þessari
velgengni komst Van Halen í
fremstu röð og má líklega segja aö
þeir félagar séu ókrýndir konung-
ar bandaríska rokksins ásamt
Bruce Springsteen.
Víst er aö ekki dregur hin
hressilega framkoma David Lee
úr vinsældunum og á ég þar við
bæöi utan sviös og innan, auk þess
sem maðurinn er ákaflega vinsæll
meöal kvenþjóöarinnar. Banda-
rísk blöö fylgjast með þeim mál-
um af mikilli natni en auövitaö er
þaö tónlistin sem hefur mest eöa
mikið að segja á þessum tímum
þegar útlit og persónulegt atgervi
manna skiptir ekki minna máli í
heimi vídeósins. Gítarleikari
Van Halen, Eddie Van Halen, er
án efa einn besti gítarleikari
rokksins núna. Þaö má kannski
taka fram aö hann leikur á hljóö-
færi sitt af mikilli snilld í lagi
Michaels Jackson, Thriller, á
samnefndri plötu og auk þeirra
Davids eru í hljómsveitinni Alex
van Halen sem leikur á trommur
og Michel Antony á bassa.
En snúum okkur aö David Lee
og plötunni hans. Eins og áður
segir haföi staðið til lengi að senda
frá sér plötu meö gömlum og
góöum lögum. David Lee var
staddur á einhverri sólríkri strönd
í Suður-Ameríku í fríi síðastliðið
haust eftir langt og strangt hljóm-
leikaferðalag og heyrði þá lag
Beach Boys, Califomia Girls.
Einn lífvaröanna í förinni sagði að
þetta væri lag sem hann (David)
ætti að syngja inn á plötu og það
var ekkert verið að tvínóna við
hlutina frekar en fyrri daginn,
menn þustu upp á herbergi, pökk-
uðu niður, síðan var ekið í
fimmtán tíma til næsta flugvallar
„Flestir menn kveikja á þeim
enda kertisins sem á aö kveikja á,
sumir kveikja á báðum endum,
aðrir kveikja í miðjunni en ég nota
eldvörpu á mitt kerti.”
Þannig fórust David Lee Roth,
söngvara bandarísku rokkhljóm-
sveitarinnarVan Halen, orö þegar
hann var spurður í sjónvarpsvið-
tali um hið vægast sagt hressilega
líferni sitt. Hann bætir við: „Allt
sem þið lesið um mig í blöðum og
tímaritum er rétt. Ég geri allt
fjórum sinnum hraðar og fjórum
sinnum oftar en nokkur annar, allt
sem ég geri á sviöinu er bein
afleiðing af þeim áhrifum sem
fólkiö hefur á mig í það og það
skiptið. Það er einmitt þetta sem
er dásamlegt við rokkið, það
mega ekki vera neinar reglur, það
er enginn skóli sem getur kennt
neitt í þessum bransa. Maður
veröur sjálfur að fylla í eyðurn-
ar.”
Eins og þið sjáiö, lesendur
góðir, tekur David Lee hressilega
til oröa og þannig er hann í öllum
viðtölum. Ég er efins um að það
finnist öllu frísklegri náungi í
poppbransanum, það bókstaflega
skín úr honum kraftur og lífs-
ánægjan.
í mars síðastliðnum sendi hann
frá sér fjögurra laga plötu með
gömlum lögum í nýjum búningi.
Ástæðuna fyrir útgáfu plötunnar
segir hann vera að honum leiddust
rólegheitin í kringum Van Halen
þá stundina og auk þess haföi
hann lengi langaö til aö senda frá
David Lee Roth.
David Lee Roth,
Eddi Van Halen
og nokkrir
vinir þeirra.
36 Vikan 24. tbl.