Vikan - 12.09.1985, Síða 15
Martin Ritt henni til bjargar og
bauð henni aðalhlutverkið í
Norma Rae. Leikur hennar þar,
sem verksmiðjustúlkan sem
verður verkalýðsleiðtogi, gerði
myndina sterka og áhrifamikla
og vakti um leið athygli á
slæmu ástandi í verkalýðsmál-
um í Bandaríkjunum.
Öllum leikstjórum, er unnið
hafa með Sally Field, ber sam-
an um að það sé auðvelt að
vinna með henni. Hún á einkar
auðvelt með að aðlagast per-
sónunum sem hún leikur og lifir
sig inn í hlutverkin. Martin Ritt,
er vann með henni aftur við
Back Roads, segir: ,,Þú getur
skipað Sally Field að henda sér
fram af bjargi og hún spyr ekki
hvers vegna, hún segir aðeins:
Ég vona að við þurfum ekki
Kyrrahafsrómantík
★ ★
SOUTH PACIFIC.
Leikstjóri: Joshua Logan.
Aðalleikarar: Mitzi Gaynor, Rossano Brazzi og Ray Walston.
Sýningartími: 170 minútur.
Sumar myndir eldast óskaplega
illa og South Pacific verður að teljast
meðal þeirra. Hún er gerð 1958 eftir
einhverjum vinsælasta söngleik er
saminn hefur verið, South Pacific
eftir Rogers og Hamerstein. Á sínum
tíma var myndin gerö í Todd-AO sem
er að því er mig minnir 75 mm breið
filma og nýtur sín því enn verr á litl-
um sjónvarpsskermi.
Söguþráðurinn er ekki ýkja inerki-
legur. Myndin gerist í seinni heims-
styrjöldinni. Bandarísk hjúkrunar-
sotH PAcific
kona verður ástfangin af miðaldra
frönskum plantekrueiganda á einni
af Kyrrahafseyjunum. Inn í sögu-
þráðinn kemur einnig rómantískt
samband milli ungs hermanns og
ungrar innfæddrar stúlku. Þessi
rómantíski söguþráður er kryddaður
með gamansömum atriðum þar sem
samskipti innfæddra og bandarískra
hermanna eru miðdepill.
Þaö er ekki söguþráðurinn sem
gerir það að verkum að horfandi sé á
South Pacific heldur tónlistin sem
hægt er að fullyrða að sé með bestu
söngleikjalögum sem gerð hafa
verið. Það liggur viö aö hvert einasta
lag í myndinni sé orðið aö klassísku
standardlagi í dag og þótt flutningur-
inn sé misjafn þá eru það tóniistar-
atriðin sem lyfta myndinni aðeins
upp.
Leikurinn er nokkuð skrykkjóttur.
Mitzi Gaynor er að vísu ágæt í sínu
hlutverki en Rosanno Brazzi er vita
vonlaus og er ómögulegt að skilja
hvers vegna hann var látinn í hlut-
verkið. Svo syngur hann ekki einu
sinni sjálfur. Ray Walston á góða
spretti.
South Pacific var á sínum tíma
tekin á Hawaii og landslagið nýtur
sín vel sem umgjörð um þessa
Ky rrahaf srómantík.
nema eina töku." Robert Ben-
ton, sem nýlega leikstýrði
henni í Places ln The Heart, en
fyrir þá mynd hlaut hún sín
önnur óskarsverðlaun, segir um
hana: ,,Það eina sem hún biður
þig um er að segja henni sann-
leikann."
Hlutverkin tvö, sem hún hef-
ur hlotið óskarsverðlaun fyrir,
eru persónur sem berjast fyrir
því sem þær trúa á. Og svo er
einnig farið um Sally Field
sjálfa. Hún hefur þörf fyrir að
lifa lífinu á þann veg sem henni
finnst réttast, því er það að
Sally Field er nýfarin að fram-
leiða myndir sjálf og nýtur þess
að vera óháð öðrum og segist
uppfull af hugmyndum um
verkefni sem hún hafi virkilegan
áhuga á.
Sally Field hefur nýlokið við
að leika í kvikmynd á móti Jam-
es Garner, nefnist hún Murphy's
Romance. Og hún er að undir-
búa að leika dr. Helen Caldicott
sem er þekktur mótmælandi
gegn kjarnorkuvopnum og öllu
því sem snýr að kjarnorku. Svo
það virðist sem Sally Field sé
loksins komin þangað sem hún
vill vera.
Nokkrar myndir með
Sally Field sem fáanlegar
eru á vídeóleigum:
Stay Hungry
Smokey And The Bandit
The End
Hooper
Norma Rae
Beyond The Poseidon
Adventure
Smokey And The Bandit II
Back Roads
Absence Of Malice
Bardagar á þjóðvegum
★
WHITELINE FEVER.
Leikstjóri: Jonathan Kaplan.
Aðalhlutverk: Jan Michael Vincent, Kay Lenz og Slim Pickens.
Sýningartími: 94 mínútur.
Það er auðvelt að ímynda sér að
White Line Fever hafi fylgt í kjöl-
farið á þeirri vinsælu kvikmynd Con-
voy, sem fjallaði eins og kunnugt er
um vöruflutningabílstjóra og bar-
áttu þeirra við yfirvöld og aðra sem
vildu þeim illt. White Line Fever
fjallar nefnilega um nákvæmlega
sama efnið. I stað Kris Kristoferson
er Jan Michael Vincent í hlutverki
sem hetja þjóðveganna.
CO SIARBINGI O iONÍS AND Sl IM PlC.KfNS AS OUANf
WPilIfN B/KÍN FRItOMAN AND JONAIHAN KAPlAN
MUSIC BV DAVIO NICIIIIRN PROOUCf0 BY JOHN KfMfNY
Hann er nýbúinn að kaupa sér
vöruflutningabifreið sem hann rekur
sjálfur. Það er ekki mjög vinsælt og
fljótlega verður skortur á verk-
efnum. Einhverjir hafa gert með sér
samtök um aö einangra hann og
helst aö bola honum burt úr borginni
og er lögregla staöarins með í leikn-
um. En hetjan okkar er ekki á því að
gefast upp. Hann fær aðra vörubíl-
stjóra með sér og saman mynda þeir
samtök sem erfitt er að sigrast á eins
og óvinir hans eiga eftir aö komast
að.
Samningafundur er boðaður og
ætlar stærsti iönrekandinn að knýja
þá til samstarfs en hetjan okkar
stendur á föstum fótum og kiknar
ekki þótt húsið hans sé brennt ofan af
honum og þarf ekki að segja frá
leikslokum.
Það eru nokkur hressileg atriði í
myndinni þar sem í aðalhlutverkum
eru hinir stóru flutningabílar
þjóðveganna og eru spennuatriðin
ágætlega gerð. Handritið aftur á
móti og leikur allur er meö miklum
annmörkum og í heild er White Line
Fever ekki nema léleg eftirlíking af
Convoy. Sem sagt, White Line Fever
er fyrir þá sem vilja sem mestan
hasarog lítiö meira.
37. tbl. Vikan 15