Vikan - 13.06.1985, Side 60
Gamli póstvagninn á gúmmihjólum? Nei, akki alveg. Uppistaðan er undirvagn úr
sendiferðabil — van, eins og þeir eru kallaðir fyrir westan — sem búinn hefur varið
yfirbyggingu i likingu við það sam gerðist á dögum landnemanna. Og ónsltanlega
minnir þetta ó póstvagn fré fyrri tið. Þetta ar gripur sam stórleikarinn og kyntáknið
Burt Reynolds lát smfða eftir eigin hugmynd og gaf honum pápa sinum að hafa á bú-
garðinum (ranch-inum) sem þeir feðgar eiga i Juplter i Flórfda. Gripurinn kostaði
ekki nema andvirði svo sem þriggja milljóna fslenskra pappirskróna.
Það getur verlð voðalega einmanalegt að þeytast um á mótorhjóli. Svo vilja þau
detta á hliðlna ef maður gleymlr að reka út löppina, tll dæmis þegar maður stansar
vlð rautt Ijós. Bill Underwood i Kalifornfu sá við þessu með þvi að setje afturpart af
bil aftan á mótorhjólið sitt I staðinn fyrir þetta hefðbundna afturhjól mótorhjólanna.
Eða kannski hann sé bara bilveikur.
. . . en áfram
skröltir hann
þó. . .
Menn hafa alltaf haft gaman af að dedúa við farar-
tækin sín og jafnvel búa sér til óvenjuleg eða skrípileg
farartæki. Sumt er gert í tilraunaskyni og verður hvorki
fugl né fiskur, svo sem eins og þegar menn voru (og
eru) að búa sér til vængi og ætla að knýja þá af sjálfum
sér svo dugi til flugs, eða einhvers lags báta eða
pramma úr tunnum, baðkerum eða öðru þaðan af fár-
ánlegra. Hér birtum við myndir af nokkrum óvenju-
legum bílum — ahemm, vélknúnum farartækjum að
minnsta kosti.
Þeir vita hvar skórinn kreppir, þeir sem bjuggu til þessa rennireið. Eigendurnir nota
hana til að komast f vinnuna á morgnana og heim aftur é kvöldin. Á daginn stendur
gripurinn fyrir framan fyrirtœki þeirra í Brugese f Belgíu. Fyrirtækið? Þaö er að sjálf-
sögðu skóverslun!
Þeir eru alveg f því í Kalifornfu að vera ööruvísi. Innan í þessum krókódíl er ósköp
venjulegur Ford Mustang 1977, en þegar ýtt er á flautuna hneggjor óargadýrið (eöa
brakar á þann hátt sem krókódflar gera, hvernig sem það nú er). Og svo er annar
takki f mælaborðinu sem lætur vatn sprautast aftur úr dýrinu, þiö vitiö, undir hal-
anum. . .
Séntilmann nokkurn breskan, sem á að minnsta kosti sumarbústað á Wighteyju,
langaði svo gasalega að eiga góðan hjólabát til að damla á í kringum eyjuna. Svo
hann bjó hann bara til. Og til þess að knýja hjólin setti hann gamla Mini-bílinn sinn út
á flekann milli hjólanna, skrúfaöi undan honum framhjólin (þar sem drifiö er) og
tengdi hjólabúnað prammans inn á þau í staðinn. Svo er bara að setjast upp í (hægra
megin, því þetta er í breskri lögsögu) og keyra af stað. . .
60 Vikan 24« tbl.