Vikan


Vikan - 12.09.1985, Síða 11

Vikan - 12.09.1985, Síða 11
FORTÍÐ Hvað er þetta? íslendingar hreykja sér oft af því að hafa góð tengsl við fortíðina, skilja fornsögurnar og halda sig vita flest um það sem fylgdi fornum þjóðháttum. En er það víst? Þekkja menn áhöld þau sem hætt er að nota? Hér er munur af Þjóðminjasafninu, vandinn er aö segja hvað þetta er og til hvers það var notað. Svarið er hér annars staðar á opnunni. Farið á fjörur Hér fylgja nokkrar nytsamar ábendingar um hvernig konur gefa til kynna aö þær séu til í tuskið: 1) Kona sem þenur nasavængina í sífellu vill meina: Hvaö ætlar þú að láta mig bíða lengi? 2) Kona sem strýkur hárlokk frá enni er að gefa í skyn: Sérðu ekki að ég er í algjörri biðstöðu? Eftir hverju ert þú að bíða? 3) Sú sem bleytir á sér neðri vörina segir í raun og veru ekkert annað en: Sérðu ekki að ég er sjúk í koss frá þér? 4) Krosslagöir armar á brjóstinu merkja: Ég er smeyk við þær til- finningar sem ég ber í brjósti. Geturðu samt ekki leyst þær úr læðingi? 5) Sú sem fitlar við fingurgull segir: Gettu einu sinni hvað mig langar mest til að gera? 6) Stelpa sem rótar í veskinu sínu algjörlega að ástæðulausu meinar ekkert annað en: Ég get ekki beöið lengur. Gerðu við mig hvað sem þú vilt. 7) Ef karlmaður er að gefa kone eld og hún grípur um leið um handlegg hans er hún ekki að biðja um neitt annað en ástareld. 8) Konu sem brettir upp ermarnar langar mest mest til að segja upphátt: Mest langar mig til að vera ber að ofan. 9) Ef stúlka sést strjúka á sér bæði lærin er hún að meina: Sérðu ekki að mig langar til að vera útlærð hjá þér? 10) Hendur á mjöðmum og fætur í sundur þýðir: Værir þú ekki til í ai stíga í ástaðið og svipta þér á bak. elskan? 11) Kona sem reykir og lygnir aftur augunum um leið segir í raun og veru: Rúmið er rétti staðurinn. 37. tbl. Vikan XX

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.