Vikan


Vikan - 12.09.1985, Side 19

Vikan - 12.09.1985, Side 19
reddarðu.” Það hefði alveg redd- ast, ekkert mál. Gæinn er vélstjóri á skipinu, þetta er fínt skip — en hann gerði það ekki. Svo var hann vondur útí MIG!” — Þú hefur stundum teflt á tæpasta vað? „Maður er aldrei þessi glæpa- maöur. Maöur er aldrei í inn- brotum. Það var stundum taliö sjálfsagt að ég hefði gert hlutinn. Einu sinni var ég tekinn fyrir að brjótast inn í Stapafell. Ég vissi alveg hver braust inn í Stapafell þessa nótt en ég var bara settur inn, ekkert mál. Hver heldurðu að hafi leyst mig út? Það var einn lögreglumaðurinn uppi á Velli, hann sagði að ég gæti ekki hafa brotist inn í Stapafellið því að ég hefði verið í djeilinu uppi á Velli. Þá hafði ég verið tekinn fyrir ólæti þar upp frá. Ég hef verið að tala við eldra fólk úr mínu byggðarlagi núna — og eins og Gunna skó sagði: „Eitt máttu nú eiga, Diddi minn, þó þú hafir verið slæmur, þú skildir aldrei eftir þig drullu neins staðar.” Meiningin er sem sagt að ég hafi aldrei verið óþverri við fólk. Maður var alltaf huggulegur. Ég segi fyrir mitt leyti aö ég sé ekki eftir sekúndu af þessu lífi. Það eina sem ég sé eftir er að geta ekki látið afa og ömmu njóta vel- gengni minnar núna. Þau eru bæði dáin. Á þessum árum hefði maður átt að gefa þeim meiri tíma en á þeim aldri sá maöur það ekki og þess sakna ég.” — En þú notfæröir þér hátt- vísina? „Ég sá um einn bankastjóra þegar hann datt í það — hann dettur svakalega í það öðru hverju. Ég lenti einu sinni með honum og honum leist svo vel á hvað ég hugsaði um allt saman. Ég meina, ég passaði að fólk stæli ekki neinu, passaði að allt væri á réttum stað, passaði peningana — ég drakk náttúrlega frítt með mínar dömur og svona. Þegar hann datt í það hringdi hann suöur eftir og heimtaöi að ég kæmi inn eftir. Nú væri hann dott- inn, treysti engum fyrir þessu og það var bara sendur leigubíll eftir mér. Svo var bimbinn bara blind- fullur — hann drakk, dó, drakk, dó og fór aldrei neitt. Svo var hann bara í baði með einni góðri drottningu að éta sviö sem ég keypti niðri á Umferðarmiðstöð um miðja nótt: bankastjórinn sjálfur, vömbin um allt. Þótt ég segi þaö sjálfur, maður var nú helvíti huggulegur, svo var maður smart klæddur í þokkabót, yfirleitt með nóg af seðlum — það var ekkert sem gat stoppað mann. Við vorum alltaf á flottum bílum — þá ert þú meö allt sem þarf til þess að ná í dömur! Ég meina, þaö var ekkertmál.” — Segöu mér fleiri sögur. „Einu sinni var ég í smá- einangrun á Skólavörðustíg, Keflavík vildi losna við mig í smá- tíma, þetta var ekki gæslu- varðhald. Ég var einn af þeim sem voru ekki í afbrotunum sjálfir heldur alltaf með þeim sem voru í því, en ég kjaftaöi aldrei. Sigtryggur lögga sagði líka við mig: „Diddi minn, þú varst aldrei slæmur, þú bara vildir aldrei segja okkur neitt.” Ég talaði ekkert við þessa karla, þegar þeir gáfu mér tíu daga þá baö ég um tuttugu, bara til þess að slappa af í húðinni. Ég var traustfangi þarna á Skólavörðustígnum, sá um að reka þetta. Ég var í eldhúsinu, uppvaskinu og svona. Fanga- vörðurinn, sem átti heima uppi á lofti, var þar þegar ég var aö þvo skápa inni í eldhúsi. Það var há- skólamaður sem var að leysa af í sumarfríi. Ég fann þarna hand- járnapakka uppi í skáp. Fanga- vörðurinn tekur pakkann og fer að sýna mér hvernig löggan í Ameríku smellir handjárnunum á menn. Um leið og hann smellir öðru járninu á úlnliðinn á sér hrifsa ég hinn helminginn og skelli utan um stöng framan á eldavél- inni. Hann verður albrjálaður, ég gat náttúrlega ekki sprautað manninn niður, það var ekki hægt aö koma nálægt honum! Síðan fór ég út í garð, það er smáport þar sem öskutunnurnar eru, og ég bara hoppaði yfir vegginn. Ég fór nátt- úrlega með lyklana með mér, svakakippu — ég bar ábyrgð á þessu. 37. tbl. Vikan 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.